Morgunblaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MARS 2009
✝ Jónína Vilborg(Stella) Þorbjörns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 15. sept-
ember 1927. Hún lést
á Hrafnistu í Reykja-
vík 23. febrúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Þorbjörn
Pétursson vélstjóri, f. í
Grjóta í Garðahreppi
1. september 1892, d.
21. maí 1965 og Arn-
dís Benediktsdóttir
húsmóðir, f. á Vallá á
Kjalarnesi 14. október
1900, d. 16. febrúar 1949. Systkini
Stellu eru Jakobína Steinunn, f. 6.
júní 1921, d. 11. október 2004, Pétur
Þorbjörn, f. 25. október 1922, d. 8.
júní 2006, Sigríður Kristbjörg, f. 31.
júlí 1924, d. 19 október 2003, Ólafur
Hilmar, f. 5. apríl 1926, Benedikt, f.
8. apríl 1931, d. 8. febrúar 1959, Eyj-
ólfur Guðni, f. 28. október 1933, Júl-
íana Sigurbjörg, f. 3. september
1936, d. 12. desember 1992 og Þor-
björn Steinar, f. 11. nóvember 1937,
d. 5. nóvember 1964.
Stella giftist Vali Jónssyni sjó-
manni, f. í Reykjavík 6. ágúst 1923, d.
björg María Ólafsdóttir, f. 11. janúar
1960. Þau eiga tvö börn, Jón Vilberg
og Sigurbjörgu Ólínu. Sonur Jóns
Hauks og Auðar Karlsdóttur er Val-
ur. 6) Eyjólfur, f. 5. janúar 1957,
maki Elísabet Sigurðardóttir, f. 8.
apríl 1959. Dætur þeirra eru Guðrún
Hildur og Birna Vala. Dóttir Eyjólfs
og Erlu Ólafsdóttur Melsteð er
Soffía Melsteð. Barnabörnin eru tvö.
7) Sverrir, f. 22. nóvember 1957.
Börn hans og Önnu Friðriksdóttur
eru Friðrik Valur og Hugrún Hildur.
8) Örn, f. 21. janúar 1963, maki
Hulda Margrét Waddell, f. 10. júlí
1955. 9) Ína, f. 19. desember 1965,
maki Sigurgeir Óskar Haraldsson, f.
27. febrúar 1969. 10) Ída, f. 19. des-
ember 1965, maki Gunnar Björns-
son, f. 23. september 1967. Synir
þeirra eru Björn og Gunnar Valur
11) Eðvarð Þór Eðvarðsson, f. 29.
janúar 1967, maki Anna Lilja Lár-
usdóttir, f. 5. júlí 1966. Börn þeirra
Inga Guðrún, Rúnar Ingi, Ólöf Edda
og Eðvarð Már. Kjörforeldrar Eð-
varðs Þórs eru Eðvarð Felixson og
Guðrún Gústafsdóttir. Stella ólst upp
ásamt systkinum sínum að Lokastíg í
Reykjavík. Stofnaði fjölskyldu ung
að árum þar sem nóg var að starfa,
ásamt því að sinna uppeldi barnanna
og annast heimilisstörfin vann Stella
alltaf úti, lengst af sem gæslukona á
Kleppsspítala og Hrafnistu í Reykja-
vík.
Útför Jónínu Vilborgar (Stellu)
fer fram frá Áskirkju í dag kl. 13.
16. desember 1979.
Foreldrar hans voru
Jón Jónsson, bryti og
síðar kaupmaður í
Reykjavík, f. 19. ágúst
1898, d. 20. maí 1943
og Friðlín Þórð-
ardóttir húsmóðir, f.
22. maí 1897, d. 19.
nóvember 1954.
Dóttir Stellu og
Carls Eddie Barry er
1) Þórdis Hildur
McDonald, f. 1. mars
1946, maki Harold
McDonald, f. 21. febr-
úar 1943. Sonur þeirra er Harold
McDonald. Börn Stellu og Vals eru:
2) Friðlín, f. 25. júlí 1951. Börn henn-
ar og Hinriks Aðalsteinssonar eru
Klara Berta og Hinrik, þau eiga eitt
barnabarn. 3) Benedikt Þór, f. 22.
september 1952, maki Þuríður Ing-
unn Nikulásdóttir, f. 31. desember
1951. Þau eiga fjögur börn, Eyþór,
Brynjar Nikulás, Inga Val og Eydísi
og tvö barnabörn. 4) Jóna Vala, f. 2.
maí 1954. Hún á fjögur börn, Jón Val,
Arnþór, Guðrúnu Stellu og Gunnar
Guðna og sjö barnabörn. 5) Jón
Haukur, f. 9. júní 1955, maki Guð-
Ein af fyrstu minningum mínum
um mömmu er þegar ég sat á steini
við Kleppsveginn að bíða eftir að hún
kæmi úr vinnunni. Ég beið alltaf með
óþreyju og ég man það ennþá hvað
hjarta mínu létti þegar ég sá hana
koma labbandi heim að hlaði og núna
rúmum fjörutíu árum seinna kveð ég
hana með söknuði í hjarta en um leið
með þakklæti og gleði fyrir uppeldið.
Ég minnist ætíð að hún hafi vernd-
að og agað okkur systkinin þar sem
við átti. Einnig einkenndist umhverfi
hennar af gleði og hafði hún alltaf
gaman af góðum húmor sem hún átti
ekki langt að sækja enda systkini
hennar sérstaklega glaðvært fólk
sem var sérstaklega skemmtilegt að
vera í kringum. Mamma þurfti að
reyna margt um sína ævi en aldrei
heyrði ég hana kvarta þrátt fyrir
veikindi og önnur erfið mál sem
snertu hana. Vel má vera að hennar
kynslóð hafi ekki leyft sér þann mun-
að sem yngri kynslóðum þykir sjálf-
sagður hlutur í dag.
Mömmu fannst fátt skemmtilegra
en að fá skyldmenni í heimsókn til
sín, börnin sín og barnabörn eða aðra
ættingja því hún var mikil fé-
lagsvera. Áður en hún fór á Hrafn-
istu í Reykjavík eldaði hún alltaf mat
eins og við öll systkinin værum að
koma. Hún hafði mjög gaman að tala
um ættfræði og gömlu góðu dagana
við systkini sín, um Lokastíg 28 þar
sem hún ólst upp með 9 systkinum
sínum. Hún starfaði lengi vel á
Kleppspítala og man ég eftir að vist-
menn komu jafnvel stundum boðnir
og óboðnir í kaffi heim til okkar og
var alltaf tekið vel á móti gestum og
gangandi.
Pabbi og mamma giftu sig í maí
1951 og var pabbi sjómaður flest árin
sem þau voru gift eða þangað til að
hann lést til sjós 1979 af hjartasjúk-
dómi aðeins fimmtíu og sex ára að
aldri. Þetta tók hún að sjálfsögðu
nærri sér en var staðráðin í að standa
þessa þraut eins og allar fyrri þraut-
ir, af þrautseigju og eljusemi og
hvergi var hvikað og aldrei sást
neinn bilbugur á mömmu, halda
skyldi áfram.
Nú kveð ég móður mína með vissu
um að hún sé farin til systkina sinna
og ættmenna á himnum og þegar sá
dagur rennur upp mun hún bíða mín
á steininum góða.
Hvíl í friði elsku mamma
Að lokum vill ég sérstaklega þakka
stjórnendum og starfsfólki á Hrafn-
istu í Reykjavík, deild H2, fyrir fram-
úrskarandi aðhlynningu og góð-
mennsku
Örn Valsson (Gulli.)
Mig langar til að minnast tengda-
móður minnar í nokkrum orðum. Ég
man það eins og það hafi gerst í gær
er maðurinn minn kynnti mig fyrir
móður sinni. Hún vildi nú fá að líta
dömuna augum sem elsti sonur
hennar var kominn með upp á arm-
inn. Mér var boðið í mat. Tengda-
móðir mín tók á móti mér í sínu fín-
asta pússi með opnum örmum, en ég
pempían tók bara eftir því að hún var
með rúllur í hárinu þrátt fyrir að
vera sallafín að öðru leyti. En svona
var hún tengdamóðir mín, hún kom
bara til dyranna eins og hún var
klædd. Engin sýndarmennska á
þeim bæ.
Stella eins og hún var alltaf kölluð
var kjarnakona, ein af þessum súp-
erkonum eins og við tölum um í dag.
Það var ekki bara það að hún ann-
aðist uppeldi barnanna sinna tíu að-
allega ein, þar sem tengdafaðir minn
Valur var lengstum úti á sjó, þá var
hún líka útivinnandi húsmóðir. En
einhvern veginn gengu hlutirnir upp
og sést það best á börnunum hennar
sem öll hafa spjarað sig með ein-
dæmum vel þrátt fyrir að oft hafi
verið þröngt í búi og lífið ekki alltaf
dans á rósum. Stella missti mann
sinn Val langt fyrir aldur fram. Á
þeirri sorg tók hún eins og henni var
einni lagið og aldrei heyrði ég hana
kvarta.
Þrátt fyrir stórt heimili og mikla
vinnu kunni tengdamamma þá list að
slaka á. Það var ákaflega notalegt að
koma til hennar í kaffi þar sem hún
gaf sér tíma til að setjast niður með
manni og spjalla um alla heima og
geima, enda var mikill gestagangur
hjá henni á meðan hún hélt heimili.
Háir sem lágir, allir voru velkomnir.
Þegar barnabörnin fóru að koma öðl-
uðust þau sinn sess hjá ömmu sinni.
Lengi vel nutu elstu synir mínir tveir
þess að hafa hana eina þar sem þeir
voru með elstu barnabörnunum. En
það varaði ekki lengi því brátt bætt-
ust fleiri í hópinn og samkeppnin
varð harðari um Stellu ömmu sem
var alltaf svo hress og skemmtileg.
Já, Stella var lífsglöð kona og
hrókur alls fagnaðar innan um fólk
þar sem hún vildi helst vera. Eftir að
hún fékk inni á Hrafnistu var það
iðulega þannig að dyrnar á herberg-
inu hennar stóðu opnar upp á gátt því
allir voru velkomnir inn. Og ef eng-
inn kom inn fór hún bara fram þar
sem fólkið var. Þannig var tengda-
mamma.
Svo einkennilegt sem það er verð-
ur mér alltaf hugsað til Stellu á bollu-
daginn. Tengdamamma gerði nefni-
lega þær bestu vatnsdeigsbollur sem
ég hef smakkað og hér áður fyrr fór-
um við alltaf í bollukaffi til Stellu
ömmu á bolludaginn. Seinna fékk ég
svo uppskriftina af bollunum en ein-
hvernvegin tekst mér alltaf að klúðra
bollunum og fæ óspart að heyra það
frá börnunum mínum sem vitna í
góðu bollurnar hennar Stellu ömmu.
Og þennan dag valdi tengdamamma
til að kveðja þennan heim. Takk fyrir
allt, elsku tengdamamma, blessuð sé
minning þín.
Þuríður Ingunn Nikulásdóttir.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem.)
Ég kveð mína góðu tengdamömmu
Stellu með söknuð í huga og þakka
henni allar góðar stundir sem ég átti
með henni. Hún tók mér opnum örm-
um inn í fjölskylduna þegar við Gulli
kynntumst fyrir 24 árum.
Stella var sterkur persónuleiki og
lá aldrei á liði sínu ef hún gat rétt
hjálparhönd. Hún reyndist mér alltaf
vel í öllu og okkur var mjög hlýtt til
hvor annarrar. Mér fannst hún alltaf
jafn mikil mamma mín eins og hún
var mamma hans Gulla. Við Gulli eig-
um eftir að sakna þess að hafa ekki
okkar fasta punkt í tilverunni, að fara
að heimsækja mömmu.
Hafðu þökk fyrir allt og allt, Stella
mín.
Þín tengdadóttir,
Hulda.
Elsku amma mín.
Ég veit ekki hvernig ég á að kveðja
þig, elsku amma, þú varst alltaf svo
tilbúin til að gera allt fyrir mig og
stóðst með mér í öllu. Við skildum
alltaf hvor aðra og gátum hlegið að
hlutum saman sem enginn annar
skildi. Þú hefur verið svo sterk lengi.
Ég veit ekki hversu oft ég hef haldið
að þú sért að fara en alltaf hefurðu
komið mér jafn mikið á óvart. Ég trúi
því ekki ennþá að þú sért farin.
Ég þakka þér fyrir allar stundirn-
ar sem við áttum saman. Þegar ég
gisti hjá þér og var hjá þér að pússa
skeiðarnar. Fyrsta minningin mín
með þér er án efa þegar ég og vin-
kona mín hjóluðum til þín frá Breið-
holti upp í Grafarvog, allir voru svo
reiðir og ég skildi ekkert í því og þú
bara hlóst. Við eigum svo margar
góðar minningar saman og ég mun
alltaf halda í þær.
Ég veit að þú átt eftir að fylgjast
með okkur og passa upp á okkur.
Vonandi ertu komin á betri stað
núna, vonandi tóku Valur afi og
Vaskur vel á móti þér.
Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf
son sinn eingetinn, til þess að hver sem á
hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
(Jóh. 3:16.)
Elsku amma, ég mun aldrei
gleyma þér.
Þitt barnabarn,
Sigurbjörg Ólína Jónsdóttir.
Meira: mbl.is/minningar
Jónína V.
Þorbjörnsdóttir
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR FRANKLÍN STEINARSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum miðviku-
daginn 4. mars.
Steinar Ingi Einarsson, Gunnhildur María Eymarsdóttir,
Sigurður Arnar Einarsson, Á. Bergljót Stefánsdóttir,
María Björk Steinarsdóttir, Konstantín Shcherbak,
Einar Ísfeld Steinarsson, Erin Jorgensen,
Sigurgeir Sigurðsson.
✝
Okkar ástkæra
INGIBJÖRG DANÍELSDÓTTIR NIELSEN,
Lóa,
hjúkrunarfræðingur,
áður Hátúni 8,
Reykjavík,
lést á heimili sínu, Hrafnistu í Reykjavík að kveldi
þriðjudagsins 24. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 10. mars
kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins
s. 543 3724.
Aðstandendur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HALLDÓR GARÐARSSON
fyrrverandi bifreiðarstjóri,
Hringbraut 50,
áður Þorfinnsgötu 12,
andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
mánudaginn 23. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Alúðarþakkir færum við öllu starfsfólki Grundar en þó sérstaklega
þeim er starfa á deild V-4 fyrir frábæra umönnun og elskulegt viðmót.
Guð blessi ykkur öll.
Hulda Halldórsdóttir, Stefán Ásgrímsson,
Garðar Halldórsson, Björg Ingþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar,
BENJAMÍN JÓSEFSSON
húsgagnasmíðameistari,
Rimasíðu 20,
Akureyri,
andaðist á dvalarheimilinu Hlíð að morgni
fimmtudagsins 5. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Gísli, Hildur, Ólöf Vera, Sólrún Stefanía, Katrín
og Halldóra Lilja Benjamínsbörn.
✝
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, sonur, fyrrum maki
og bróðir,
RAGNAR JÓN GUNNARSSON
arkitekt og skipulagsfræðingur,
Reynimel 31,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 4. mars.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hilmir Berg Ragnarsson,
Arnar Jón Ragnarsson,
Janus Christiansen, Birgitta Baldursdóttir,
Gunnar G. Einarsson,
Guðlaug Erna Jónsdóttir,
Einar Berg Gunnarsson, Svandís Bára Karlsdóttir,
Þórey Björg Gunnarsdóttir, Guðbjartur I. Torfason,
Hafdís Lilja Gunnarsdóttir, Karl H. Karlsson
og systkinabörn hins látna.