Saga - 1954, Page 10

Saga - 1954, Page 10
4 cordis), og í þriðja lagi skyldi hann undirgang- ast að inna af hendi þau yfirbótarverk, sem skriftafaðir setti honum (poenitentia), og síð- an átti aðili auðvitað að efna loforð sitt þar um, nema ómöguleiki bannaði, sem honum yrði ekki sök á gefin. Þegar brotamaður gekk til skrifta, hvort sem um forboð eða bann var að tefla eða ekki, þá setti skriftafaðir honum ýmis- konar viðurlög eftir eðli brota og hæfi hans og getu. Viðurlögin voru oft fólgin í fégjöldum til biskups eða kirkju eða til guðsþakka annars (fátækra o. s. frv.). Oft var aðilja gert að fasta tiltekinn tíma tiltekna daga, lesa tilteknar bænir tiltekna tíma, svo sem faðir vor (pater noster), Maríuvers (ave Maria) o. s. frv. Stundum voru yfirbætur fólgnar í sjálfspyndingum, svo sem því að ganga berfættur tiltekna tíma á tiltekn- um stöðum, bera tiltekin klæði, liggja í svo eða svo hörðu rúmi o. s. frv. Sá, er fellt hafði á sig páfabann, varð að fara á fund páfa eða þess, sem umboð hafði til að afleysa hann. En auk þess mátti vera, að skriftafaðir setti brotleg- um manni þá skrift að ganga til einhvers staðar innanlands eða utan, sem talinn var heilagur eða annars þess verður. Allar miðuðu þessar aðgerðir kirkjuvaldsins til afplánunar brotanna og til að mýkja og bæta hug brotamanns, með öðrum orðum: til undirbúnings undir annað líf. Það var, svo sem sagt var, skylda kirkjuvalds- ins að skila öllum, svo sem mögulegt var, sálu- hólpnum inn í annað líf, eða öllu heldur svo, að þeir þyrftu sem stytztan tíma að vera í hreins- unarstaðnum (in purgatorio),1) áður en þeim yrði sælustaðarins auðið. 1) Hreinsunareldur er rangnefni.

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.