Morgunblaðið - 17.11.2009, Blaðsíða 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2009
Hann Bjössi bróðir okkar var sann-
kallaður gleðigjafi.
Hvenær sem hann kom fylgdi hon-
un glens og gaman. Börnin elskuðu
hann enda var hann alltaf tilbúin að
leika og glettast með þeim og það
kunnu þau vel að meta.
Á góðum stundum var hann hrókur
alls fagnaðar með gítarinn sinn, spil-
aði og söng og fékk alla með sér.
Við höfðum það fyrir reglu að hitt-
ast í matarboðum hvert hjá öðru, nú
síðast í sviðaveislu að Sunnuflöt að-
eins nokkrum vikum áður en Bjössi
dó, en þá var hann orðinn mjög veik-
ur, en var samt kátur og bjartsýnn,
eins og venjulega.
Samband okkar systkinana var
alltaf mjög náið og þar bar aldrei
skugga á. Við minnumst allra okkar
samverustunda með ánægju.
Kæri bróðir, við kveðjum þig með
söknuð í hjarta.
Elsku Gunna og fjölskylda, við
sendum ykkur innilegar samúðar-
kveðjur.
Systkinin.
Fleiri minningargreinar um Guð-
björn Níels Jensson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI
– Spámiðill
Spái í spil og kristalskúlu
Heilunartímar
Fyrirbænir
Algjör trúnaður
Sími 618 3525
www.engill.is
Dýrahald
Hágæða heilsufóður fyrir
hundinn þinn
Natural Trainer heilsufóður.
Bætt heilsa - Meiri vellíðan - Betra
form - fyrir hundinn þinn. Fæst núna
á kynningarverði í Nytjamarkaðnum,
Skútuvogi 11a. S. 771-8550.
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri- Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
Heilsa
REYKSTOPP MEÐ ÁRANGRI
STREITU- OG KVÍÐALOSUN
Notuð er m.a. dáleiðsla og
EFT (Emotional Freedom
Techniques).
Viðar Aðalsteinsson,
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694-5494,
www.EFTiceland.com.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Sumarbústaðarlóð til leigu í
Grímsnesi
Helgar-ogvikuleiga. Sjá frekari
upplýsingar á: www.bustadur.is
Upplýsingar í síma: 868-6593.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Tómstundir
Landslags módel efni í úrval
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
Bátar
Vetrarsala 20-40% afsláttur!!
Þurrgallar 20% afsl., björgunarv. 20-
30% afsl., bátastígvél 20% afsl.,
brimbretti 20% afsl., blautgallar 20%
afsl., þurrpokar 40% afsl., hanskar
20% afsl., skór 20% afsl., hettur 20%
afsl. og fl. fl. Gildir aðeins út þessa
viku! Ath. opið frá 17-20 eftirmiðdag.
Gúmmíbátar & Gallar, s. 571 1020,
Askalind 7, 201 Kópavogi. Gúmmí-
bátar & Gallar, www.gummibatar.is
Sennilega ódýrustu skrúfurnar
á Íslandi
Útvega koparskrúfur á allar gerðir
báta, beint frá framleiðanda.
Upplýsingar á www.somiboats.is
Óskar, 0046704051340.
Bílar
Til sölu Ford Escape XLT 3000 V6,
árg. 2008, 5 dyra, bensín, sjálfsk.,
ekinn 25 þ.km., dráttarkrókur, vetrar-
og sumardekk. Yfirtaka á 3,0 millj.
láni + 1,4 millj. í peningum. Skoða
skipti á ódýrum bíl.
Upplýsingar í síma 893 1712 eða
helgafe@gmail.com.
Tilboð hjá Bóni & þvotti
Vatnagörðum 16
Gæðaþvottur + bón + sýruþvegnar
felgur á 2500 kr. + þrif að innan 5500.
Eins gæðaþrif og bón. Þjónusta eftir
taxta, mössum matt lakk svo það
verði sem nýtt. Allri þjónustu fylgir
vetraryfirferð. Opið virka daga frá
9.00, laugardaga frá 10.00.
www.bonogtvottur.is, sími 445-9090.
Gsm 615-9090.
Nýr Hyundai i 30 Wagon Comfort,
Sjálfskiptur, lipur og vel útbúinn
fólksbíll. Langt undir listaverði. Litir:
Svart og Silfur. Aðeins kr. 2.990.þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Bílaþjónusta Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Hreinsa þakrennur fyrir
veturinn. Næ í bíla heim eða í
vinnuna og skipti yfir á vetrar-
dekk. Set upp jólaskraut o.fl. o.fl.
Uppl. í s. 847 8704.
✝
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
KRISTBJÖRG MARTEINSDÓTTIR,
Birkihlíð 12,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum að morgni miðvikudagsins
11. nóvember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn
19. nóvember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð hjá Göngum
saman, kt. 650907-1750 og reikningsnúmer 0372-13-302703.
Elías Haraldsson,
Sigurlaug Tara Elíasdóttir,
Marteinn Högni Elíasson.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ERLA RUT GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kambsvegi 14,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 6. nóvember, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
19. nóvember kl. 13.00.
Ólafur Ólafsson, Ragna Þorgeirsdóttir,
Erla Dögg Ólafsdóttir, Fannar Geir Ásgeirsson,
Ólafur Óli Ólafsson,
Sandra Rut Fannarsdóttir,
Halla Rún Fannarsdóttir.
✝
Útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
RÖGNVALDAR H. HARALDSSONAR,
Sóleyjarima 9,
Reykjavík,
fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
20. nóvember kl. 13.00.
Ingibjörg Andrésdóttir,
Brynja Björk Rögnvaldsdóttir, Þórhallur G. Harðarson,
Rögnvaldur Óttar Rögnvaldsson, Margrét Gísladóttir,
Ingibjörg Erla, Hörður,
Erna Jóna og Rögnvaldur Óðinn.
✝
Ástkær móðir, tengdamóðir, frænka, amma og
langamma,
ÞÓRA STEFÁNSDÓTTIR BACHMANN,
Tóta,
Tjarnarbraut 23,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku-
daginn 18. nóvember kl. 13.00.
Jónína Ágústsdóttir,
Sjöfn Jónsdóttir,
Rafn Hafnfjörð, Kristín Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
IRMA JÓHANNA PÁLSDÓTTIR
frá Neskaupstað,
Boðahlein 11,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju föstudaginn
20. nóvember kl. 13.00.
Anna Gréta Baldursdóttir, Sigurður Runólfsson,
Sólveig Baldursdóttir, Sigurður Steinar Ketilsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, systir og amma,
INGIBJÖRG CHARLOTTE KRUGER,
dvalarheimilinu Lundi,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðviku-
daginn 18. nóvember kl. 13.00.
Agnes Charlotte Kruger, Gunnar B. Eyjólfsson,
Sólbjört Gestsdóttir
og barnabörn.