Kristilegt stúdentablað - 01.12.1936, Blaðsíða 10

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1936, Blaðsíða 10
KRISTILEGT STUDENTABLAÐ Áð rannsaka sjálfan sig. Nítján hundruð ára. trúarbrögð! Að rýna aftur í tímann um nítján alda veg, til þess að reyna að festa auga á Kristi á Gyðingalandj og krossinum hans, — þannig dæmir margur maðurinm uan kristna trú, og telur hið sama og að líta um öxl og aftur fyrir sig við hvert fótmál, í stað þess að hugsa um b'ðandi stund og horfa fram. En þessi dómur er bara byggður á misskilningi. Við gröf hins upprisna Jesú var borin fram fyrir mennina þessi áminnandi spurning: »Hví leitið þér hins Uf- anda meðal hinna dauðu? Hann er ekki hér; en hann er uppri'irm. Þetta er misskilningurinn, að margur maður leitar Jesú meðal lpngui horfinna manna í heimssögunni, leitar atriða úr kenningu hans, en leilar ekki sambands við hinn lifandi frelsara, sem býðst til að lieiða hinn vegvillta mann gegn um hættur lífsins. En sá, sem hefur fundið þörf sína fyrir ftelsara, sem gæti afmáð syndir hans, og hefur síðan reynt kærleika hans, kraft og leiðsögn daglega sem hins lifanda, þrátt fyrir eigin efasemdir og óstöðuglyndi, hann finnur marg- ar gátur lífsins leystar, sem áður voru eins og stór björg á vegi trúarinnar. Margar geta enn verið huldar, en hinn trúaði maður sættir sig við að bíða um stundi eftir lausn þeirra, án þess að sú bið raski trausti hans. Hann horfir fram, í von um meiri skilining og þroska. Hver vill taka sér fyrir hendur að rannsaka sjálfan sig í birtu þeirri, sem ber af lífi Jesú og starfi meðal mannanna, við þá kærleikans birtu, sem leggur frá krossi hans, sem reistur var vegna afbrota mannsins gegn höfundi Ijfsins, við sigur- birtu upprisu hans, við ljésið, sem stafar frá lífi og dauða bræðra og systra, sem trúað hafa á hinn lifandi frelsara syndugra manna? Það er ráðlegt hverjum manni, að hefja þessa rannsókn. Sé það satt, að nútíminn krefjist rann- sóknar og raunveruieiks, þá ætti ekkert að tefja þig frá að hefjast handa. Helgi Tryggvason, stud. phU. Ég gafst guði. Hvernig í ósköpunum getur ungur mennta- maður verið kristinn? Ég skil það afar vel„ að slík spurning sé ofarlega í huga margra ungra menntamanna. Eg átti sjálf- ur fyrir eigi all-föngu í mikilli baráttu út af þess- ari sipurningu. Hvernig getur sá, sem nokkra menntun hefur til að bera, trúað Biblíunni? Er hún ekki full af mótsögnum? Hvernig er hægt að vita að kristindómurinn sé hin eina og sanna trú? Er ekki heimurinn fujlur af aljskonar trúarbrögðum? Þessar og þvílíkar spurningar átti ég við að stríða. Ég vildi svo gjarnan vera kristinn, en mér fannst ég verða að beita heilbrigða. skynsemi valdi, til að geta orðið það! En svo var það, að ég komst í kynni við nokkra jafnaldra mína., sem mér var Ijóst að voru kristn- ir. Kristindómurinn, var þeim áreiðanlega raun- veruleiki, og þeir vitnuðu, með djörfung og fullvissu um samfélag sitt við Krist. Ég tók að þrá að eign- ast það sama og þeir, því að mér varð það ljóst, að mér var það ómissandi. Ég reyndi að leita., því að mér fannst ég þurfa að uppljfa eitthvað yfirnátt- úrlegt, áður en ég yrði kristinn, en fann ekkert. ------En svo tók ég ákvörðun: nú er mér sarna hvað það kostar, ég verð að gefa mig Kristi og fylgja, honum eftir og bera, vanvirðu hans» — Nú var ég orðinn kristinn. Nú mætti ég Kristi. Það var ekki á óeðlilegan hátt, með yfirnáttúrlegri opinberun eða neinu þessháttar. Heldur kom það sem djúpur en kyrlátur friður í hjartað og full,- vissa um það, að nú væri tilgangur lífsins fund- inn. 1 þessu er sæla fólgin, þátt það kosti baráttu og sjálfsafneitun! Ungu menntamenn! Ki-istindómurinn er ekki heilabrot um erfiðar spurningar, hann er líf, sem lifað er í samfélagi við Krist, Gefumst því honum, tökum á oss vanvirðu hans og fylgjum honum eft- ir, hvað sem það kann að lmsta oss, þá leysast £31- ar erfiðar spurningar og efasemdir af sjálfu sér. Ástráður Sigursteindórsson, stud. tlieol. Álpjóða kristilega stúdenta-ráðstefnan var að þessu sinni haldin I Helsingfors I Finnlandi 24.—28. okt. og voru þar mættir um "iO fulltrúar, leið- andi menn innan kristilegu stúdentahreyfingarinnar á bih- lxulegum grundvelli, víðsvegar úr Evrópu. Árangur af þess- ari ráðstefnu mun hafa verið mjög góður. Dagblcðin fluttu daglega langar greinar með fréttum frá fundunum og við'- tölum við fulltrúa. Á kveldin voru haldnar almennar sam- komur og sóttu þær um 4000 manns. Á þessari ráð- stefnu voru fulltrúar frá öllum Norðurlöndum, nema Is- landi. Hvað verður langt jxangað til íslenzkir sti'dentar hrífast með af boðskap kristindómsins? 10

x

Kristilegt stúdentablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.