Saga - 1954, Page 16

Saga - 1954, Page 16
10 sem Iliansveg fara (íslenzk alfræði I. 15). Leið- in um Frakkland mun vera sá vegur, sem í ís- lenzkum heimildum er nefnd „vestri leið“ og Kári Sölmundarson er sagður hafa farið bæði suður og aftur norður, sbr. Njálssögu 159. kap., andstætt hinni leiðinni, yfir St. Bernhard, Sviss og Þýzkaland, sem nefnd er „eystri leið“ og Flosi er sagður hafa farið norður aftur frá Rómaborg. Flestir fslendingar hafa farið ina „eystri leið“, því að þeir hafa farið suður úr Noiægi. f Leiðarvísi þeim, sem áður getur, er þeirri leið einni lýst allrækilega, og bendir það til þess, sem vita mátti, að íslenzkir Rómferlar hafi hana langmest farið. Gert er ráð fyrir því, að farið sé úr Noregi. Þaðan eru tvær leiðir nefnd- ar. Vestri leiðin er til Deventer eða Utrecht í Hollandi, þar sem menn taki staf og skreppu og vígslu til Rómaferðar. Vígslu tóku pílagrímar reyndar enga, en þeir hlutu blessun prestvígðs manns, beðið var fyrir þeim og ferðabæn var þeim gefin. Frá Deventer eða Utrecht skyldi svo fara um Köln til Mainz. Og mætast þar leiðir þeirra, sem þessa leið fóru, og þeirra, sem hina leiðina fóru úr Noregi og nefnd er í Leiðarvísi. Liggur hún úr Noregi til Álaborgar. Þaðan fóru menn um Vebjörg — Heiðabæ — Slesvík — Itze- hoe til Stade í Hannover. Þaðan mátti tvær leiðir fara til Mainz. Önnur, in vestri, lá um Verden — Nienburg — Minden — Paderborn til Mainz. Hin, in eystri, lá um Hildesheim og fleiri minni bæi til Mainz. Þaðan lá leiðin svo um Speier — Strassburg til Basel (Baslaraborg) 1 Svisslandi. Þaðan var farið um Solothurn til Vevey norðanvert við Genfervatn, sem nefnt er

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.