Organistablaðið - 01.03.1995, Síða 21
Sigfús Einarsson fæddist
á Skúmsstöðum á Eyrarbakka
30. janúar 1877 (d. 10. maí 1939)
Hann stundaði nám við Latínuskólann í Reykjavík 1892-1898. Sama ár hóf hann
Iögfræðinám við háskólann í Kaupmannahöfn og tók þar heimsspekipróf 1899.
Fyrsta veturinn sem hann dvaldist í Höfn hóf hann söngnám hjá Valdimar Linke og
tónfræði hjá August Enna, tónskáldi og tónfræðiprófessor.
Smám saman lagði hann laganámið á hilluna en sneri sér heill og óskiptur að tón-
listinni, sem hann gerði að ævistarfi.
Þann 17. maí 1906 voru þau Valborg Hellemann gefin saman í hjónaband í
Friðriksbergskirkju í Kaupmannahöfn. Valborg hafði góða sópranrödd. Sigfús hafði
blæfagra barítonrödd. Þau hjónin héldu fjölmarga tónleika saman.
Arið 1906 fluttu þau heim til fslands.
Þar biðu fjölþætt tónlistarstörf, m.a. að undirbúa komu Friðriks konungs til íslands
sumarið 1907.
Fróðlegt er að lesa frásagnir af fjölbreyttum tónlistarflutningi þeirra Siugfúsar
Einarssonar, Páls ísólfssonar o.fl. frá árunum 1924 til 1930. Þar má sjá að tekist var á við
stór viðfangsefni og þeim skilað með prýði.
Vandi er að koma til skila svo vel sé, frásögn af stöðu tónlistarmála á íslandi þegar Sigfús
vann sín störf.
Grein Sigurðar Gunnarssonar lýsir hluta þeirra starfa sem Sigfús hafði með höndum og
vekur okkur til umhugsunar um hvert brautryðjendastarf þurfti að vinna. Starf hans og
starfssystkyna hans hafa síðan skilað árangri. Nemendur þeirra hafa nýtt vel sína
þekkingu til tónlistariðkana. Sem betur fer er ánægjulegt að bera saman stöðu tónlistar í
Iandinu þá og nú, gleðjast yfir því sem áunnist hefur, sjá að við höfum ávaxtað vel okkar
pund.
Sá grunnur sem við byggjum nú á og aukum við gefur fyrirheit um mikinn og góðan
árangur.
Kr. S.
21 ORGANISTABLAÐIÐ