Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 16

Morgunblaðið - 04.01.2009, Síða 16
16 Tengsl MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009 Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is Lára „Ég man fyrst eftir Þorfinni í rifrildi við Ninnu, elztu systur okkar, um Tinnabók. Þá hef ég verið 4, 5 ára, en ég er sex árum yngri en hann. Hann gaf sig ekki gagnvart Ninnu, var ekki vanur því, hann var og er reyndar enn mjög ákveðinn, en hann getur líka verið mjög sveigjanlegur ef það hentar honum. Við vorum stór systkinahópurinn, sjö krakkar, þannig að eiginlega man ég fátt af honum einum framan af. Ég man þó vel þegar hann átti að passa okkur þrjár yngstu systur sínar og láta okkur sofa. Hann var mjög strangur, ef við hefðum mátt velja, hefðum við viljað að einhver annar kæmi okkur í rúmið. Hann sat á gólf- inu og las, ekki fyrir okkur, heldur sjálfan sig og beið eftir því að okkur sigi blundur á brá. Og við máttum ekki hreyfa okkur á meðan. Þegar elzti bróðir okkar kom okkur í háttinn gátum við alltaf platað hann til þess að leyfa okkur að fá kexköku eða leika okkur bara svolítið meira. En það var aldrei hægt að plata Þorfinn. Ég held ég megi segja að framan af vor- um við engir sérstakir vinir. Ég var alltaf að atast í honum og honum var ekki skemmt. Svo breyttist það og ég fór að líta mjög upp til hans, mér fannst hann svo klár, hann vissi eiginlega allt og fékk góðar einkunnir í skólanum. Hann var svona ekta sonur sem allir foreldrar vilja eiga. Og fyrir mér ekta bróðir, sem mér fannst allar stelp- ur vilja eiga. Þegar ég var sex ára gat ég ekki sagt stjarna, sagði alltaf snjarna. Þor- finnur var óþreytandi í að láta mig tönnlast á þessu, þar til ég gat sagt stjarna. Þá sagði hann strax: Segðu snjór, segðu snjór. Og ég sagði auðvitað stjór! Þá hló hann. Hann gat verið svolítið stríðinn.“ Íslenzku- og stærðfræðipælingar „Það voru miklar íslenzku- og stærð- fræðipælingar á heimilinu, pabbi var alltaf með móðurmálið á vörunum og við krakk- arnir drukkum það í okkur. Þorfinnur varð góður stærðfræðingur og ég tók það upp eftir honum að hafa gaman af stærðfræði. Seinna fór ég svo í verkfræði einsog hann hafði gert, en lauk aðeins einni önn, hætti þegar fjórða barnið kom í heiminn. Þorfinnur var alltaf að segja mér að fara í fjölmiðlun og hvetja mig til þess að sækja um. Þegar NFS var stofnuð 2005 var hann ráðinn þangað inn og hann hvatti mig til þess að sækja um, því það vantaði fullt af fólki. Ég fór og talaði við Róbert Marshall og þar með var ég komin í fjölmiðla. Þor- finnur vissi hvað hann söng um þetta og ég fann fljótt að starfið er mitt draumastarf. Það var mikið talað um fjölmiðla á heim- ilinu. Pabbi var náttúrlega vakinn og sofinn fjölmiðlamaður. Og svo var kvikmyndaáhug- inn á fullu líka. Þeir Þorfinnur og Raggi, elzti bróðir, bjuggu til kvikmyndir, þeir áttu einhverja kameru og svo voru sýningarvél og tjald á heimili. Þarna sýndu þeir sínar myndir, sem ég fékk stundum að leika í, eða var öllu heldur notuð í, þegar betri kostir voru ekki fyrir hendi. En þeir tóku þetta allt mjög alvarlega. Þorfinnur var afbragðsnemandi. Ég man þegar hann fékk árangurinn í samræmdu prófunum; AAA. Hann skrifaði með félaga sínum í Álftamýrarskóla fræga söguritgerð upp á 10. Þegar ég kom í skólann þreyttust kennararnir aldrei á að segja mér að ég mætti gjarnan líkjast bróður mínum meira. Mér fannst oft erfitt að feta í fótspor hans, eiginlega átti ég ekki sjens og valdi þess vegna oft að fara „hina leiðina.“ Þorfinnur var ekki villtur unglingur. Það var aldrei neitt vesen í kringum hann. Hann átti alltaf kærustu Hann var mjög vinmargur og fljótlega fóru stelpurnar að verða skotnar í honum. Hann var klár og skemmtilegur og svo dansaði hann. Þegar ég var þetta 12, 13, 14 var Duran Duran í miklu uppáhaldi hjá mér og það var alveg að gera út af við hann. Þegar ég svo 15, 16 komst upp á svipaða tónlist og hann fór hann að deila með mér ýmsu úr sínum heimi. Þá var hann ekki lengur bara stóri bróðir, sem ég leit með lotningu upp til, heldur líka félagi og vinur. “ Vinur allra hvar sem er „Þegar ég var 16 fór okkar samband að breytast. Hann hætti með kærustunni sem hann hafði verið með öll unglingsárin og þá áttum við meiri samleið og tengslin í milli okkar urðu önnur, til dæmis skemmtum við okkur saman. Ég man til dæmis alltaf eftir fyrsta skiptinu þegar hann og vinir hans skemmtu sér og dönsuðu með mér og vin- konum mínum í stofunni heima eitthvert laugardagskvöldið. Þá vissi ég að við vorum jafninmgjar. Og nú náum við vel saman á fullorðinsaldri þótt ólík séum. Við fórum til dæmis saman til Parísar í sumar ásamt mökum, ferð sem við höfðum talað um í mörg ár. Hann Þorfinnur er mjög skemmtilegur, hann á það reyndar til að bíta sumt í sig og getur þá verið svolítið þrjózkur, en hann fer aldrei í illt út af því. Einn af hans stóru kostum er að hann dæmir engan fyrirfram og er bæði alþjóðlegur og víðsýnn í garð manna og málefna. Hann er heimsborgari, hefur ferðazt víða og kynnzt mörgum menn- ingarheimum. Og honum hefur tekizt að vera vinur allra, alveg sama hvar í heim- inum hann er. Það líkar öllum vel við hann. Hann er ekki snobbaður, en hann vill fá gott vín og góðan mat og þegar hann er gestgjafinn getur hann látið dæluna ganga um uppruna vínsins og matarins. Hann leggur mikinn metnað í matargerð og er frábær kokkur og það er gaman að hlusta á hann, þó ég hafi lítið vit á mat eða drykk. Máltíðin sem fylgir sögunum er svo ynd- islega góð og sögurnar því í raun forsmekk- urinn að því sem koma skal.“ Fordómalaus heimsborgari Morgunblaðið/Kristinn Helga Jóhannsdóttir og Ómar Ragnarsson eiga sjö börn. Það er því af nægum tengslum að taka í þeirri fjölskyldu. Hér tala Lára og Þorfinnur. Þau hafa bæði látið til sín taka í fjölmiðlum og hún tók það upp eftir honum að hafa gaman af stærðfræði og tók eina önn í verkfræði af því að hann hafði klárað fyrri hlutann .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.