Organistablaðið - 01.11.1970, Blaðsíða 15
Dómkirkjunni og í Fríkirkjunni, sein ísólfur Pálsson hafði eftirlit
með, en jiegar stóra orgelið var keypt i Fríkirkjuna árið 1926 vann
Pálmar með þýzka orgelsmiðnum Kramer að uppsetningunni og
kynnti sér allan tækniútbúnað þess sem bezt, því að 'hann tók þá að
sér eftirlit með orgelinu fyrir 600 króna greiðslu á ári. Var það
mikið átak fyrir fámennan söfnuð að kaupa þetta stóra orgel með 36
hljómandi röddum og greiða fyrir það rúm 40 'þúsund krónur. Slíkan
stórhug í orgelkaupum mæltum við gjarnan eiga nú. Sá velvilji kom
líka fram í því að söfnuðurinn gerði samning um viðhald og eftirlit,
sem þó, því miður varð ekki endurnýjaður af eftirkomandi sóknar-
nefndum.
Pálmar telur brýna nauðsyn að 'liafa reglulegt eftirlit með þessum
hljóðfærum, en, með samvizkusamlegri ábyrgð viðkomandi liljóð-
færaviðgerðarmanns. Það er vandræðaástand að þurfa að sækja orgel-
smiði til úllanda og oft ekki liægt, þegar fyrirváralaus bilun á sér
stað Hið rétta er, að fá unga íslenzka tónlistarmenn með afburða-
beyrn til að læra listina, til þess svo að geta séð um þessa sjálfsögðu
bluti hér beima.
Þegar að píanósnillingurinn Ignaz Friedman bélt tónleika í Ileykja-
vík var Pálmar að sjálfsögðu fenginn til að stilla hljóðfærið og tókst
tneð þeim náinn kunningsskajiur. Heimtaði Friedman að Pálmar væri
viðstaddur á hljómleikum sínum ef eitthvað skyldi koma fyrir hljóð-
færið. Pálmar heimsótti Friedman oft á meðan hann ibjó í Reykjavík.
Kæddi hann þá við Pálmar meðan hann lék fingraæfingar sinar á
pianóið og las í skáldsögu, sem hann hafði opna á nótnapúltinu.
En eftir að Friedman var kominn til Berlinar, barst Pálmari boð
frá Bechsteinpíanóverksmiðjunum um að starfa hjá þeim um tíma.
^f því varð þó eigi, en það sýnir vel hvert álit Friedman hafði á
Káhnari, en boð þetta var að undirlagi hans gert.
Nauðsyn góðrar stillingar er einsæ, segir Pálmar, nemendurnir
Verða að venjast velstilltum hljóðfærum. Tóneyrað nær ekki eðlileg-
l|ni þroska nema það venjist við fagran tón í hljóðfærunum.
Dljóðfærastillirinn er sá listamaður, sem gerir listamanninum fært
a<^ gera sitt bezta á hið velstillta hljólfæri. Án þess fer túlkunin öll
Ut í veður og vind.
Pálmar má telja einn elzta starfsmann útvarpsins, því hann hefur
baft fastan samning um eftirlit hljóðfæra þess síðan starfsemi þess
bófst og hann á margar góðar endurminningar um þá listamenn sem
ORGANISTABLAÐTÐ 15