Organistablaðið - 01.11.1970, Qupperneq 18
JÓN VIGFÚSSON
áttrœður
Einn af félögum F.Í.O., Jón
Vigfússon, varð áttræður nú í ár.
Hann er fæddur að Brúnum undir
Eyjafjöllum 3. júní 1890. Hann
lærði múrsmíði i Reykjavík og
tók sveinspróf í þeirri grein ár-
ið 1910, stundaði síðan fram-
lialdsnám við Tekniske Selskabs
Skole í Kaupm.höfn og tók burt-
fararpróf þaðan árið 1915. — Á
Hafnarárum sínum nam Jón
orgclleik hjá Rung-Keller um
2ja ára skeið. Mun hann vera
fyrsti íslendingurinn, sem lærði
á pedal- orgel. Áður liafði hann stundað nám hjá ibróður sínum Sig-
urði, sem lengi var organisti við Stóra-Dals-kirkju.
Eftir heimkomuna stundaði Jón iðn sína í Reykjavík og starfaði
m. a. við leiksýningar hjá Leikfélagi Reykjavíkur o.ö. Árið 1919
flutti 'hann til Seyðisfjarðar og gerðist þar athafnasamur. — Hann
var byggingafulllrúi, formaður sóknarnefndar, fulltrúi í bæjarstjórn,
organleikari við Seyðisfjarðarkirkju, hélt uppi leikstarfsemi, endur-
reisti karlakórinn „Braga“, sem hafði lognast út af eftir að söng-
stjórinn, Ingi T. Lárusson, flutti burtu. Hann þótti frábær söngstjóri,
skapheitur, viðkvæmur og nákvæmur.
Árið 1954 flutti Jón til Hafnarfjarðar og var byggingafulltrúi
hæjarins unz hann lét af störfum sakir aldurs árið 1965. Á þeim ár-
um sat 'hann oft með sæmd við orgelið í forföllum kolleganna, m. a.
í Hafnarfjarðarkirkju. Eiginkonu sína, Sigurlínu Sigurðardóttur,
missti Jón árið 1966. Þau eignuðust 6 börn, sem öll eru á lífi og
hið merkasta fólk.
Hin síðustu ár hefur Jón búið í 'Kópavogi hjá dóttur og tengda-
syni og er enn hinn sami fágaði heimsborgari, kýminn og skemmti-
legur.
Við sendum honum hugheilar árnaðaróskir. P. Kr. P.
18 ORGANISTABLAÐIÐ