SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Blaðsíða 4
4 6. júní 2010 Úrslitakeppni Evrópumóts kvenna verður í Dan- mörku og Noregi í desember. Í dag, laugardag, verð- ur einmitt dregið í riðla og þá kemur einnig í ljós í hvoru landinu Íslendingar leika. Í leik íslenska liðsins er mest lagt upp úr góðum varnarleik og þess freistað að skora sem oftast eftir hraðaupphlaup. Í liðinu eru nefnilega ekki sérlega hávaxnar langskyttur og hröðu sóknirnar því helsta vopn stelpnanna til að klekkja á andstæðingnum. Þjálfararnir, Júlíus Jónasson og aðstoðarmaður hans, Finnbogi Grétar Sigurbjörnsson, leggja mikið upp úr liðsheildinni en vert er að nefna nokkra leik- menn sérstaklega. Í lykilhlutverkum eru markvörð- urinn Berglind Íris Hansdóttir og Anna Úrsúla Guð- mundsdóttir, sem stjórnar vörninni, og hin fótfráa Hanna Guðrún Stefánsdóttir nýtist vel í hraðaupp- hlaupum og raðar yfirleitt inn mörkum. Þá má nefna leikstjórnandann, Karen Knútsdóttur, og Stellu Sig- urðardóttur, sem eru aðeins tvítugar. Þær voru báðar í landsliði 20 ára og yngri sem varð í níunda sæti á Evrópumóti fyrir nokkrum misserum. Leggja áherslu á góða vörn og hraðaupphlaup Karen Knútsdóttir einn hinn ungu og bráðefnilegu leikmanna Íslands sem spreyta sig á EM í vetur. Morgunblaðið/Kristinn A ukin athygli hefur beinst að keppni kvenna á íþróttavelli á síðustu árum, góðu heilli. Þjóðinni er í fersku minni þegar landslið kvenna í knattspyrnu komst í úr- slitakeppni Evrópumótsins í Finnlandi á síðasta ári og nú er aftur ástæða til þess að gleðjast yfir glæst- um árangri kvennalandsliðs; „stelpurnar okkar“ í A-landsliðinu í handbolta fylgdu í kjölfarið um síð- ustu helgi og tryggðu sér þátttökurétt í úr- slitakeppni Evrópumótsins næsta vetur í fyrsta skipti. Handboltakarlar hafa í gegnum árin haldið merki Íslands hátt á lofti en óhætt er að segja að orðstír þeirra hefur ekki nokkru sinni verið jafn góður og um þessar mundir og deyr eflaust aldregi. „Strákarnir okkar“ hafa í tvígang nælt í verð- launapening á stóra sviðinu; Ólympíuleikum og Evrópukeppni, yngri landslið karla hafa náð frá- bærum árangri, og því einkar ánægjulegt að kven- fólkið sé einnig komið almennilega á blað. Íslenskt kvennalandslið hefur ætíð verið töluvert langt á eftir öðrum þjóðum en með markvissri upp- byggingu síðustu ár hefur verið stigið stórt skref. Bæði hefur verið æft meira og betur, að sögn kunn- áttumanna sem Morgunblaðið ræddi við, og hug- arfar leikmanna er öðruvísi en oft hefur verið. Þeir taka æfingar mun alvarlegar en áður auk þess sem samstaðan og samheldnin í landsliðshópnum er til fyrirmyndar. Þjálfari landsliðs kvenna, Júlíus Jónasson – sjálfur kunnur landsliðsmaður atvinnumaður í greininni til fjölda ára – segir að strax og hann tók við liðinu ásamt Finnboga Grétari Sigurbjörnssyni fyrir tæp- um fjórum árum, hafi þeir sett sér það markmið að koma liðinu á stórmót. Ólympíuleikarnir 2012 hafi verið nefndir í því sambandi . „Það var að hrökkva eða stökkva,“ segir Júlíus um þá ákvörðun þjálfaranna á sínum tíma að yngja mikið upp í liðinu. Sumir efuðust. „En ég var alltaf sannfærður um að það væri rétta leiðin að nota unga leikmenn; ég viðurkenni að sumar stelpurnar voru mjög ungar, og eru það reyndar enn nærri fjórum árum síðar …“ Fyrir tveimur árum komst Ísland upp úr und- anriðli sem leikinn var í Litháen, fyrir heimsmeist- aramótið; stelpurnar slógu þar út lið sem talin voru sterkari á pappírnum og mættu í framhaldinu firnasterku liði Rúmeníu í tveimur leikjum um laust sæti í úrslitakeppni HM. Þar var við ramman reip að draga, rimman tapaðist en liðið var reynslunni rík- ara. Leikmenn komust á bragðið; skynjuðu að ekki var eins langt í að draumurinn rættist og einhverjar kynnu að halda. Síðan þetta var hefur íslenska liðið mætt flestum af sterkustu þjóðum heims; Noregi, Damörku, Spáni, Frakklandi, Spáni, Austurríki, Þýskalandi og Brasilíu. „Úrslitin hafa verið upp og ofan en við fengum þessa leiki til þess að búa stelpurnar sem best undir framtíðina,“ segir Júlíus. Að þær sæju muninn á sér og þeim bestu og gerðu sér enn frekar grein fyrir því en áður hvað þyrfti til að komast sem næst bestu liðunum. Spennandi verður að sjá hver framvindan verður. Ekki er að efa að góður árangur „stelpnanna okkar“ verður lyftistöng fyrir handbolta kvenna og liðið mikilvæg fyrirmynd ungu kynslóðarinnar. Hanna Guðrún Stefánsdóttir skorar gegn Frökkum á dögunum. Morgunblaðið/Kristinn Komnar inn fyrir þröskuldinn Kvennalandsliðið í handbolta í fyrsta skipti á stórmót Vikuspegill Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Rut Jónsdóttir, Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir fagna sigri gegn Austurríki. Morgunblaðið/Eggert
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.