Organistablaðið - 01.11.1970, Qupperneq 35
'voru ýmsar sýningar í Osnahriick,
haldnir fyrirlestrar og tónleikar. Vér
festum athyglina við hlut Islands i
þessum hátíðahöldum, þ. e. orgeltón-
leika sem Haukur Guðlaugsson hélt í
dómkirkjunni þar. Hann lék orgelverk
eftir dr. Pál ísólfsson, Þorkel Sigur-
björnsson og Karl 0. Runólfsson, og
ennfremur eftir Buxtehude (Preludíu
og Fúgu í g-moll), Bach (Tokkötu i
C-dúr) og L. Böellmann (Suite
Gothique).
Fyrirleslrar
þeir, sem fluttir voru á kirkjutón-
listarmótinu í Reykjavik í sumar munu
birtast hér i blaðinu eftir áramótin.
A'rr organisti viS Háteigskirkju.
Martin Hunger, sem var organisti
við Landakirkju í Vestmannaeyjum,
hefur nú verið ráðinn organisti við Há-
teigskirkju í Reykjavík.
Martin Hunger er fæddur í borg-
inni Meissen í Austur-Þýzkalandi árið
1939. Foreldrar hans eru Alfred Fritz
Hunger, sem var skrifstofustjóri Þjóð-
kirkjunnar i Meissen, og Frieda Doro-
thea Hunger.
Martin Hunger missti föður sinn i
heimsstyrjöldinni 1939—1945. — Að
loknu stúdentsprófi árið 1957 stundaði
hann tónlistarnám við kirkjumúsik-
skólann í Dresden og lauk þaðan
B-prófi árið 1960. Næstu árin stund-
nði hann framhaldsnám við tónlistar-
háskólann i Leipzig og starfaði auk
þess sem kirkjuorganleikari, en árið
1964 lauk Martin Hunger burtfarar-
Prófi (A-prófi) frá tónlistarháskólan-
uni i Leipzig.
Martin Hunger kom til íslands í des-
ember 1964 fyrir milligöngu Róberts
Á- Ottóssonar söngmálastjóra og séra
Jóhanns Hliðar, sóknarprests í Vest-
mannaeyjum og gerðist organleikarí
við Landakirkju og skólastjóri við
Tónlistarskóla Vestmannaeyja.
Árið 1966 kvongaðist hann Hrefnu
Oddgeirsdóttur Kristjánssonar tón-
skálds frá Vestmannaeyjum.
Martin Hunger hefur haldið marga
organtónleika hér á landi við góðan
orðstý.
Organislaskipti.
Organistinn við Patreksfjarðar-
kirkju, Guðmundur Guðjónsson, hefur
tekið við organistastöðu í Landakirkju
i Vestmannaeyjum, sem losnaði við
við brottför Martins Hunger til
Reykjavikur.
Jón Ólafur Sigurðsson, sem var
organleikari Kristskirkju í Reykjavik,
hefur tekið við organistastöðu við
Patreksfjarðarkirkju, sem losnaði er
Guðmundur Guðjónsson gerðist organ-
leikari við Landakirkju í Vestmanna-
eyjum.
Organistar og söngstjórar.
Gjörið svo vel að senda blaðimr
fréttir af söngstarfseminni. — Kristján
Sigtryggsson hefur tekið að sér að
sjá um þáttinn Úr bæ og hygg'S.
Utanáskrift er:
OrganistablaSiS,
Álhólfsvegi 147,
Kópavogi.
FÉLAG ISL. ORGANLEIKARA
STOFNAÐ 17. JÚNÍ 1951
Stjórn:
Formaður: Páll Kr. Palsson, Álfa-
skeiði 111, Hafnarfirði. sími 50914.
Ritari: Ragnar Björnsson, Grundar-
landi 19, Rvk, sími 31357.
Gjaldkeri: Gástaj Jóhannesson, Sel-
vogsgrunni 3, Rvk, simi 33360.
ORGANISTABLAÐIÐ 35