Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 16

Morgunblaðið - 10.06.2009, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Skortur á upp-lýsingum tilað meta for- sendur samnings- ins við Breta og Hollendinga um Icesave-reikningana er orðinn vandræðalegur. Í umræðum á Alþingi í gær sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, að í gærmorgun hefði hún orðið vitni að því að tveimur þing- nefndum Alþingis, efnahags- og skattanefnd annars vegar og viðskiptanefnd hins vegar, var neitað um upplýsingar á grundvelli 5. greinar upplýs- ingalaga og líkti uppákomunni við farsa. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lýsti á þingi í gær sömuleiðis erfiðleikum við að afla upplýs- inga og hefðu fulltrúar Fjár- málaeftirlitsins sagt við- skiptanefnd á fundi í gærmorgun að ekki væri ein einasta leið að upplýsa hana um stöðu gömlu bankanna. Álfheiður Ingadóttir, þing- maður Vinstri grænna, tók undir orð Guðlaugs Þórs og sagði að kannski kæmi að því að þingmenn þyrftu að berja búsáhöld í þingsalnum til þess að fá upplýsingar. „Óheimilt er að veita al- menningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt er og eðlilegt að leynt fari, nema sá samþykki sem í hlut á,“ segir í lögunum. „Sömu takmarkanir gilda um aðgang að gögnum er varða mikilvæga fjárhags- eða við- skiptahagsmuni fyrirtækja og ann- arra lögaðila.“ Nú ríkja harla óvenjulegar aðstæður í samfélaginu. Fyrir alþingismönnum liggur að greiða atkvæði um gríðarlega mikilvægt mál og ógerningur að sætta sig við að þeir þurfi að gera það á grundvelli ófull- kominna upplýsinga. Þjóðar- hagur er í húfi og hann hlýtur að vera mikilvægari en þeir hagsmunir, sem 5. grein upp- lýsingalaga er ætlað að verja. Þess utan hlýtur að vera hægt að upplýsa þingheim um atriði þessa máls án þess að brjóta gegn lögum, sem kveða á um upplýsingagjöf til almennings. Allt frá því að bankarnir hrundu hefur skortur á upp- lýsingagjöf verið viðvarandi. Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks var gagn- rýnd fyrir að koma ekki upp- lýsingum um ástandið til skila. Núverandi ríkisstjórn er föst í sama farinu og á einnig erfitt með að miðla upplýsingum. Sömuleiðis virðist það hug- arfar víða ríkja í stjórnkerfinu að það sé kvöð að veita upplýs- ingar, en ekki sjálfsagður hlut- ur. Uppákoman í þinginu í gær er ein birtingarmynd þessa hugarfars og lögunum er snúið til þess að koma í veg fyrir að þingheimur geti gert sér eins heillega mynd og hægt er af einu mikilvægasta máli, sem komið hefur til kasta hans. Lögunum er snúið til að halda upplýs- ingum frá þinginu} Óupplýst Alþingi Velferðarsjóðurbarna úthlutar um 80 milljónum króna í styrki vegna tómstunda- starfs barna á Íslandi í sumar. Það höfðinglega framtak mun áreiðanlega létta undir með margri fjölskyldunni, enda er reiknað með að alls njóti um 15 þúsund börn og ungmenni góðs af. Velferðarsjóðurinn var stofn- aður árið 2000 af Íslenskri erfðagreiningu og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Íslensk erfðagreining lagði fram allt stofnféð, hálfan millj- arð króna. Markmið sjóðsins frá upphafi hefur verið að hlúa að velferð og hagsmunamálum barna á Íslandi, m.a. með fjár- framlögum til heilbrigðis-, vel- ferðar- og menntamála og sam- taka og félaga á Íslandi, sem hafa velferð og lækningar barna að megintilgangi. Við stofnun sjóðsins sagði Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, að ýmislegt í okkar sögu benti til þess að við hefðum „enn ekki komist úr þeirri stellingu að líta á börn sem ómegð en ekki blessun“. Hann benti á að börn væru framtíð þessarar þjóðar „og það hvernig við hlúum að börnum kemur til með að ráða því hvernig þessi þjóð verður þegar við stígum af sviðinu“. Full ástæða er til að rifja þessi orð Kára upp. Sjóðurinn, sem var stofnaður að frum- kvæði hans, hefur lagt fram há- ar fjárhæðir í þágu íslenskra barna og mun vonandi hafa bol- magn til að gera það áfram. Að þessu sinni lét sjóðsstjórnin ekki nægja að taka á móti um- sóknum, heldur hringdi á þá staði, þar sem tölur sýndu að neyðin væri hvað mest og hvatti fólk til að sækja um styrki vegna námskeiðahalds fyrir börn. Augljóst er að hugur fylgir máli hjá þeim sem standa að Velferðarsjóðinum. Margir mættu taka sér þessi vinnu- brögð til fyrirmyndar. Augljóst er að hugur fylgir máli}Höfðinglegt framtak É g get ekki neitað því að ég gladd- ist þegar ég sá þær fréttir í fyrrakvöld að hópur fólks hefði farið inn í Fríkirkjuveg 11, hið sögufræga hús við Hallargarð- inn, sem Thor Jensen lét reisa fyrir 101 ári. „Húsið er okkar,“ hrópaði fólkið. Fríkirkjuvegurinn, sem Novator, félag Björgólfs Thors, keypti í fyrravor, hefur und- anfarið staðið galtómur í hjarta borgarinnar. Björgólfur áformaði m.a. að stofna þar safn til minningar um langafa sinn, Thor. Enn hefur ekkert orðið af þessu og kemur væntanlega engum á óvart. Ég hef aldrei skilið hvers vegna Reykjavík- urborg taldi nauðsynlegt að selja húsið. Þegar Björn Ingi Hrafnsson, þáverandi formaður borgarráðs, kynnti fyrirhugaða sölu árið 2006, sagði hann að húsið hentaði einfaldlega ekki Íþrótta- og tómstundaráði, sem þar hafði höfuðstöðvar sínar Skiljanlegt er að húsið hafi ekki þótt passa vel fyrir skrifstofur ÍTR. Hins vegar virðast borgarfulltrúar ekki hafa haft fyrir því að leggja hausinn í bleyti í smástund og hugsa um mögulega framtíðarnýtingu þess. Eða lá þeim kannski dálítið á að fara að óskum útrásarhetj- unnar, sem ólmur vildi kaupa húsið undir safn og fín samkvæmi? Mér finnst borðleggjandi að Björgólfur Thor afsali sér nú húsi langafa síns til íslensks almennings. Þvínæst er að finna húsinu hlutverk. Ágætt væri að leggja áherslu á líflega starfsemi sem laðaði til sín fjölda gesta. Miðborgin má alveg við því að í henni sjáist fólk. Ég bendi á hugmynd sem ég las raunar fyrst um á bloggi Egils Helgasonar í fyrra, um það leyti sem húsið var selt. Egill lagði til að við Fríkirkjuveg 11 yrði sett upp einhvers konar barnasafn með leikföngum og öðru skemmtilegu, en slík hús væru í flestum borgum. Þetta held ég væri ráð. Ég sé fyrir mér safn um leikmenningu íslenskra barna í hús- inu, en vísir að slíkri sýningu var settur upp á Árbæjarsafni í fyrra. Svo mætti hafa þar menningarmiðstöð barna, sérstakt barna- kaffihús og ýmis námskeið fyrir börn og for- eldra. Útivið mætti skoða að bjóða skemmti- leg leiktæki fyrir börnin. Í Hallargarðinum væri líka ráð að endurgera tjörnina góðu sem Jón H. Björnsson, hönnuður garðsins, gerði ráð fyrir að væri í honum. Á gömlum myndum má sjá að þar hafa borg- arbörn skemmt sér prýðilega forðum. Ég sé ekki að það sé neitt sérstaklega eftirsóknarvert að reisa safn í þessu húsi til minningar um genginn auð- mann. Hins vegar má segja að með sérstöku barnahúsi við Fríkirkjuveginn sé minning Thors Jensen heiðruð með vissum hætti. Enda mun hann hafa látið reisa húsið 1908 vegna löngunar til að búa vel að Margréti Þor- björgu, eiginkonu sinni og fjölmörgum börnum þeirra hjóna. elva@mbl.is Elva Björk Sverrisdóttir Pistill Húsið til barnanna Banna lán í erlendri mynt á Norðurlöndum FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is Á Norðurlöndunum er lagaumhverfi sveitarfé- laga með öðrum hætti en hér. Sérstaklega á það við um hvernig rekstri sveitarfélaga skuli háttað og þá með það að leiðarljósi að sporna gegn óráðsíu í rekstri og of mikilli skuldsetningu. Þá tekur lagaum- hverfið á Norðurlöndum einnig mið af því að stjórnsýslan er byggð upp með öðrum hætti. Sveitarstjórnar- stigið er undir svæða- og fylkis- stjórnsýslustigi þar sem stefnan inn- an hvers svæðis er mótuð. Annað upp á teningnum hér Þó lögin um rekstur sveitarfélaga hér á landi séu mikil að umfangi, og verið umdeild árum saman, þá er ekki í þeim að finna eins miklar skorður á því hvað kjörnir fulltrúar mega gera fyrir hönd sveitarfélaga og á Norðurlöndum. Í lögum í Danmörku, Svíþjóð og Noregi er til að mynda algjört bann við skuldsetningu sveitarfélaga í er- lendri mynt. Er það meðal annars gert þar sem áhættuþátturinn í slík- um lántökum er óviðkomandi ákvörðunum sveitarstjórnanna. Hvernig sem sveitarfélögin haga sínum málum, þá geta skuldir í er- lendri mynt alltaf valdið tjóni, meðal annars vegna vandamála sem geta komið upp erlendis. Sveitarfélög hér á landi standa nú höllum fæti, meðal annars vegna mikilla lántaka í erlendri mynt. Á ár- unum 2005 til 2007 jukust lántökur sveitarfélaga sem hlutfall af lands- framleiðslu úr 15 prósent í rúmlega 20 prósent. Ekki síst þau sem bera skuldir í erlendri mynt. Helst eru það dótturfélög, s.s. orkuveitur og hafnarsjóðir, sem skulda mikið í er- lendri mynt. Tekjutap sveitarfélaga, vegna afleiddra vandamála af hruni krónunnar og bankakerfisins, veldur þeim einnig miklum vanda. Seðla- banki Íslands spáði því í byrjun árs að tekjur sveitarfélaga gætu dregist saman um 15,5 prósent á þessu ári, en útlit er fyrir að samdrátturinn geti orðið meiri. Samkvæmt upplýsingum frá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga liggur enn ekki fyrir, samantekið, hversu miklar skuldirnar eru sem sveit- arfélögin ábyrgjast, þ.e. sem til- heyra bæði A- og B-hluta efnahags- reiknings. Stefnt er að því að upplýsingar um þær liggi fyrir seinna í þessari viku. Til A-hlutans teljast grunnstoðir þjónustu sveitarfélaga sem fjár- magnaðar eru með útsvarstekjum, en til B-hlutans telst starfsemi dótt- urfyrirtækja. Heildartap fjögurra stærstu sveit- arfélaga landsins, Reykjavíkur- borgar, Hafnarfjarðarbæjar, Kópa- vogs og Akureyrarbæjar, á síðasta ári nam um 100 milljörðum króna. Að stærstum hluta má rekja það til gengisfalls íslensku krónunnar og áhrifa þess á höfuðstól lána í er- lendri mynt. Til að mynda standa heildarskuldir Orkuveitu Reykjavík- ur, sem Reykjavíkurborg á tæplega 95 prósent hlut í, nú í rúmlega 230 milljörðum, en í lok árs 2007 voru skuldirnar rúmlega 100 milljarðar. Það gerir um 1,9 milljónir á hvern íbúa í Reykjavík. Morgunblaðið/RAX Framkvæmdir Mörg sveitarfélög fjármögnuðu framkvæmdir með lánum í erlendri mynt á liðnum árum. Þau reynast nú íbúum dýr. Sveitarfélög í Noregi, Danmörku og Svíþjóð mega ekki taka lán í erlendri mynt. Hér á landi hafa sveitarfélög tekið lán í erlendri mynt sem nú eru íþyngjandi. „Almennt held ég að það sé mikil þörf á að huga að mati og skoðun á því sem snýr að ákvarðanatöku sveitarfélaga,“ segir Trausti Fannar Valsson, lektor í stjórnsýslurétti við Há- skóla Íslands. Hann vinnur nú að doktorsritgerð á sviði sveit- arstjórnarréttar. Ekki sé síst tilefni til að skoða þessi mál, eftir uppgangstíma undanfar- inna ára, þar sem gríðarlega hröð uppbygging á fasteigna- markaði, einkum á höfuðborg- arsvæðinu, hefur reynst dýr- keypt. Meðal þess sem þurfi að skoða séu reglur um fjár- reiður og ráðstöfun eigna. „Það þarf að endurskoða ýmsa þætti er varða nýtingu eigna, skipulagsmál og upp- byggingu hverfa o.s.frv. Það er ekki hægt að fullyrða um ná- kvæmlega hvaða þættir það eru í lögunum sem þarf að breyta en ef fram fer heild- stæð og vönduð vinna á þessu sviði, þar sem almennar leik- reglur eru skýrðar, þá gæti það gert mikið gagn fyrir sveitarstjórnarstigið í heild,“ segir Trausti Fannar. Breytinga þörf?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.