Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2009 Nú bjóðum við 8 sæti vegna forfalla á frábæru sértilboði, á Dorotea íbúðahóteli og á Eugenia Victoria hótelinu, í tveggja vikna ferð til Kanarí um páskana. Gríptu tækifærið, fyrstur kemur - fyrstur fær! Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð kr. 169.990 2 vikur með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með hálfu fæði á Eugenia Victoria í 14 nætur. Sértilboð 1.-15. apríl. Aukagjald fyrir allt innifalið kr. 28.000. Verð kr. 129.990 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með 2 svefnher- bergjum á Dorotea í 14 nætur. Sértilboð 1.-15. apríl. Verð m.v. 2 í íbúð kr. 149.990. Sértilboð í páskaferð - 8 sæti laus vegna forfalla! Páskar á Kanarí 1.-15. apríl frá kr. 129.990 „ÞETTA var mjög sérstök upplifun og mjög hátíðleg stund,“ segir Guð- mundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindasókn, sem fermdi um helgina í fyrsta sinn í sóknarkirkjunni sinni. Þetta er sjöunda starfsár safn- aðarins en þótt safnaðarheimilið og skrifstofur kirkjunnar séu fullbúnar er kirkjan sjálf aðeins „vel fokheld“ eins og Guðmundur lýsir henni. „Það er búið að flota gólfið og inni er vel hlýtt. Ég held að það séu átján gerðir af stólum en þeir eiga það allir sameiginlegt að vera þægilegir.“ Í athöfninni um helgina gengust 38 fermingarbörn við trú sinni en 126 krakkar fermast í Lindakirkju í ár. Og Guðmundur segir mikilvæg skilaboð hafa falist í fal- legri athöfninni: „Að ytri umbúnaðurinn er ekki allt.“ ben@mbl.is Morgunblaðið/Golli Ytri umgjörðin ekki allt Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð gengur ekki óbundin til kosninga. Á landsfundi flokksins nú um helgina var samþykkt að taka ekki þátt í ríkisstjórnarsamstarfi með Sjálfstæðisflokknum. Þannig segir í ályktun: „Vinstri græn hafa ekki eytt síð- ustu vikum í að taka til í landi sem er rjúkandi rústir eftir nýfrjáls- hyggjustefnu hægrisinnaðra stjórn- valda, til þess eins að sjá Sjálfstæð- isflokkinn aftur í ríkisstjórn eftir stutt hlé á 18 ára valdasetu.“ Forystumenn flokksins hafa ítrekað verið inntir eftir því hvort Vinstri græn muni bindast kosn- ingabandalagi með Samfylkingunni en ekki hefur þótt ástæða til að festa niður slíkar hugmyndir. VG mun sækjast eftir því að mynda fé- lagshyggjustjórn. ESB skuli í þjóðaratkvæði Aðild Íslands að Evrópusamband- inu á að leiða til lykta í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Mikilvægt er að rækileg umræða fari fram um fyr- irkomulag atkvæðagreiðslunnar með hliðsjón af væntanlegum stjórnarskrárbreytingum. Vinstri græn telja þó að hagsmunum Ís- lands sé best borgið utan sambands- ins. Evrópumálin eru ekki efst á blaði í ályktunum og áherslum Vinstri grænna. Um helgina vakti enn- fremur athygli að Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, minntist ekki á Evrópumálin í setn- ingarræðu sinni á föstudag. Hann hafnaði því þó í samtali við Morg- unblaðið að VG væri að kæfa þessa umræðu. Aftur á móti væri Evrópu- sambandið ekki brýnasta málið í augnablikinu. Það yrði þó, líkt og önnur stór mál, áfram á dagskrá. Í ályktun um bráðaaðgerðir í hús- næðismálum er skorað á ríkisstjórn- ina að leita leiða til að lækka höf- uðstól húsnæðislána eða frysta hluta hækkana höfuðstóls vegna verð- bólguskotsins. Ennfremur að gerð verði tímasett áætlun um afnám verðtryggingar og vextir lækkaðir. Markmið efnahagsstefnunnar er full atvinna og ætlunin er að ræða við IMF um hvernig það megi verða. Á fundinum fóru fram heitar um- ræður um ályktun um aðskilnað rík- is og kirkju. Hún var samþykkt með „sjónarmun“ að mati fundarstjóra. Fylgismenn lögðu í umræðum áherslu á jafnrétti trúfélaga en and- vígir á mikilvægi kirkjunnar til sál- arhjálpar og félagslegs stuðnings. Tillaga sem þessi hefur iðulega verið lögð fram á landsfundi VG en ætíð verið hafnað hingað til. Rétta halla hinna flokkanna Á fundinum var margítrekuð gagnrýni á skipan flokksins í stjórn- arskrárnefnd Alþingis og í bankaráð Seðlabankans. Vinstri grænum bæri skylda til þess að tryggja hlut kvenna og því væri óásættanlegt að eini nefndarmaður VG væri í þess- um tveimur tilfellum karlmaður. Í samtali við Morgunblaðið sagði Steingrímur þetta vera miður. Gagnrýnin innan flokksins væri af hinu góða, hún héldi þingflokknum og forystunni við efnið og hann kveinkaði sér ekkert undan henni. Oft kæmi þó í hlut VG að rétta af halla hinna flokkanna. T.d. væru all- ir fjórir fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins í stjórnarskrárnefndinni karlar. „Við höfum skipað konur í mörg trúnaðarstörf. [...] Ríkisstjórnin hef- ur margt gert vel og ekki má gleyma að hún er sjálf til fyr- irmyndar í þessum efnum.“ VG útilokar samstarf við Sjálfstæðisflokkinn  Formaður segir önnur mál brýnni en ESB í augnablikinu  Gerð verði tímasett áætlun um afnám verðtryggingar Morgunblaðið/Golli Landsfundur Umhverfismálin eru ekki dottin upp fyrir hjá Vinstri grænum heldur eru þau, sem sjálfsögð sjónarmið, fléttuð inn í kosningaáherslurnar. ÁSBJÖRN Ótt- arsson, forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar og útgerðarmaður, náði fyrsta sæt- inu í prófkjöri Sjálfstæðis- manna í Norð- austurkjördæmi í gær. Hlaut Ás- björn 1.048 at- kvæði í 1. sæti, en Einar K. Guðfinns- son, þingmaður og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráð- herra, hafnaði í 2. sæti með 1.088 at- kvæði í 1.-2. sæti. Mjótt var á mun- unum allt fram á síðustu stundu, en Einar hafði þó nauma forystu framan af degi. „Þetta kom skemmtilega á óvart, enda að keppa við mjög öflugan mann og vinsælan,“ segir Ásbjörn. Hann segist telja kröfu um endurnýjun hafa skilað sér sætinu. Einar hyggst taka 2. sætið. „Ár- angur minn er þó þannig að ég hef fengið mikinn stuðning í 1. sætið og ég sé á öllu að sá stuðningur kemur víða að úr kjördæminu og er mjög breiður. Ég fagna því. En það er þó ljóst að mjög er kosið á landfræðileg- um grunni – eins og tíðkast hér á landi – og fyrir það er ég að gjalda. Það blasir við,“ sagði Einar í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Mikil þátttaka var í prófkjörinu, en alls kusu 74,23% þeirra sem voru á kjörskrá. Í þriðja sæti var Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps, í fjórða sæti Birna Lárusdóttir, forseti bæjar- stjórnar á Ísafirði, í fimmta sæti Bergþór Ólason ráðgjafi og í sjötta sæti hafnaði Sigurður Örn Ágústsson, framkvæmdastjóri. andresth@mbl.is Ásbjörn hafði betur í viðureign við Einar Ásbjörn Óttarsson Aðgerðir til að styðja við heimilin í landinu þurfa að vera raunsæjar og hnitmiðaðar. Þetta segir Stein- grímur J. Sigfússon, sem tekur ekki undir hugmyndir um 20% al- menna skuldaniðurfellingu. „Ég held það væri mjög skaðlegt að missa kosningabaráttuna út í yfirboð og ódýrt lýðskrum í þess- um efnum. Töfralausnir virka ekki núna.“ Ýmsar tillögur um aðgerðir liggi fyrir hjá VG, m.a. um að hækka vaxtabætur og sameina þær húsaleigubótum, auk þeirra sem ríkisstjórnin vinni þegar að. Steingrímur talaði í setning- arræðu sinni um innlenda verð- mætasköpun sem gæti komið í stað kostnaðarsams innflutnings. Hann hafnar staðhæfingum um að þeim áherslum fylgi verndarstefna og höft. Útflutningur verði þjóð- arbúinu einfaldlega lífsnauðsyn. Nýting á innlendum aðföngum felur í sér nýtingu á orkulindum landsins. Vinstri græn eru þannig ekki á móti virkjunum, að sögn Steingríms, heldur vilja leggja að grunn að fjölbreyttari nýtingu ork- unnar heldur en til álframleiðslu. Engar töfralausnir eða ódýrt lýðskrum Ásbjörn Óttarsson er nýr í landsmálapólitík, en hann hefur í 15 ár setið í bæjarstjórn Snæ- fellsbæjar fyrir Sjálfstæð- isflokkinn. Ásbjörn er fæddur árið 1962 og uppalinn á Hellis- sandi. Hann starfaði lengi við sjómennsku og útgerð, auk þess sem hann rak í nokkur ár fiskverkun á Rifi. Aðspurður hvers vegna hann hyggist nú hasla sér völl í lands- málunum segir Ásbjörn að þar séu ærin verkefni og það hvetji hann áfram. „Það sem þarf að gera núna er að reisa við at- vinnulífið og koma heimilunum til hjálpar.“ Nýr í landsmálin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.