Organistablaðið - 01.04.1991, Blaðsíða 22
Fyrirhugað er að kaupa nýtt 15 radda pípuorgel í kirkjuna. Verið er
að leita tilboða í þá smíði. Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju stefnir að tónleikum
með vorinu.
Garðakirkja: Organisti Ferenc Utassi. Tónleikar voru 23. desember
1990. Þar komu fram Kór Garðakirkju ásamt Skólakór Garðabæjar.
Sönghópurinn Hljómeyki sem ráðinn var að kirkjunni á s.l. ári, sagði
upp samningum við kirkjuna og upp úr því var Kór Garðakirkju
endurstofnaður og starfar sem slíkur. 1. júní n.k. syngur kórinn á kirkju-
listarhátíð í Hallgrímskirkju og fer síðan í heimsókn til Austfjarða í
sumar.
Garðakirkja er að kaupa nýtt 4 radda æfingarorgel frá Aquincum í
Búdapest.
Hafnarfjarðarkirkja: Organisti Helgi Bragason. Kór Hafnarfjarðar-
kirkju hélt aðventutónleika 16. desember s.l. og flutti tónlist eftir Paul
Esterhási. Flutti kórinn 7 þætti úr „Harmonía Coelestis”. Framundan
eru Mozart tónleikar 28. apríl. Þar flytur kórinn Messu nr. 14 í C dúr KV
317, „Krýningarmessuna” fyrir kór einsöngvara og hljómsveit, einnig
mótettur eftir Mozart.
Keflavíkurkirkja: Organisti Einar Örn Einarsson. Aðventutónleikar
voru 16. desember s.l. Þar komu fram, Kór Keflavíkurkirkju ásamt
einsöngvurum, barnakór og hljóðfæraleikurum.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Organisti Steinar Guðmundsson. Aðventu-
kvöld var 1. sunnudag í aðventu með þáttöku kórs kirkjunnar o.fl.
Kálfatjarnarkirkja: Organisti Frank Herlufsen. Aðventutónleikar
voru. 9. desember. Fram komu kór kirkjunnar og barnakór. Fyrirhuguð
er heimsókn í Dalasýslu með vorinu.
Landakirkja í Vestamannaeyjum: Organisti Guðmundur H.
Guöjónsson. Á síðasta ári hélt Kór Landakirkju tvo kaffikonserta í hinu
nýja safnaðarheimili Landakirkju. Þar söng kórinn m.a. Vestmanna-
eyjalög eftir Oddgeir Kristjánsson. Einnig hélt kórinn jólatónleika í
desember s.l. aö venju, einsöngvarar voru Anna Júlíana Sveinsdóttir
sópran og Geir Jón Þórisson baryton. Flutt voru aðventu og jólalög.
Organisti Landakirkju Guðmudur H. Guðjónsson dvelur nú erlendis
í sex mánaöa námsleyfi og gegnir Ingeborg Kistemás störfum organ-
ista við kirkjuna á meðan. (Uppl.: Séra Kjartan Ö. Sigurbjörnsson).
Haldinn verður kórdagur kirkjukóra í Kjalnesprófastsdæmi 2. mars
1991, með þáttöku flestra kirkjukóra prófastsdæmisins. Tónleikarnir
22 ORGANISTABLAÐIÐ