Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.07.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚLÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is ENDURSKIPULAGNING ís- lenska bankakerfisins mun miða að því að laga það að breyttum veru- leika eftir hrunið í október sl. Bankarnir verða minni en áður, ódýrari í rekstri en með hærra eig- infjárhlutfall til þess að geta tekist á við langt erfiðleikatímabil. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur m.a. verið rætt um að tveir af mörgum sparisjóðum sem nú eru í vanda, Sparisjóður Keflavíkur (SPKef) og Byr Spari- sjóður, verði mögulega hluti af bönkunum. SPKef yrði hluti af Landsbankanum og Byr rynni sam- an við Íslandsbanka. Þá er einnig horft til þess að tveir af þremur bönkum verði sameinaðir í nánustu framtíð og þá helst Íslandsbanki og Landsbankinn undir nafni hins fyrrnefnda. Mest kapp er nú lagt á að samn- ingaviðræðum íslenska ríkisins og kröfuhafa gömlu bankanna ljúki fyrir 17. júlí. Þá mun ríkið leggja bönkunum til 280 milljarða í eigið fé, miðað við þær áætlanir sem nú liggja fyrir. Í upphafi var gert ráð fyrir 385 milljarða framlagi ríkisins en nú er gert ráð fyrir því að bank- arnir verði mun minni að umfangi. Eiginfjárhlutfall miðað við það verður 16 prósent, um helmingi meira en lágmarkshlutfallið er samkvæmt alþjóðlegum reglum sem FME hefur eftirlit með að sé framfylgt. Erlendu kröfuhafarnir hafa ekki sýnt því áhuga að leggja meira fé inn í endurreista banka. Þeir hafa tekið betur í að breyta skuldum gömlu íslensku bankanna í hlutafé í þeim nýju. Ekki er þó víst að kröfuhafarnir verði meðal eigenda í bönkunum þótt allt kapp sé lagt á að fá þá að sem eigendendur, ekki síst til þess að liðka fyrir aðgengi að lánamörkuðum erlendis. „Ég tel að það þurfi að stokka allt kerfið upp. Það liggur fyrir að forsendur fyrir fjármálakerfi eins og það var, hafa breyst í grundvall- aratriðum. Allur erlendi þátturinn, sem einnig var að deila kostnaði með innlendri starfsemi, er ekki fyrir hendi lengur og því blasir við allt annar veruleiki,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaup- þings. Hann segir það blasa við að fækka þurfi fjármálafyrirtækjum. „Ég sé ekki endilega fyrir mér að þetta [fækkun fjármálafyrirtækja] gerist fljótlega, heldur frekar yfir lengra tímabil. Mér finnst líklegt að mikil hagræðing muni eiga sér stað innan sparisjóðakerfisins einn- ig.“ Ljóst er að umhverfið sem fjár- málafyrirtæki hér á landi munu þurfa að búa við á næstu árum verður áhættumikið. Ekki síst vegna óvissunnar um hvernig fyr- irtækjum og heimilum mun ganga að greiða niður skuldir. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær telur Svein Harald Øygaard, fráfarandi seðla- bankastjóri, að kostnaður bankanna þurfi að minnka um þriðjung til þess að komast nærri því sem raunveruleg þörf er á. Nær útilokað er fyrir nýju bank- ana, Íslandsbanka, Landsbankann og Kaupþing, að komast hjá því að fækka starfsfólki enn meira en gert hefur verið. Um 3.000 manns starfa nú hjá bönkunum, 1.100 í Lands- bankanum en 900 í Íslandsbanka og Kaupþingi. Kerfið skreppur saman Morgunblaðið/Kristinn Kröfuhafar Stjórnvöld hafa lagt mikla áherslu á að fá erlenda kröfuhafa með í eigendahóp endurreistra banka til að opna á lánamöguleika erlendis. Kröfuhafarnir hafa ekki sýnt vilja til þess að leggja til eigið fé.  Endurreist bankakerfi verður lagað hratt að breyttum veruleika  Bankarnir verða minni en áður og tilbúnir til að takast á við langt erfiðleikatímabil  Horft til sameiningar sparisjóða og banka Í HNOTSKURN » Eiginfjárframlag ríkisinstil endurreistra banka verður að líkindum rúmlega 100 milljörðum minna en áætlað var. 280 milljarðar í stað 385. »Sameining Íslandsbankaog Byrs sparisjóðs kemur til greina og er til skoðunar. Líkur eru á að Íslandsbanki og Landsbanki verði samein- aðir. Bankarnir fá nýja efnahagsreikn- inga 17. júlí. Gert er ráð fyrir 16 prósenta eiginfjárhlutfalli. Rætt hefur verið um sameiningu spari- sjóða og banka. Kröfuhafar tregir til að leggja til fé. Finnur Sveinbjörnsson Svein Harald Øygaard Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís- landsbanka, segir mikla þörf á hagræðingu í bankakerfinu. Hún snúi þó ekki eingöngu að ríkis- bönkunum. ,,Ég er sammála seðla- bankastjóranum um mikilvægi þess að hagrætt verði í bankakerf- inu, það snýr þó að mínu áliti ekki eingöngu að ríkisbönkunum, held- ur einnig að sparisjóðakerfinu. Ís- landsbanki rekur hagkvæmasta útibúanet landsins og hefur lagt áherslu á hagkvæmni í rekstri.“ Hún segir ennfremur að forveri Íslandsbanka, Glitnir, hafi ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir í fyrra sem bankinn búi nú að. Starfs- mönnum hafi verið fækkað á ýms- um sviðum innan bankans. „Í byrj- un árs 2008 voru starfsmenn á Íslandi um 1.300, nú eru þeir um 890 sem er um þriðjungsfækkun. Starfsmannafjöldinn í dag er þannig sambærilegur við það sem hann var árið 2003. Þó svo að hag- kvæmur rekstur sé lykilatriði má hins vegar ekki gleyma því að bankarnir verða að vera í stakk búnir til að þjónusta viðskiptavini sína, bæði einstaklinga og fyrir- tæki. Verkefnin eru bæði fleiri og flóknari í dag en þau voru fyrir ári. Það þarf því að tryggja ákveðið jafnvægi þannig að stöðugt sé leit- að leiða til að gera rekstur bank- ans betri, huga að kostnaði en um leið tryggja góða og skilvirka þjón- ustu.“ Hagræðing mikilvæg í öllu bankakerfinu drjúgur hluti nýstofnaðra fyrirtækja síðasta árs. Fyrir þá sem ganga með hug- mynd í maganum hefur aðgangur að aðstoð við útfærslu hugmyndarinnar sjaldan verið betri auk þess sem framboð á styrkjum hefur margfald- ast frá fyrra ári. Hjá Nýsköpunarmiðstöð og einn- ig hjá Tækniþróunarsjóði Rannís hefur ramminn til styrkveitinga ver- ið breikkaður að einhverju leyti með FRÉTTASKÝRING Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur sigrunrosa@mbl.is MÁLTÆKIÐ gamla og góða um að neyðin kenni naktri konu að spinna virðist geyma sannleikskorn, ef litið er til þess að efnahagshrunið hefur lítið dregið úr stofnun nýrra fyr- irtækja á þessu ári. Samkvæmt tölum frá Fyrir- tækjaskrá hefur nýjum einkahluta- félögum fjölgað um nálægt 1.400 á fyrra helmingi þessa árs, á móti nær 1.500 á sama tíma í fyrra, sem hlýtur að koma nokkuð á óvart í árferði sem þessu. Sérstaklega ef horft er til þess að verulega hefur dregið úr stofnun eignarhaldsfélaga, sem voru þeim árangri að sprenging hefur orðið í fjölda umsókna. „Fyrir efnahagshrunið voru 12 fyrirtæki með 32 starfsmenn með aðstöðu á Frumkvöðlasetrinu á Keldnaholti. Nú eru 67 fyrirtæki með 167 starfsmenn með aðstöðu á átta setrum alls. Við höfum verið að opna dyrnar fyrir fleiri og fjölbreytt- ari hugmyndum sem eru þá jafnvel á byrjunarstigi, en margir sem komu til okkar í haust höfðu til dæmis unn- ið í bönkunum lengi og voru að leita leiða til að skapa sér vinnu,“ segir Rósa Signý Gísladóttir, markaðs- stjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Ís- lands. „Þó verður að líta til þess að þetta eru í sjálfu sér ekki störf að því leyti að sumir eru að vinna að við- skiptahugmyndinni og ekki farnir að fá inn tekjur.“ Fyrirtækin vinna að fjölbreyttum verkefnum á við hug- búnaðargerð, áhættustýringu og tækniþróun. Þá hefur vaxandi fjöldi nýtt sér endurgjaldslausa hand- leiðslu við hugmyndavinnu. Hjá Tækniþróunarsjóði Rannís þrefaldaðist fjöldi umsókna frá því sem var á síðasta ári en sjóðurinn hefur um 690 milljónir til úthlutunar þetta árið og var um 60% þeirrar fjárhæðar úthlutað í vor og því sem eftir stendur í haust, að sögn Sig- urðar Björnssonar, fagstjóra hjá Rannís. „Við erum oft á tíðum að út- hluta styrkjum til fleiri en eins árs,“ segir Sigurður, þannig að svigrúm fyrir nýja styrki er ekki jafn mikið og þessi upphæð gefur til kynna. Hann segir sjóðinn hafa brugðist við breyttu efnahagsástandi með því að bæta við styrkjaflokkum og víkka út skilgreiningar á þeim verkefnum sem eru styrkhæf. Margir vilja stofna fyrirtæki  Íslendinga virðist ekki skorta hugmyndir  Sprenging hefur orðið í fjölda þeirra sem leita sér aðstoðar við að koma viðskiptahugmyndum í framkvæmd Morgunblaðið/RAX Ferðamenn við Gullfoss Sótt var um fjölbreytta styrki hjá Tækniþróun- arsjóði og er nú einnig úthlutað til verkefna í ferðaþjónustu og arkitektúr. Dregið hefur úr stofnun eign- arhaldsfélaga og sprenging orðið í fjölda umsókna um styrki hjá Nýsköpunarmiðstöð. Aðstoð við útfærslu viðskiptahugmynda hefur sjaldan verið betri. EKKI verða gerðir nýir kjara- samningar á milli ríkisins og félaga innan Bandalags háskólamanna og Kennarasam- bands Íslands fyrr en í ágúst. Viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í hús- næði ríkissáttasemjara í gær, en samningarnir eiga þegar þar að kemur að byggjast á þeim ramma sem stöðugleikasáttmáli ríkisstjórn- arinnar og aðila vinnumarkaðarins skapar. Þessi frestun á samningsgerðinni var í raun praktísk lausn á því að nú er sumar og margir félagsmenn í sumarfríi, að sögn þeirra Eiríks Jónssonar, formanns KÍ, og Guð- laugar Kristjánsdóttur, formanns BHM. Til að gera samning þurfi víð- tæka kynningu og þá þurfi félags- menn að hafa ráðrúm til að kynna sér samninginn. Annars eigi hann á hættu að verða felldur, ekki síst þeg- ar launakjör eigi að breytast eins lít- ið og nú verði raunin. onundur@mbl.is Samið við KÍ og BHM í haust Guðlaug Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.