Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 2009 08:00 Morgunverður 08:30 Fundur hefst Jóhannes Geir Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri ALS, kynnir skýrslu Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri, fjallar um málefnið. Umræður 09:30 Fundarlok Fundarstjóri: Steinunn Valdís Óskarsdóttir, alþingismaður Dagskrá: Í nýrri skýrslu AtvinnuLífsins Skóla er fjallað um raforku- verð á Íslandi 1997 – 2008 og áhrif aukinnar raforkusölu til orkufreks iðnaðar á raforkuverð á almennum markaði. Skýrslan verður kynnt og rædd á fundinum. Morgunverðarfundur miðvikudaginn 7. október Háteig, Grand Hótel Reykjavík Raforkuverð til stóriðju og til almennings Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis, en nauðsynlegt er að skrá þátttöku í síma 588 4430 eða með tölvupósti til the@samorka.is Jóhannes Geir Sigurgeirsson Jón Þorvaldur Heiðarsson Steinunn Valdís Óskarsdóttir          KVIKMYNDATÓNLIST JOHN WILLIAMS John Williams hefur samið tónlist við fleiri ódauðlegar bíómyndir en nokkur annar fyrr eða síðar og hefur hann verið tilnefndur til alls 45 Óskarsverðlauna. Tónlist hans er oft samin fyrir stóra og glæsilega sinfóníuhljómsveit þar sem spennan nýtur sín til fulls. Þetta eru tónleikar sem engir áhugamenn um kvikmyndir og góða tónlist mega láta fram hjá sér fara! Tryggðu þér miða í síma 545 2500 eða á www.sinfonia.is 22.10.09 „Megi mátturinn vera með þér“ Obi-Wan Kenobi, Star Wars Fim. 22.10.09 » 19:30 Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is FLUGFÉLAGIÐ Ernir hefur fjölg- að ferðum á Sauðárkrók í vetur vegna aukinnar eftirspurnar. Þó að einhver fækkun sé jafnan á farþeg- um yfir sumartímann þá eykst eft- irspurnin verulega yfir veturinn. Ásgeir Örn Þorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri félagsins, segir að síð- asta vetur hafi margsinnis myndast biðlistar eftir flugi kringum helgar, en Ernir hafa bætt við ferðum á föstudegi og mánudegi. Er nú flogið alla daga norður nema á laug- ardögum. Þá hefur félagið einnig ákveðið að bjóða upp á fríar rútuferðir á milli Siglufjarðar og Sauðárkróks í tengslum við áætlunarflugið. Ásgeir segir að með þessu sé verið að gera Siglfirðingum kleift að fljúga á sama verði og Sauðárkróksbúar og nær- sveitamenn, án þess að þurfa að leggja út í kostnað við ferðir á flug- völlinn, sem taka um klukkutíma. Að sögn Ásgeirs hafa Siglfirðingar ver- ið 7-8% farþega á Sauðárkrók, en Ernir flytja þangað um 700 manns á mánuði yfir vetrartímann. Áætl- unarflug þangað hófst í byrjun árs 2007 og hefur aukist jafnt og þétt síðan. Félagið sinnir einnig áætl- unarflugi á Höfn í Hornafirði, Bíldu- dal og Gjögur og segir Ásgeir Örn að farþegum á þessa staði hafi einnig fjölgað, sér í lagi á Hornafjörð og Bíldudal, en að mestu leyti er flogið með vörur til Gjögurs. Ríkissjóður styrkir áætlunarflug á þessa staði, með samningi sem gerður var til þriggja ára árið 2007, með möguleika á framlengingu í tví- gang til tveggja ára. Ásgeir Örn seg- ist reikna með að þessi samningur verði framlengdur. Auk áætlunarflugsins sinna Ernir leiguflugi hér innanlands og milli landa, ásamt útsýnis- og ljósmynda- flugi með ferðamenn. Þá er félagið með samning við ríkið um sjúkraflug til Norðurlanda með sjúklinga sem þurfa að fara í bráðaaðgerðir. Umsvifin hafa aukist Ernir eru með sex flugvélar í rekstri, þar af tvær 19 sæta skrúfu- þotur. Starfsmenn félagsins eru um 40 yfir sumartímann en kringum 35 yfir veturinn. Hafa umsvifin aukist töluvert eftir að félagið fór út í áætl- unarflugið. „Við horfum bjartsýn fram á veg- inn og látum kreppuna ekkert á okk- ur fá, það þýðir ekkert annað,“ segir Ásgeir Örn. Ernir hækka flugið  Fjölga flugferðum á Sauðárkrók til að mæta stóraukinni eftirspurn yfir veturinn  Fríar rútuferðir frá Siglufirði Morgunblaðið/Árni Sæberg Ernir Flugfélagið hefur yfir sex vélum að ráða, þar á meðal tveimur 19 sæta skrúfuþotum. Farþegum hefur fjölgað á alla áfangastaði félagsins. Í HNOTSKURN »Flugfélagið Ernir varstofnað árið 1970 af Herði Guðmundssyni flugstjóra, sem enn stýrir félaginu. »Vegna breytinga í innan-landsfluginu ákváðu stjórnendur félagsins að hætta rekstri árið 1995 og flugvél- arnar voru seldar. Starfsemin hófst svo að nýju árið 2003 með nýjum áherslum. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.