Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 1
Hulda Gunn- laugsdóttir stýrði hópi sem skilaði aðgerða- áætlun um nið- urskurð í heil- brigðiskerfinu til heilbrigðisráðuneytisins. Hún er forstjóri Landspítalans og fór í ársleyfi 1. október. Starfar þann tíma sem verkefnastjóri fyrir Óslóarsjúkrahúsið. Björn Zoëga er forstjóri í hennar stað. Skilaði inn áætlun M Á N U D A G U R 5. O K T Ó B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 270. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «BIRGIR SIGURÐSSON VERKIN TALA SJÁLF FYRIR HANN ÞEGAR ÞAU BIRTAST «TÍSKUVIKAN Í PARÍS Stálskálar á höfði næsta vor og sumar Arnar Grétarsson segir að sigur Breiðabliks á Fram í úrslitaleik bik- arkeppninnar á laugardaginn sé sín langstærsta stund á löngum ferli í fótboltanum. ÍÞRÓTTIR Langstærsta stund Arnars Akureyringar mæta með hörkulið til leiks á Íslandsmóti karla í hand- bolta í vetur. Þeir hafa fengið tvo reynda jaxla í hópinn sem er bara skipaður leikmönnum að norðan. Eintómir norðan- menn í liðinu Kvennalið KR og karlalið Grinda- víkur kræktu í fyrstu bikarana á nýju keppnistímabili í körfubolt- anum með því að vinna úrslitaleiki í Laugardalshöllinni í gær. KR og Grindavík kræktu í bikarana Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is SÁ flati niðurskurður sem stefnt er að á Landspítalanum er hættulegur, að mati Huldu Gunnlaugsdóttur, for- stjóra Landspítalans. „Við höfum að- eins einn slíkan spítala á Íslandi, sem er öryggisnet fyrir allt landið. Þess vegna verður fyrst að leita allra leiða til að ná heildarhagræðingu í heil- brigðiskerfinu.“ Hún segist alltaf hafa verið á móti flötum niðurskurði. „Það er auðveld- asta leiðin, en þá er ekki tekið á vandanum. Það þarf að gera stærri breytingar á þjónustu spítalanna og auðvitað er Landspítalinn þar ekki undanskilinn. En ef ráðist er í upp- sagnir á 450-500 manns á Landspít- alanum, þá hefur það áhrif á örygg- isnetið. Samkvæmt nýlegri úttekt erum við með þriðju mestu gæðin í heilbrigðisþjónustu á OECD-svæð- inu, og eflaust höldum við því ekki, en ég vil að þjónustan sé nógu góð. Við vitum að það verður ekki bara niðurskurður á næsta ári, heldur líka árin 2011 og 2012. Þess vegna verður að gera það sem rétt er og hag- kvæmt.“ Hulda hefur skilað af sér aðgerða- áætlun til heilbrigðisráðuneytisins, sem hún vann ásamt fleiri sérfræð- ingum. „Þar er nákvæm heildarverk- efnaáætlun fyrir árið 2010 með aðal- áherslu á Kragasjúkrahúsin, sem unnin var í samráði við stjórnendur þar. En það þarf að fara yfir alla starfsemina, spítala og heilsugæslu- stöðvar, og einnig stjórnsýsluna, heilbrigðisráðuneytið, landlæknis- embættið, lýðheilsustöð og sérfræði- þjónustuna. Það þarf að búa til að- gerðaáætlun til þriggja ára um það hvernig mæta má þeim fjárhagslega niðurskurði sem ráðast þarf í vegna kreppunnar,“ segir Hulda. Í áætluninni sem verkefnahópur- inn hefur skilað af sér, og bar yf- irskriftina „Frá orði til athafna“, var miðað við að ráðherra gæti tekið ákvarðanir strax 9. október. | 11 Flatur niðurskurður á Landspítala hættulegur Telur uppsagnir á 450-500 manns á Landspítalanum skerða öryggisnetið VALUR sigraði Breiðablik í úrslitaleiknum í bikarkeppni kvenna í fótbolta í gær, 5:1, en staðan var 1:1 eftir venjulegan leiktíma. Valskonur skoruðu fjögur mörk í framlengingunni og hetja þeirra var Laufey Ólafsdóttir sem tók fram skóna á ný á miðju sumri eftir fjögurra ára hlé. | Íþróttir VALSKONUR BIKARMEISTARAR Í ELLEFTA SINN Morgunblaðið/Golli  SKRIFAÐ var undir lánssamning milli Póllands og Íslands í gær. Lánið nemur 630 milljónum pólskra slota, eða um 25 milljörðum ís- lenskra króna. Útborganir lánsins eru háðar endurskoðun Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins – og fæst því ekkert greitt fyrr en lausn finnst á Icesave-deilunni. Íslensk sendi- nefnd fundaði jafnframt með Rúss- um í gær um mögulegt lán, og munu fundir halda áfram í dag. Þá hitti Steingrímur J. Sigfússon Alist- air Darling, fjármálaráðherra Breta, og ræddi óformlega við hann um Icesave-málið. Hann hittir fjár- málaráðherra Hollands í dag vegna sama máls. »2 Fáum lán frá Póllandi og rætt um lán frá Rússum  BÆTA þarf við 15-20 störfum í þörungaverk- smiðjunni á Reykhólum gangi áætlanir um vinnslu mjöls úr þara og þangi eftir. Þör- ungaverk- smiðjan hefur nú keypt nýtt skip, Fossá ÞH, sem mun leysa gömlu Karlseyna af hólmi. Tilraunasending fer fljótlega ut- an til Frakklands, en Frakkar eru langt komnir með að vinna nátt- úrulegt sýklalyf úr þara. »7 Frakkar vinna sýklalyf úr þara frá Reykhólum  INDRIÐI H. Þorláksson, aðstoð- armaður fjármálaráðherra, lagði fram minnisblað á fundi efnahags- og skattanefndar Alþingis í mars sl. sem þáverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. Á minnisblaðinu lagði hann til að frumvarp um fjárfestingarsamning við álver Norðuráls í Helguvík, yrði endurskoðað og skattur á fyr- irtækið aukinn. Samningar vegna Alcoa-Fjarðaráls yrðu einnig end- urskoðaðir í sama tilgangi. »2 Indriði lagði til skatta- hækkun á álver í mars

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.