Organistablaðið - 01.11.1970, Síða 16
GUSTAV PETTERSSON
75 ára
Gustav Pettersson kantor, við
Norra svenska församlingen i
Helsinki, og fyrrum formaður
Sænsk-finnska organistafélagsins
varð 75 ára hinn 30. janúar s.l.
Pettersson er okkur íslenzkum
organleikurum að góðu kunnur
frá undanförnum kirkjutónlistar-
mótum, enda einn af forvígis-
mönnum þessara móta, ágætur
kirkjutónlistarmaður, skynugur
félagsmálamaður auk þess, sem
•hann er liugljúfur öllum sem honum liafa kynnzt. Minnisstæð
er okkur hin góða fyrirgreiðsla, er hann ásamt kollegum sínum,
Armas Maasalo og John Sundberg, veitti okkur íslenzkum organ-
leikurum er við sóttum þá heim við 7. kirkjutónlistarmótið, er haldið
var í Helsinki árið 1957.
Okkur, sem munum hann og þekkjum, þótti leitt að hann gat ekki
verið með á 10. mótinu hér í Reykjavík á s.l. sumri.
Við sendum honum því síðbúnar árnaðaróskir með þökk fyrir marg-
ar góðar samverustundir. P. Kr. P.
hér hafa komið fram. „Það var hrein rómantík að fá tækifæri til
þess að umgangast þessa listamenn“, segir Pálmar, sem enn er síkvik-
ur og ungur, þrátt fyrir oft mikil og erfið veikindi, enda segir hann
að maður verði að nota ellina til þess að verða ungur, ef maður geri
það ekki þá staðni maður bara.
Organista'blaðið sendir Pálmari lilýjar afmæliskveðjur og þakkar
honum öll störf hans í þágu organisfastétlarinnar.
GuSmundur Gilsson.
16 ORGANISTABLAÐIÐ