Organistablaðið - 01.08.1992, Qupperneq 9
Sjötugur:
Jón Gísli Þórarinsson
Þann 16. ágúst 1990 varð Jón G. Þórar-
insson. kennari og organleikari 70 ára.
Jón er fæddur 16. ágúst 1920 í Reykja-
vík. llann stundaði tónlistarnám hjá Ró-
bcrt Abraham Ottóssyni 1945-1947
(píanóleik og tónfræði). Við Tónskóla
Þjóðkirkjunnar 1952-1954, Tónlistarskól-
ann í Reykjavík 1954-1957 (aðalgrein
orgelleikur). Jón stundaði einnig tónlistar-
nám við Háskólann í Toróntó í Kanada
1959 til 1960. Sumarið 1965 og svo aftur í
6 mánuði 1967 við orgelnám við Staatliche
Hochschule fiir Musik í Hamborg. Jón
lauk kennaraprófi 1953 mcð tónlist sem
sérgrein.
Jón hefur verið kennari við ýmsa skóla í
Reykjavík frá 1953. Einnig við Barna-
músikskólann í Reykjavík frá 1958-1962.
Jón var organisti Bústaðasóknar í
Reykjavík frá stofnun árið 1953 og gengdi
því til ársins 1973. Kór Bústaðasóknar
stóð fyrir öflugu tónlistarlífi undir stjórn
Jóns. Má þar m.a. nefna flutning á tveim kantötum: „In dulci jubilo" eftir Buxtehude
og „Sjá morgunstjarnan blikar blíð'' eftir Bach. á tónleikum á aðventu 1967, á þeint
tónleikum lék Jón einnig einlcik á orgel m.a. „Prelúdíu og fúgu í d moll" eftir
Buxtehude og „Introdukdon og Passacagliu“ í d moll eftir Max Reger. Árið 1970
fluttu Jón og Bústaðakórinn „Sjö orð Krists á krossinum" eftir H. Schútz, „Missa
brevis í B dúr KV275“ eftir Mozart og frumfluttu „Epithapium“ eftir Jón S. Jónsson,
sem samið var í minningu tengdaföður hans Einars Dyrset. Tónleikarnir voru í Há-
teigskirkju. Fjölda annarra verka flutti Jón með kórnum á þessum tíma og einnig hélt
Jón sjálfstæða orgeltónleika á þessum árum.
Jón var síðan organisti við Grensáskirkju frá 1973 til 1982. Nú er Jón organisti við
Borgarspítalann í Reykjavík.
Jón var söngstjóri Samkórs Revkjavíkur 1956-1957.
Jón var kosinn ritari í stjórn FIO frá 1966-1969, Gjaldkeri frá 1971-1976.
Jón hefur samið nokkur lög scm eru til í handriti, auk þess hefur Jón gert fjölda
útsetninga á lögum fyrir kór og litlar hljómsveitir.
Eiginkona Jóns er Helga Jónsdóttir, húsmóðir.
Ritnefnd óskar Jóni til hamingju mcð afmælið og óskar honum alls hins besta í
framtíðinni.
ORGANISTABLAÐIÐ 9