Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 1

Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 0. J Ú N Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 155. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «GREASE Í LOFTKASTALANUM NÁLÆGÐIN VIÐ ÁHORFENDUR EINKENNIR UPPFÆRSLUNA «ÍÞRÓTTIR VEIGAR PÁLL FÆR GÓÐ SKILABOÐ Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is GUÐNI A. Jóhannesson orku- málastjóri greindi frá nýjum virkj- unarkostum, sem metnir verða í rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, í gær. Þar á meðal eru fimm nýir staðir í Hvítá í Árnessýslu, allt frá Selfossi næst sjó, upp að Búð- artungu ofan Gullfoss. Þar á milli yrðu Haukholtsvirkjun, neðan Gullfoss, þá Vörðufellsvirkjun og Hestvatnsvirkjun. Samanlögð aflgeta þeirra er áætluð 227 megavött. Aðrir nýir kostir eru Eyjadalsárvirkjun á vatnasvæði Skjálfandafljóts og Þverárvirkjun við Ísafjarð- ardjúp. Þá hefur möguleg vatnsaflsvirkjun við Hágöngur fengið nýtt nafn og nefnist nú Skrokkölduvirkjun til að- greiningar frá jarðvarmamöguleikum á sama svæði. Nokkur ný háhitasvæði hafa skotið upp kollinum sem sérstakir virkjunarkostir, en ekki er búið að áætla afl- möguleika á neinum þeirra. Þau eru á þremur ólíkum stöðum. Í fyrsta lagi má nefna Stóru-Sandvík á Reykja- nesskaga. Í öðru lagi Ölfusvatnslendur, Hagavíkurlendur og Meitil á Hengilssvæðinu. Í þriðja lagi er það svokölluð Blautakvísl í nágrenni Torfajökuls. Skýrslu 2. áfanga rammaáætlunar verður skilað um næstu áramót, en þar verða 80 virkjunarkostir metnir til virkjunar- og verndargildis. Ekki er annað tekið með í áætlunina en það sem orkufyrirtæki hafa sýnt áhuga. Tek- ið skal fram að Gullfoss sjálfur er ekki þar á meðal. 80 virkjunarkostir eru með í næsta áfanga rammaáætlunar Gullfoss á milli virkjana? Guðni A. Jóhannesson UNGA fólkið sem gekk fylktu liði upp Laugaveginn í gær með spjöld á lofti var ekki í mótmælaham heldur gladdist yfir opnun miðstöðvar, þar sem því gefst kostur á að virkja krafta sína í hvetjandi umhverfi. Miðstöðin hefur fengið nafnið Hús unga fólksins, og er til húsa í Austurbæjarbíói. Þar fá ungmennin aðstöðu og aðstoð við að framkvæma hugmyndir sínar og verð- ur spennandi að sjá hvað framtíðarfólkið okkar hefur fram að færa. VIRKJA KRAFTA EN KREFJAST EINSKIS Morgunblaðið/Golli  „Íslendingar eiga betra skilið af ráðamönnum sínum,“ segja hagfræðingarnir Gylfi Zoëga og Jón Daníelsson í grein um hugs- anlega brottvikn- ingu Sigríðar Benediktsdóttur hagfræðings úr rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið. Ummæli Sigríðar í skólablaði Yale-háskóla hafi kannski verið óheppileg en þau réttlæti ekki brottvikningu úr nefndinni. »18 Brottvikning myndi trufla og tefja störf nefndarinnar Sigríður Benediktsdóttir  Alexander Stubb, utanríkis- ráðherra Finn- lands, gaf í skyn, er hann var innt- ur eftir því hvers vegna Norð- urlandaþjóðir hefðu ekki stutt að Íslendingum bæri ekki að greiða upp Icesave-skuldirnar, að lausn málsins væri forsenda ESB- aðildar. „Rök mín eru þau að fagna beri sérhverri þeirri ákvörðun sem greiði götu Íslands að Evrópusam- bandsaðild.“ »6 Tengir lausn Icesave- deilunnar við ESB-aðild Alexander Stubb Án hvíts sykurs Án sætuefna Með agavesafa KE A skyrdrykkur – fyrir heilbrig ðan lífsstíl Nýjung með bláberjum Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is FRAMFÆRSLULÁN Lánasjóðs íslenskra námsmanna hækka ekkert og verða áfram rúmar 100 þúsund krónur á mánuði fyrir einstakling, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Fulltrúi stúdenta segir að með þessu sé námsmönnum ýtt úr námi og á atvinnuleysisbætur því tekjumögu- leikar þeirra með námi séu nú litlir sem engir. Menntamálaráðherra segir stöðuna alvarlega. Ingólfur Birgir Sigurgeirsson, fulltrúi Stúd- entaráðs Háskóla Íslands í stjórn LÍN, segir útlit- ið svart. „Miðað við verðlagsþróun þýðir þetta gíf- urlega kaupmáttarskerðingu,“ segir hann. „Þetta eykur hættu á að fólk flosni úr námi og fari á bæt- ur því eins og vinnumarkaðurinn er í dag hafa ekki allir möguleika á að stunda vinnu með skóla. Eins og staðan er í dag er háskólanám að verða forrétt- indi hinna ríku.“ Morgunblaðið hefur einnig heimildir fyrir því að drög að úthlutunarreglum LÍN geri ráð fyrir að námsmenn geti haft allt að eina milljón í tekjur á ári án þess að það skerði lánin, en það sem sé um- fram skerði lánin um 25%. „Það er ansi gott tíma- kaup fyrir námsmann að vinna sér inn milljón á þremur mánuðum, ef hann fær þá sumarvinnu á annað borð,“ segir Ingólfur inntur eftir þessu og bætir því við að stór spurning sé nú hvort sjóð- urinn standi með þessu undir lögbundnu hlutverki sínu, að tryggja jafnrétti til náms óháð efnahag. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að miðað við núverandi forsendur verði framlög til Lánasjóðsins ekki skert, en hins vegar sé heldur ekki svigrúm til hækkana, enda von á fjölgun námsmanna. „Hins vegar er spurning hvort megi skoða þetta í samhengi við almennar tilfærslur í kerfinu. Ég tel að þetta þurfi að ræða í ríkisstjórn- inni allri því að ég lít á þetta sem mjög alvarlega stöðu.“ Hún muni kynna stöðuna í ríkisstjórn á föstudag en málið verður tekið fyrir í stjórn sjóðs- ins á fimmtudag. „Ef forsendur breytast geri ég ráð fyrir að það hljóti að vera hægt að koma eitt- hvað til móts við sjóðinn, jafnvel þótt úthlutunar- reglur séu samþykktar á vorin.“ „Forréttindi hinna ríku“  Grunnframfærsla LÍN hækkar ekkert þrátt fyrir verðbólgu  Námsmönnum ýtt úr námi og á bætur, segir fulltrúi þeirra  Alvarleg staða, segir ráðherra  „Við tökum þessa skýrslu mjög nærri okkur og erum slegnir yfir henni,“ segir Gestur Valgarðsson, formaður Framsóknarfélags Kópa- vogs, um greinargerð Deloitte um viðskipti Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun. Framsókn stefnir að fulltrúaráðs- fundi á morgun. „Ég horfi til Sjálf- stæðisflokksins um lausn á málinu í ljósi þess að við framsóknarmenn og sjálfstæðismenn höfum átt gott sam- starf í Kópavogi í fjöldamörg ár. […] Þessi lausnartillaga sem við vonum að þeir komi með getur ekki falið í sér tillögu að óbreyttu ástandi,“ seg- ir hann, aðspurður hvort samstarfið verði að öðrum kosti endurskoðað. Hann vill þó ekki nefna hvaða lausn Framsókn vilji sjá. „Okkur finnst sanngjarnt að birta ekki okkar niðurstöðu fyrr en þeirra tillögur liggja fyrir.“ »8 Samstarf í hættu finni sjálfstæðismenn ekki lausn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.