Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009 ✝ Guðbjartur ÞórirOddsson fæddist á Flateyri við Önund- arfjörð 20. mars 1925. Hann lést á heilbrigð- isstofnuninni á Hvammstanga 12. ágúst sl. Foreldrar hans voru Vilhelmína Jónsdóttir, f. í Tungu í Arnarfirði. 28.5. 1902, d. 5.7. 1979 og Oddur Valgeir Gísli Guðmundsson, f. í Stapadal í Tálkna- firði 9.1. 1902, d. 7.3. 1964. Systkini: Tómas Högni, f. 1924, Jón Hafsteinn, f. 1926, d. 2007, Áróra Bryndís, f. 1927, Guð- mundur Ármann, f. 1929, Sig- urbjörg, f. 1930, Guðrún Sigþrúður, f. 1931, Guðmunda Matthildur, f. 1933, Ingunn, f. 1935, Benjamín Gunnar, f. 1936, d. 1995 og Friðrik Svanur, f. 1937. Guðbjartur kvæntist árið 1948 Kristínu Ólafsdóttur matráðskonu, og bjuggu þau fyrstu árin í Bolung- arvík, en fluttust síðan til Reykja- víkur. Guðbjartur og Kristín skildu 1975. Börn þeirra: 1) Vilhelm Val- geir, f. 1948, m. Guðrún Ragnarsd. Synir a) Oddur Þór, m. Anett Blischke, b) Vilhelm, m. Sólveig Hulda Benjamínsd. og c) Fannar. 2) Ólöf María, f. 1950, m. Jónas Pétur Sigurðsson. Dætur a) Kristín, m. Guðmundur Sigurðsson, og b) Mar- grét, m. Karl Grétar Karlsson. 3) Svanur, f. 1951, m. Ólöf Magnúsd. Dætur a) Katrín Edda, m. Björn, f. Björnsson, b) Sunna Rós, m. Axel Helgason., c) Birta Ósk, m. Sigfinn- ur Gunnarsson., og d) Bylgja Rún, m. Andri Örn Arnarson. 4) Þröstur, f. 1952, m. Patiwat Dipien. 5) Þrí- burar, f. 19.9. 1953, létust sama dag. 6) Guðrún, f. 1955, m. Bjarni Albertsson. Börn Guðbjartur Atli, m. Anna Grabowska, Guðjón Páll, Auður Erla, og Krist- inn Snær. 7) Unnur, f. 1956, m. Garðar Benediktsson. Börn: a) Hálfdán Ólafur, m. Arndís Pétursdóttir, b) Benedikt Ágúst, c) Branddís Jóna, m. Þorvaldur Ó. Karls- son, og d) Guðlaug Björg, m. Jónatan I. Jónsson. 8) Kristín Þóra, f. 1960, m. Sig- urður S. Jónsson. Sonur Stefán Þór. 9) Birna, f. 1962, m. Sölvi Rúnar Sólbergsson. Synir a) Snævar Sölvi, b) Tómas Rúnar, m. Rebekka Líf Karlsd., og c) Bergþór Örn. Dóttir Guðbjartar og Önnu Ágústsdóttur er Bára, f. 1962, m. Jón Haukdal Kristjánsson. Synir Kristján Haukdal, og Frímann Haukdal. Dóttir Guðbjartar og Oddnýjar Sigurðardóttur er Sif Ásthildur, f. 1972. Börn Andreas Máni og Anna Marín. Stjúpsonur Guðbjartar er Örn Guðjónsson, f. 1945 m. Sigurósk Garðarsd. Börn Guðjón Páll, Garðar Smári m. Nína Björg Sveinsd., og Leo Jarl, m. Sveiney Bjarnad. Langafabörnin eru 28. Á 19. aldursári fluttist Guð- bjartur til Keflavíkur og stundaði þar sjómennsku þar til hann hóf nám í málaraiðn hjá Magnúsi Sæ- mundssyni í Reykjavík 1946. Eftir það vann hann allan sinn starfs- aldur sem málari víða um land, þótti hann góður fagmaður og var annálaður fyrir snyrtimennsku. Guðbjartur var mjög listfengur og eru til eftir hann mörg málverk og skreytingar. Guðbjartur dvaldist síðustu ellefu ár ævinnar á Heil- brigðisstofnunni á Hvammstanga. Útför Guðbjartar fer fram frá Hvammstangakirkju í dag, 21. ágúst, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku pabbi. Það er ávallt sárt að kveðja en þetta er víst lífsins gangur. Þó að þú hafir verið veikur síðustu ár með þennan ósanngjarna sjúkdóm þá varst þú ávallt ofarlega í huga mér. Margar góðar minningar lifa. Þú varst góðmennskan uppmáluð og ávalt kátur og glaður. Við áttum margar góðar stundir saman. Það er gaman að því að margar af mínum eftirminnilegustu minningum úr barnæsku tengjast mat á einn eða annan hátt, enda varstu mikill sæl- keri. Að vakna upp á köldum og dimmum vetrarmorgnum við ilminn af heitu Melroses-tei með sítrónu og ristuðu brauði með osti og appelsín- umarmelaði eða ilminum af sunnu- dagssteikinni vekur hjá mér bros en einnig tár á vanga. Við fórum í marga bíltúrana saman þar sem keyrt var um höfuðborgarsvæðið í leit að ein- hverju gómsætu að narta í. Gamli Hressingarskálinn og bleikur mjólk- urhristingur í glasi, Kentucky kjúk- lingabitar úti í hrauni, eða litla sjopp- an á Granda og kók í gleri og prinsinn eins og þú kallaðir svo gjarna voru góðir vinir okkar í gamla daga. Einn besti tíminn minn með þér var þegar ég fékk að vinna með þér í málning- arvinnunni. Sumrin þegar ég var 14 og 15 ára. Heppnari gat ég ekki verið, bæði að fá að eyða tíma með þér en einnig að læra af málarameistaran- um sjálfum. Þú varst vel þekktur um borg og bæ fyrir einstök vinnubrögð og prúðmennsku í starfi. Þessi sumur reyndust mér afar dýrmætt vega- nesti út í lífið. Af þér lærði ég svo margt og upplifði. Ein mesta upplif- unin var þegar þú varst fenginn til að flikka upp á gömlu kirkjuna á Stað í Hrútafirði. Ég var þá 15 ára og ný- komin með rútunni úr Reykjavík til að vinna með þér það sumar. Ég man enn þá ótrúlegu tilfinningu sem ég fékk þegar ég gekk inn í kirkjuna. Upplifunin var töfrum líkust. Og þetta sumar gerðum við kirkjuna fal- legri, máluðum veggi, lökkuðum glugga og kirkjubekki og fylltum loftið af glitrandi stjörnum og falleg- um skýjum. Vegna vinnu þinnar varstu mikið að heiman. En það var alltaf jafn ljúft að fá þig heim. Ég man hvað það var gaman að heyra marrið í mölinni á innkeyrslunni á Þinghólsbrautinni þegar þú keyrðir í hlað. Þá tók hjartað mitt kipp af ein- skærri gleði, pabbi var kominn. En dagarnir og æskuárin liðu hratt og áður en ég vissi af varstu horfinn á braut. Elsku pabbi, þú hefur nú fengið hvíldina þína. Ég veit að þú ert í góð- um höndum og þér líður vel. Ég efast um að þú sitjir auðum höndum í ríki Guðs. Þú ert eflaust kominn í hvítu málningarsmekkbuxurnar þínar og ert nú þegar byrjaður að mála feg- urstu stjörnur himinhvolfsins. Pabbi minn, takk fyrir þann dýrmæta tíma sem ég fékk að hafa þig. Hann mun varðveitast í hjarta mínu og huga alla mína daga. Guð geymi þig og varð- veiti. Þín dóttir Sif. Hugur minn reikar um liðnar stundir þegar ég minnist stjúppabba míns, hans Bjarts, en ég kallaði hann alltaf Bjart. Ég var þriggja ára þegar þú og mamma tóku sama og þú tókst mér strax eins og ég væri þinn sonur. Þú varst elskulegur og góður við mína drengi eins og þín eigin barnabörn enda kölluðu þeir þig afa. Bjartur var mjög vandvirkur og góður málari, listrænn með afbrigð- um og málaði margar fallegar mynd- ir. Bjartur var mikill húmoristi, alltaf í góðu skapi, sagði skemmtilegar sög- ur og færði þær í léttan búning. Minningar mínar um þig, Bjartur minn, hrúgast upp í huga mínum. Af mörgu er að taka en í fáum orðum get ég ekki talið það allt upp en geymi í huga mínum. Ég var aðeins 6 ára þegar ég fékk að mála fyrst með þér. Þá kom ég til þín þar sem þú varst að vinna og spurði hvort ég mætti ekki mála. „Langar þig til þess Öddi minn“ sagðir þú og lést mig fá spýtu, pensil og málningu í dós og sagðir mér að mála spýtuna. Fórst svo að huga að þínum verkum og þegar þú Guðbjartur Þórir Oddsson ✝ Ragnheiður Egils-dóttir læknaritari fæddist í Reykjavík 20. júlí 1946. Hún lést á heimli sínu 12. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Egill Gestsson trygg- ingamiðlari, f. í Reykjavík 6.4. 1916, d. 1.11. 1987, og Arn- leif Steinunn Hösk- uldsdóttir húsmóðir, frá Djúpavogi, f. 5.2. 1915, d. 7. 12. 1986. Systkini Ragnheiðar eru: Örn, f. 15.11. 1937, Höskuldur, f. 18.1. 1943, d. 26.3. 1999 og Mar- grét Þórdís, f. 1.10. 1955, d. 19.6. 2005. Hinn 30. nóvember 1963 giftist Ragnheiður Lárusi Svanssyni skó- smið, f. 18.11. 1942. Foreldrar hans eru Svanur Lárusson, f. 28.5. 1913, d. 3.10. 1995, og Gunnþórunn I. R. Stefánsdóttir, f. 11.3. 1915, d. 23.5. 1961. Systkini Lárusar eru Sonja og Halldór. Ragnheiður og Lárus eign- uðust þrjá syni og þeir eru: 1) Egill framkvæmdastjóri, f. 9.6. 1964, í sambúð með Rúnu Pétursdóttur nuddara, f. 23.7. 1965, þau eiga þrjú börn, Jökul Alexander, f. 17.3. 1989, Ragnheiði Þóru, f. 7.11. 1991, og Heklu, f. 22.2. 1993. 2) Hösk- uldur Örn margmiðlunarfræðingur og tónlistarmaður, f. 30.11. 1969, sonur hans er Sævar Leon, f. 21.11. 1996. 3) Svanur Sævar húsvörður, f. 24.7. 1972, kvæntur Ragnhildi Erlu Hjart- ardóttur, f. 6.11. 1973, dóttir þeirra Margrét Rós, f. 11.7. 1998. Ragnheiður ólst upp í Reykjavík og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskól- anum við Lindargötu. Árið 1971 fluttust Ragnheiður og Lárus á Rangárvelli og seinna hóf Ragnheið- ur störf við mötu- neyti Hagvirkis ásamt því að vera trúnaðarmaður starfsmanna í Hrauneyjafossvirkjun, við Sult- artanga og Kvíslaveitu 1979-86, en það ár fluttust þau aftur til Reykja- víkur þar sem Ragnheiður starfaði sem læknaritari við Krabbameins- deild Landspítalans 1986-94 en flutti þá til Breiðdalsvíkur. Þar var hún forstöðumaður dagvistar aldr- aðra í tæpt ár en tók við starfi læknaritara við Heilsugæslustöð Breiðdalsvíkur. Einnig tók hún við starfi verslunarstjóra Kaupfélags Stöðfirðinga á Breiðdalsvík ásamt því að sinna formennsku Lions- klúbbsins Svans á Breiðdalsvík um skeið. Árið 2005 fluttust Ragnheið- ur og Lárus aftur til Hellu á Rangárvöllum. Útför Ragnheiðar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 21. ágúst, kl. 15. Þá hefur hún Raggey mín kvatt þennan heim. Hún var ein fjögurra barna þeirra elskulegu sæmdarhjóna Arnleifar Höskuldsdóttur og Egils Gestssonar en allt frá því að við hjón- in kynntumst þeim voru þau miklir vinir okkar. Raggey er sú þriðja þeirra systkina sem fellur frá en öll hafa þau fallið frá langt um aldur fram. Hún hefur verið hluti af minni fjöl- skyldu í hartnær 50 ár eða frá því að hún giftist Lárusi bróður mínum. Okkar samband hefur einkennst af hlýju og vinskap sem aldrei hefur borið skugga á og í dag minnist ég allra samverustunda okkar bæði í gleði og sorg. Ég minnist ferða í Bolholt og á Hvolsvöll þegar börnin okkar voru ung og Raggey mína munaði ekki um að bæta við sig börnum í pössun ef á þurfti að halda. Ég minnist afmæla, ferminga, brúðkaupa, útskrifta á báða bóga en þar var Raggey oftar en ekki hrókur alls fagnaðar. Ég minnist heimsókna til þeirra Lárusar bæði á Breiðdalsvík þar sem þau voru í tíu ár og á Hellu þar sem þau bjuggu síðustu árin. Það var alltaf gaman að hitta hana mágkonu mína því hún hafði mjög skemmtilegan húmor, sagði t.d. alltaf „hvað segirðu gamla mín“ þó ég væri aðeins sex árum eldri en hún. En und- ir skelinni var hún viðkvæmi „krabb- inn“ sem hún sýndi þegar eitthvað bjátaði á hjá ættingjum og vinum. Ég vil þakka Raggey minni fyrir að taka pabba eins vel og hún gerði er hún tók hann inn á heimili sitt á fyrstu búskaparárum þeirra Lárusar. Það var þó ekki alltaf létt því það komu tímabil í lífi hans sem ekki var alltaf létt að þola. Ég ætla rétt að vona að þegar minn tími kemur þá standi Raggey hinum megin og kasti á mig gamalkunnu hlýlegu kveðjunni. „Hvað segirðu gamla mín“. Að kistu þinni kom ég hljóð og kyssti vanga þinn. Þú varst mér ávallt undur góð það yljar huga minn. Farðu vel til hærri heima heilar þakkir vina kær. Minning þína munum geyma meðan hjarta í brjósti slær. (Höf. ókunnur.) Elsku Lárus bróðir, við Þórir og fjölskylda okkar vottum þér, börnum þínum og fjölskyldum þeirra samúð okkar. Sonja E. Svansdóttir. Hún nabba mín hefur kvatt okkur, stríðinu er lokið. Baráttan stóð ekki lengi enda á brattann að sækja. Hún mætti sínum örlögum af hugrekki og hefur eflaust undir lokin hlakkað til að hitta móttökunefndina sem beið hennar. Og þvílík móttökunefnd, for- eldrar hennar og bæði systkini sem létust öll fyrir aldur fram rétt eins og hún nabba mín. Hennar verður sárt saknað af minni fjölskyldu. Ég man ekki eftir öðru en að Ragn- heiður hafi verið stór hluti af okkar fjölskyldulífi. Þessi föðursystir mín sem eignaði sér mig að miklu leyti eingöngu fyrir nafnið, að ég held. Á hverjum afmælisdegi þegar ég var barn sendi hún skeyti og þegar ég varð 16 ára gerði hún enn betur og sendi mér 16 rauðar rósir. Hún sýndi sína væntumþykju bæði í orði og verki. Þau voru ákaflega náin systkin, pabbi og hún, enda bara þrjú ár á milli þeirra. Þegar hún bjó á Hellu hér áð- ur fyrr og seinna í Reykjavík, komu hún og Lalli oft í heimsókn heim á Gljúfraborg. Þá spurði hún mann frétta, skoðaði einkunnaspjöldin og ekki vantaði að hún sýndi stoltið. Það var ekki amalegt að eiga frænku sem hafði svona mikinn áhuga á manni. Þegar ég var orðinn unglingur fluttu þau Lalli austur á Breiðdalsvík, í mína gömlu heimabyggð og þá kynnt- umst við miklu betur. Og þá kom í ljós að við áttum fleira sameiginlegt en nafnið. Við gátum spjallað um allt, hún reyndist mér góður vinur í erf- iðleikum og flækjustigi unglingsár- anna og ég átti hana ávallt vísa. Ég gat líka, eins og aðrir, treyst því að hún segði hlutina eins og hún sá þá. Ef maður þurfti að fá hreinskilið álit, þá talaði maður við nöbbu. Það var svo gaman að tala við hana um ömmu og afa, sem dóu þegar ég var barn og ég á því fáar minningar um þau. Hún sagði mér margar sögur af þeim og æskuárum þeirra systkina og eru þessar sögur mér ákaflega verðmætar. Nafna var mikill karakt- er, vinamörg, hafði notalega og hlýja nærveru, frábæran húmor og ein- staklega smitandi hlátur, rétt eins og pabbi hennar, Egill afi. Við héldum alltaf sambandi sím- leiðis og hittumst reglulega. Og sím- tölin voru ófá og þegar Guðjón sá hver var að hringja vissi hann að ég yrði ekki til viðtals við aðra næstu tvo tímana eða svo. Eftir að strákarnir mínir fæddust fylgdist hún vel með þeim og alltaf var sama viðkvæðið þegar maður var að segja henni ein- hverjar sögur af þeim, „elsku litlu karlarnir“. Það er synd að þeir fái ekki að kynnast frænku sinni betur. Ég verð því dugleg að segja þeim frá henni þegar þeir eldast. Þegar ég sagði þeim að nú væri Ragnheiður frænka dáin, spurði Egill Helgi hvort hún væri þá hjá guði og þegar ég svaraði því játandi sagði Stefán Bogi „þá er hún hjá afa Hössa“ og það eru orð að sönnu. Síðustu mánuðir, eftir að heilsunni fór að hraka eru búnir að vera erfiðir og sérstaklega síðustu vikur. Ragn- heiður átti því láni að fagna að eiga einstakan eiginmann og fjölskyldu sem studdu hana í veikindunum og það ber að þakka. Þeim öllum sendi ég hlýjar samúðarkveðjur. Einnig vil ég senda Erni, eftirlifandi bróður Ragnheiðar, hlýjar samúðarkveðjur. Hvíl í friði, elsku nafna mín. Ragnheiður Arna Höskuldsdóttir. Ragnheiður Egilsdóttir ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓREY ERNA SIGVALDADÓTTIR, Reiðvaði 1, Reykjavík, andaðist að morgni miðvikudagsins 19. ágúst. Jarðarför verður auglýst síðar. Ægir Jónsson, Sigvaldi Ægisson, Elísabet Reinhardsdóttir, Jón Ægisson, Svanborg Þ. Einarsdóttir, Hrönn Ægisdóttir, Guðmann Reynir Hilmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HAFDÍS SIGDÓRSDÓTTIR, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 16. ágúst. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 26. ágúst kl. 13.00. Jósep Berent Gestsson, Róbert Antonsson, Jakobína Helga Jósepsdóttir, Aralíus Gestur Jósepsson, Bergsveinn Eyland Jósepsson, Anna Jóna Jósepsdóttir, Davíð Þór Jósepsson, Sandra Björk Marteinsdóttir, Eva Björk Kristinsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.