Saga - 1954, Side 52

Saga - 1954, Side 52
Galdra-Imba, Á áratugnum 1630—40 fæddist þeim hjón- unum séra Jóni Gunnarssyni og Helgu Erlends- dóttur prests að Felli í Sléttuhlíð Guðmunds- sonar dóttir, sem hlaut skírnarnafnið Ingi- björg og þekktust hefur orðið undir nafninu Galdra-Imba. Var séra Jón prestur í Hofstaða- þingum í Skagafirði (Flugumýrar- og Hofstaða- sóknum) frá því um 1620 þangað til 1636 eða lengur og bjó þá á Þverá, en síðan var hann prestur að Tjörn í Svarfaðardal, unz hann lét af prestskap 1664. Hlýtur Ingibjörg því að vera fædd á öðrum hvorum þessum stað. Varla hefur nokkur kona á seytjándu öld orðið að þola, sennilega alsaklaus, jafnsmánarlega meðferð á nafni sínu og minningu og þessi prestsdóttir úr Svarfaðardal. Mun hér á eftir verða leitazt við í stuttu máli að rétta hlut hennar eftir þeim litlu gögnum, sem fyrir liggja, og reynt að bregða örlítilli birtu yfir það myrkur rógs og vansæmdar, sem umvafið hefur nafn hennar. Ingibjörg hefur efalaust alizt upp hjá for- eldrum sínum, þó að þeir, sem gáfu henni galdra- nafnið, hafi um það aðra sögu að segja, nefni- lega þá, að faðir hennar, séra Jón, hafi komið henni fyrir hjá galdramanni, sem kallaður var Léki (S. S.) eða Seki (Ól. Dav.), til þess að hún mætti nema af honum fjölkynngi. Þessu til

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.