Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.03.2009, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MARS 2009 ✝ Indriði Gíslasonfæddist í Skóg- argerði í Fellum 27. júlí 1926. Hann lést í Reykjavík 15. mars sl. Foreldrar hans voru Gísli Helgason bóndi í Skógargerði og Dagný Pálsdóttir hús- freyja. Systkini Indr- iða voru í aldursröð: Margrét, f. 1909, Helgi, f. 1910, Páll, f. 1912, Hulda, f. 1913, Björgheiður, f. 1915, Sigríður, f. 1916, Guðlaug, f. 1918, Þórhalla, f. 1920, Bergþóra, f. 1921, Sólveig, f. 1922, Ólöf, f. 1925, og Víkingur, f. 1929. Indriði var þeirra næstyngstur en öll komust þau til fullorðinsára. Eftir lifa Sigríður, Bergþóra, Ólöf og Víkingur. Indriði eignaðist með Kristínu Guðnadóttur, f. 22.10. 1927, dótt- urina 1) Ernu, f. 25.12. 1952. Móð- urforeldrar Ernu voru Guðni Vil- hjálmur Þorsteinsson og Jakobína Kristín Ólafsdóttir. Maður Ernu var Pétur Reimarsson, þau skildu. Börn þeirra eru: a) Frosti, f. 1.12. 1971. b) Reimar, f. 14.11. 1972, kona hans er Björg Vigfúsdóttir og börn þeirra Pétur Goði og Erna og Victor. 5) Ólafur Skúli, f. 23.5. 1961. Hans kona er Helga Ágústs- dóttir, f. 14.2. 1966, dóttir þeirra er Katrín Helga, f. 7.8. 1996. 6) Jón Skúli, f. 6.7. 1963, hans kona er Sigríður Jóhannsdóttir, f. 28.10. 1963. Börn þeirra eru a) Jóhann Skúli, f. 20.6. 1991, b) Kristín Ýr, f. 26.7. 1998. 7) Dagný Bergþóra, f. 13.3. 1965. 8) Ásmundur, f. 13.6. 1967. Hans sonur og Njólu Jóns- dóttur, f. 28.7. 1967, er Jón Freyr, f. 3.9. 1997. Indriði ólst upp í Skógargerði. Hann varð stúdent frá MA 1948 og lauk cand. mag.-prófi frá HÍ 1956. Hann helgaði starfsævi sína ís- lenskukennslu. Fyrst við Gagn- fræðaskólann í Vonarstræti og Réttarholtsskóla en lengst starfaði hann við Kennara- og síðar Kenn- araháskólann sem lektor, dósent, prófessor og síðast heiðursprófes- sor. Hann var mikilvirkur og af- kastamikill fræðimaður, vís- indamaður og rithöfundur og liggur eftir hann fjöldi kennslu- bóka, fræðigreina, ættfræðirita og sagnaþátta. Við starfslok hóf Indriði hvers kyns grúsk og rannsóknir. Hann kom að útgáfu Sýslu- og sóknalýs- inga í Múlasýslum og ruddi braut nýrri gerð ætta- og niðjasagna með Skógargerðisbók og síðan Ekkjufellsbók. Þá bjó hann til út- gáfu bók föður síns, Gísla Helga- sonar, Austfirðingaþætti. Indriði verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag, 23. mars, kl. 13. María. c) Valva, f. 23.1. 1975, maður hennar er Valdimar Þór Valdimarsson og börn þeirra Eva og Valdimar Darri. Hinn 29.10. 1955 kvæntist Indriði Ingi- björgu Ýri Pálma- dóttur, f. 7.5. 1931. Foreldrar hennar voru Pálmi Hann- esson, rektor Menntaskólans í Reykjavík, og Ragn- hildur Skúladóttir Thoroddsen húsfreyja. Börn Indr- iða og Ingibjargar: 2) Ragnhildur Rós, f. 11.8. 1956. Hennar maður er Skarphéðinn G. Þórisson, f. 20.6. 1954, og eiga þau a) Ingibjörgu Ýri, f. 15.10. 1990. b) Indriða, f. 18.8. 1992. c) Þuríði, f. 18.8. 1992. Fyrir á Skarphéðinn soninn Árna Val. 3) Pálmi, f. 2.6. 1958, hans kona er Anna Guðný Halldórs- dóttir, f. 12.2. 1953. Fyrir á Anna þau Sigvarð Örn, Halldór Val, Hrafnhildi Unni, Drífu Dröfn og Einar Má. 4) Helgi, f. 12.11. 1959, hans kona er Signý Jónsdóttir, f. 19.5. 1958 og eiga þau a) Björn Þór, f. 1.10. 2003, b) Birtu Líf, f. 23.5. 2005. Fyrir á Signý þau Júlíu „Það er ég viss um að höfundur Völuspár keyrði hérna um“ sagði hann á miðri Hellisheiðinni á leið aust- ur í sumarbústað, Reykjakot, einn frostkaldan dag að hyggja að hita og pípulögnum. Hmm, já? svaraði ég og einbeitti mér að akstrinum. „– Sól varp sunnan, sinni mána, hendi hinni hægri um himinjöður – Hann hefur hið minnsta farið hér um og ég hef oft velt fyrir mér hvort hann hafi ekki einmitt haft þessa mynd í huga“ hélt hann áfram. Karl faðir minn þekkti þessa leið vel en síðan hann sagði okk- ur krökkunum í gamla daga að Lykla- fell héti því nafni eftir að Ingólfur Arnarson týndi þar jeppalyklunum á leið sinni til Reykjavíkur, huxa ég mig tvisvar um er svona kenningar koma fram. Þessi virtist reyndar frekar sennileg, sólin í suðri, ekkert ýkjahátt á lofti og túnglið hálft framundan, svona einsog þau vissu ekki alveg hvar þau ættu að vera. Spunnust af þessu nokkrar umræður okkar á milli en við komumst svosum ekki nær téð- um höfundi. Í Reykjakoti var kalt, einginn hiti á miðstöðinni. Mér fannst hálfpartinn hlakka í honum, hér þyrfti eitthvað að gera. Pípulagnirnar í Reykjakoti þekkti hann öðrum betur. Í grunnin- um hafði hann skriðið og leitað að leka og gert við rör með eða án hjálpar ým- issa pípara úr Hveragerði, oft. Sagan af því þegar fraus í rörunum einn vet- urinn og skifta þurfti um megnið af lögninni í grunninum var honum í fersku minni. Nú var ekkert vatn á miðstöðinni. Við fylltum á hana, ég skreið eftir lögnunum og bað til guðs að ekki þyrfti að skifta mikið um rör þarna í þraungum rykugum, músút- skíttum grunninum. Nei, við fundum eingan leka þótt við færum yfir allar lagnir þar og við forhitarann. „Hann gæti verið svo lítill að vatnið gufaði bara upp“ taldi hann og vissulega fossaði ekki af miðstöðinni. Við feing- um þá snilldarhugmynd að kaupa matarlit og setja á miðstöðina þannig að auðveldara yrði að sjá merki um leka þó lítill væri. Ég sendur í verslun niður í Hveragerði, matarlitnum hellt á. Tveimur vikum síðar í dumbungi könnuðum við ástandið aftur. Mið- stöðin ekki alveg tóm. Aha, hægur leki, en þó ég skriði um allt (hóst hóst) með vasaljósið sást hvergi minnsti vottur af vatni eða rauðum lit. „Þessi leki er í forhitaranum“ var niðurstaða sérfræðingsins. Eftir skifti á forhitara komst hitinn í lag. Það var ekki eins mikið fútt að fara eftir það til að stað- festa árangurinn. Hálfpartinn fannst mér sem honum þætti betra ef eitt- hvað þyrfti að dytta að og laga, eink- um við pípulagnir og vatnsból. Það hljóp kannski of oft á snærið hjá hon- um hvað það snertir, en síðustu ár hef- ur rörtaungin þó oftar verið í minni hendi. Ég hef tekið við henni fyrir fullt og allt núna. Ólafur Skúli. Ekki óraði mig fyrir því að við vær- um að gantast saman í okkar síðasta sinn þarna á sjúkrabeði þínum á hjartadeild Landspítalans á sunnu- dagseftirmiðdaginn, pápi minn, enda virtist þú hreint ekki vera á leiðinni neitt. Bollaleggingar okkar um hjartaþræðingu og heimkomu fyrir nú utan stöðugan púlsinn á hjarta- línuritinu virtust líka á einhvern hátt vera trygging fyrir heimkomu þinni. Þannig mat ég það að minnsta kosti. Ég held þú hljótir að hafa ákveðið að laumast á brott með skelmislegt blik í auga og slást í för með slyngasta sláttumanninum. Þú varst jú vel lið- tækur á orf og ljá sjálfur og hver veit nema þú hallir þér einmitt fram á orf- ið og tyggir strá með Pétri við Gullna hliðið, ja eða sitjir á spjalli við þá himnafeðga núna. Mér finnst það so- sem allt eins líklegt að þú hafir ein- faldlega ákveðið að mál væri komið að snúa á ellina, kveðja þetta óbærilega heyrnar-, sjón- og heilsuleysi, já hreinlega snúa baki við þessum ódámum fyrir fullt og allt enda orðinn fullsaddur af þeirra kompaníi. Þú laumast út um gluggann þarna á stofunni, þennan sama og við vorum að dásama útsýnið út um, en það er eins og þú staldrir aðeins við þarna í gluggakistunni, rétt eins og þú efist stundarkorn um að nærbuxnaenglar eigi að vera á ferli í þessum éljagangi en skellir svo skollaeyrum við svoleið- is hégóma en grípur með þér sloppinn þinn og heldur á brott. Þarna á milli eftirmiðdagséljanna heldur þú af stað, með Liljuna hans Eysteins og sálmana hans Hallgríms undir hend- inni og stefnir til móts við eilífðina. Hárið flaksar í vindinum þar sem þú gengur einbeittur á braut enda fyrsti ákvörðunarstaður þegar í sjónmáli. Austurlandið bíður og ég er ansi hrædd um að þér gæti dvalist eitt- hvað við dreymna ró Fljótsins, þar sem þú fleygir þér niður í lyngbrekk- una og spáir í berjasprettuna. Varla samt að það komi að sök því veturinn er jú á undanhaldi og vorið á næsta leiti svo aldrei að vita nema að bláfjóla stingi upp höfði innan skamms. Hvar er líka betra að fylgjast með eilífðinni en niðri við Fljótið? Dagný Bergþóra. Í dag kveðjum við tengdaföður minn Indriða Gíslason. Ég kynntist Indriða fyrst fyrir tuttugu og fimm árum er ég hóf nám í Kennaraháskóla Íslands. Indriði var góður kennari sem gott var að leita til, en ekki grun- aði mig þá, er ég sat andspænis hon- um í kennslustundum, að hann ætti seinna eftir að verða tengdafaðir minn. Indriði reyndist mér og börnum mínum, Jóhanni Skúla og Kristínu Ýri, alla tíð afskaplega góður og hjálpsamur. Það voru ófáar bækurnar sem afi las, skákirnar sem voru tefld- ar eða ferðirnar sem farnar voru með krakkana á æfingar og hingað og þangað. Heimavinnan fyrir skólann var svo ávallt unnin hjá afa og ömmu í Barmahlíðinni. Það að vera í svona nánum tengslum við afa og ömmu eru forréttindi sem Jóhann Skúli og Kristín Ýr búa að alla ævi. Mig langar að kveðja tengdaföður minn með þessum ljóðlínum Hallgríms Péturs- sonar. Gefðu, að móðurmálið mitt, minn Jesú, þess ég beiði, frá allri villu klárt og kvitt krossins orð þitt út breiði um landið hér til heiðurs þér, helst mun það blessun valda, meðan þín náð lætur vort láð lýði og byggðum halda. Megi Indriði hafa þökk fyrir allt og guð blessi minningu hans. Hvíli hann í friði. Sigríður Jóhannsdóttir. Ó, blessuð vertu, sumarsól, er sveipar gulli dal og hól og gyllir fjöllin himinhá og heiðarvötnin blá. Nú fossar, lækir, unnir, ár sér una við þitt gyllta hár, nú fellur heitur haddur þinn á hvíta jökulkinn. Þannig orti frændi afa, Páll Ólafs- son, um sólina og sumarið og okkur langar að kveðja afa með þessum ljóð- línum hans. Nú er afi sjálfsagt lagstur í eilífa sumarblíðu í hlaðvarpanum í himnaríki og bíður eftir okkur hinum. Guð blessi minningu afa okkar, Indriða Gíslasonar. Jóhann Skúli og Kristín Ýr. Elsku afi minn. Ég er viss um að nú ertu að lesa og binda inn bækur, hummandi og reykjandi pípuna þína. Ég er viss um að hvíta hárið þitt skín skærar en all- ar stjörnurnar á himninum. Það er erfitt að trúa því að þú sért farinn en ég veit að þú ert á betri stað núna þar sem þú getur lesið eins margar bæk- ur og þú vilt. Þú verður samt alltaf í hjarta mínu, og eins og Hallgrímur Pétursson sagði: Innsigli heilagur andi nú með ást og trú hjartað mitt, svo þar hvílist þú. Svo þegar mín stund kemur og við hittumst á ný, þá skora ég á þig í eina skák. Afi minn, ég mun sakna þín. Ást- arkveðja, Þuríður. Ég þekkti Indriða Gíslason frænda minn lítið áður en ég réðst til kennslu- starfa í Kennaraháskólanum sáluga fyrir ríflega tveimur áratugum. Vissi þó að hann og Margrét móðir mín voru bræðrabörn úr Skógargerði austur á Héraði, ekki langt frá Orms- stöðum í Eiðaþinghá þar sem ég var lengi í góðri sveit hjá frændfólki okk- ar beggja. Og að hann var faðir Ernu sem lengi vann með mömmu á frétta- stofu útvarpsins. En hann tók hlýlega á móti mér þegar ég byrjaði að vinna í Kennaraháskólanum og stýrði mér af mildi og mannviti þau ár sem við unn- um þar saman. Indriði var einstaklega skemmti- legur maður, frábær kennari, hug- myndaríkur og fundvís, fróður um skáldskap og bar djúpa virðingu fyrir alþýðlegri sköpun og menningu sem hann reyndi eftir föngum að bjarga úr glatkistu gleymskunnar. Hann var merkilegur brautryðjandi við samn- ingu námsefnis í íslensku, meistari fjölmargra kynslóða kennara og áhrifamaður á allt sitt samstarfs- og samferðafólk. Indriði var sérstæður maður, oft ólíkindalegur í tali og sum- um fannst hann hvefsinn þegar hon- um ofbauð vitleysan. En hann var jafnan hlýr og frændrækinn, hollur sínum og sínu fólki. Ég kynntist svo fræðimanninum Indriða enn betur þegar hann munstraði mig í áhöfn við að setja saman bók um það fólk sem rekur ættir sínar til Ólafar og Helga í Skógargerði, Skógargerðisbók. Hann dubbaði mig upp án mikilla verðleika í stöðu aðstoðarritstjóra bókarinnar en sjálfur átti hann allan sóma af verk- inu. Hann dró saman af fágætri elju margvísleg gögn, bréf og ritgerðir, sögur og ljóð, sem faðir hans, afi minn, og aðrir ættingjar og forfeður höfðu sett saman, vann úr þeim efni- viði og felldi saman í frumlega og skemmtilega bók. Margt af því efni sem Indriði dró úr skókössum ætt- ingja sinna ofan af háalofti hefði vís- ast glatast hefði hann ekki lagst í þennan söfnunar- og björgunarleið- angur. Í staðinn geta komandi kyn- slóðir nú kynnt sér þessi frumgögn á skjalasafni austur á Héraði. Það var einstaklega gaman að vinna með Indriða að þessu verki, kynnast óþreytandi forvitni hans um þetta alþýðufólk og örlög þess, fræði- legri vandvirkni hans og virðingu fyr- ir viðfangsefninu, hugkvæmni við úr- vinnslu og framsetningu efnis. Og lesa textann því Indriði var frábær stílisti; ég reyndi stundum að hrósa honum og hvetja hann til að skrifa minningabók sína en þá hnussaði bara í honum. Ég vil að endingu þakka Indriða fyrir samfylgdina og sendi Ingibjörgu Ýri, börnum og öðrum afkomendum innilegar samúðarkveðjur. Megi minningar um góðan dreng lina sára sorg. Örnólfur Thorsson. Indriði föðurbróðir minn hefur kvatt. Þau Skógargerðissystkini voru 13, ólík, sérvitur, skemmtileg og afar eft- irminnileg og við njótum þeirra fjög- urra sem eftir eru meðal okkar. Ég man fyrst eftir Indriða smá- strákur austur á Héraði en þá kom hann í sumarvinnu í vegagerð, líklega hjá föður mínum. Indriða kynntist ég svo betur eftir að við hjónin fluttum til Reykjavíkur. Indriði stóð fyrir miklu ættarmóti árið 1985 og var ég svo heppinn að komast í nefnd hjá honum ásamt fleiri ættingjum. Ættarpóst gaf hann út og sendi frændfólki, en tæknin var önnur þá og teiknaði Indriði forsíðu og vél- ritaði efnið því hann vildi hafa sinn stíl á þessu eða eins og hann segir í 1. tbl. 1. árg. „stafsetníng á ritinu er hagað eftir nýustu kenníngum ábyrgðar- manns“. Þetta límdum við svo saman og ljósrituðum á kvöldin hér á teiknistof- unni, en það vildi svo heppilega til að þar var nothæf ljósritunarvél. Indriði var opinn fyrir uppástung- um um dagskrá ættarmótsins og efni í blaðið en skrifaði allt sjálfur og átti það til að segja um uppástungur að þetta væri nú óttaleg vitleysa. En svo gat komið löngu seinna, nei þetta er nú kannski ekki svo galið og þá var maður löngu búinn að gleyma upphaf- inu. Ættarmótið 1985 tókst með ágæt- um og varð fyrirmynd þeirra síðari því Indriði náði árangri með sínum Ættarpósti, en í 1. hefti segir hann „og njóta yndis á fegursta og veður- sælasta stað landsins – því mótið verður haldið austur á Hjeraði“ og hefur æ síðan verið haldið þar. Þetta lýsir hug Indriða til Héraðs- ins enda dvaldi hann þar löngum á sumrin eftir að vinnu hans fyrir Kennaraháskóla Íslands lauk. Örnefnakort gerðum við og ótrú- legt var að hlusta á hann þylja upp og staðsetja á annað hundrað örnefni í Skógargerðislandi. Þetta er til á Þjóð- minjasafni ásamt örnefnaskrá Vík- ings. Tíu árum seinna gaf hann út Skóg- argerðisbók en hana tel ég vera tíma- mótaverk í gerð slíkrar ættarsögu. Ég var svo heppinn að fá að fylgjast lítillega með fræðimanninum að störf- um og var hann óþreytandi við að grafa upp upplýsingar sem gátu kom- ið að notum og eyddi í það ótrúlegum tíma og natni. Þau systkini gerðu upp Skógar- gerðishús og njótum við afkomendur þeirra þess nú. Að leiðarlokum þakka ég Indriða samfylgdina og gefandi samveru- stundir. Ingibjörgu, börnum, tengdabörn- um og barnabörnum vottum við Anna samhug okkar í sorg þeirra. Björn Helgason. Indriði Gíslason frá Skógargerði er horfinn á braut á áttugasta og þriðja aldursári. Hann var Fellamaður, fæddur 1926, næstyngstur 13 systk- ina og fór ungur til mennta, nam ís- lenskufræði, stundaði rannsóknir og kennslu á því sviði, en fékkst við fræðimennsku og ritstörf síðustu ár- in. Ætla má að æskuheimili Indriða hafi ekki verið mikið efnaheimili, með svo marga munna að fæða, en ábyggi- lega þeim mun ríkara af andlegum auðæfum enda fór orð af þessum systkinum fyrir dugnað og myndar- skap á mörgum sviðum. Má segja að þau hafi þegar verið orðin vel mennt- uð þegar þau uppvaxin yfirgáfu æskuheimilið og héldu út í lífið. Þau voru gædd góðri greind og margvís- legum hæfileikum sem gerði þau að mætum samfélagsþegnum. Það var fyrir fáeinum árum að kynni okkar Indriða hófust. Þau kynni voru ekki ýkja löng, en þau voru góð. Indriði hafði tekið að sér að rita bók um Ekkjufell og Ekkjufells- menn og óskaði aðstoðar minnar vegna elli sinnar eins og hann orðaði það. Þegar ég kom að þessari vinnu var Indriði búinn að safna miklu efni og setja í próförk. Það var lítillæti hans að telja sig ekki valda slíkri vinnu því ég fullyrði að hann var einstakur á rit- velli. Allar heimildir sem hann með- höndlaði urðu líflegar til aflestrar vegna þess hversu fær stílisti hann var. Orðfæri hans var fágað en fornt, og rammíslenskt. Þeim fer fækkandi er hafa svo gott vald á íslensku máli sem Indriði hafði, enda var maðurinn hámenntaður á því sviði. Þar komu líka til skjala góðar gáfur, reynsla og þekking, og næmi til að samhæfa alla þá kosti sem honum hafði áunnist allt frá uppvaxtarárum á menningar- heimilinu í Skógargerði. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn á menntunarsviðinu kom Indriði ætíð fram við mig sem jafningja þegar við unnum saman, og á því plani dafnaði okkar góða sam- starf þótt oft greindi ég yfirburði hans á þessu sviði en slík var hóg- værðin og lítillætið að þessu var aldr- ei hampað. Indriði var iðjusamur og vildi drífa verkið áfram en oft þurfti hann að sitja á strák sínum vegna hæglætis Ekkjufellsmanna í að skila af sér upplýsingum í bókina. Þegar honum þótti keyra úr hófi sagði hann: Indriði Gíslason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.