Organistablaðið - 01.11.1970, Qupperneq 7
að fjalla um „tema“ mótsins: „Guðsþjónustuna í dag og á morgun“
og kom fram 'hjá þeim öllum, að mikill glundroði ríkir í guðsþjón-
ustu- og kirkjumálum. Umæðuhópar tóku erindin til meðferðar með
frásögnum og fyrirspurnum. Margt athyglisvert kom fram um guðs-
þjónustuhald og nýjar stefnur, m. a. hjá Gerhard Cartford, prófessor
í Texas, en hann var fenginn sérstaklega til þess að taka þátt í þess-
um umræðum mótsins. — I ráði er að birta öll þessi erindi í Organ-
istahlaðinu á næsta ári. Þau eiga erindi til okkar.
Guðsþjónusturnar sem haldnar voru, ein hverra þjóðar, voru
ærið ólíkar að efni til. Upphafsguðsþjónustan í dómkirkjnni var lát-
laus og virðuleg og ræða biskupsins, að vonum, ágæt. Mest reisn
og lielgi var þó yfir Skálholtsguðsþjónustunni í norskri og sænskri
samvinnu.
Til mótsins komu menn frá Hollandi, Vestur-Þýzkalandi og U.S.A.,
sem 'fulltrúar „Ecclesia cantans“ (fyrirhuguð alþjóðasamtök). Þeir
sátu fund, sem gagngert var boðað til í þvi skyni, að ræða endan-
lega stofnun alþjóða samtaka lútherskra kirkjutónlistarmanna. Niður-
staða fundarins var sú, að norræna kirkjutónlistarráðið kaus í nefnd
þá Ulrich Teuber Danmörku, Helge Nyman Finnlandi, Pál Kr. Páls-
son Islandi, Björn Björklund Noregi og Harald Göransson Sviþjóð,
til þess að — ásamt mið-Evrópu-nefnd undir forsæti Willem Mudde
Hollandi — að koma á föstu samstarfi innan Evrópudeildar „Ecclesia
cantans“. Hinir tveir fulltrúar frá U.S.A., er sátu fundinn, tóku að
sér að mynda tilsvarandi samtök í Vesturheimi, í því skyni, að endan-
leg stofnun þessa heimssambands gæti orðið að veruleika, jafn vel
strax á næsta ári.
Ekki verður svo skilist við þetta rabb um 10. NKT-mótið, að ekki
sé lýst undrun yfir fálæti organleikara og — ekki síður — presta,
um mótið. Það var vissulega vert meiri athygli frá þeim. Ef til vill
kann að valda litil auglýsingastarfsemi félags okkar í þessu sam-
i*andi, en fjárráð okkar voru af mjög skornum skammti. Þá má líka
geta þess, að aðstaða okkar litla félags er harla erfið í sambandi við
erlenda samvinnu. P. Kr. P.
ORGANISTABLAÐIÐ 7