Ísfirðingur - 08.10.1977, Qupperneq 4
Psfirðinjjtir
BMÐ TRAMSÓKNMMANNA i VES TFJARÐAKJÖPDAM!
ut og suður
um helgina
Flugfélag fslands býður upp á
sérstakar helgarferðir allan veturinn
fram undir páska: Ferðina og dvöl á
góðum gististað á hagstæðu verði.
Út á land, til dæmis í Sólarkaffið
fyrir vestan, á Sæluvikuna á Sauðár-
króki eða þorrablót fyrir austan, til
keppni í skák eða í heimsókn til
kunningja. Víða er hægt að lara á
skíði.
Suður til Reykjavíkur vilja flestir
fara öðru hverju. Nú er það hægt
fyrir hóflegt verð. Þar geta allir
fundið eitthvað við sitt hæfi til að
gera ferðina ánægjulega. Margir hafa
notað helgarferðirnar og kunnað vel
að meta.
Gerið skammdegið' skemmtilegt!
Leitið implýsinga hjá skrifstofum
og umboðum um land allt.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
INNANLANDSFLUG
Frá Árnesi í Árneshreppi
, Pólitískir
utigangsmenn
Formleg útför Vestra,
blaðs Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna á Vest-
fjörðum hefur farið fram. í
síðasta tölublaði sem út
kom af Vestra, þann 25.
ágúst s.l., birtist útfararræð-
an í leiðara blaðsins, sem
bar yfirskriftina: ,, Tími
samtakanna er liðinn“.
í umræddum leiðara segir
m.a.: ,.Dagar Samtakanna
eru liðnir, það véfengja ekki
raunsæir menn, og það er
betra að deyja en veslast
upp og örkumlast eins og
Alþýðuflokkurinn“. Og í
lokaorðum leiðarans segir.
m.a.: „Vestri vill að leiðar-
lokum senda öllum fyrrver-
andi samherjum og vinum
bestu kveðjur og þakkar fyr-
ir liðnar stundir11,... Þetta er
ótvíræður dauðadómur.
En hver hefur þá árang-
urinn orðið af sameiningar-
áformum þeirra Samtaka-
manna? Hann hefir enginn
orðið, og raunar verri en
enginn, því meira að segja
upphafsmenn þeirra hafa
nú tvístrast til allra átta.
Ekki einu sinni þeir gátu
staðið sameinaðir ,,að leið-
arlokum“, eftir að þeir
höfðu sannfærst um fánýti
sameiningarhugmynda
sinna. Nú kennir hver öðr-
um um og ásakanirnar og
köpuryrðin ganga á víxl. Al-
gjör upplausn Samtakanna
er staðreynd.
Nokkrir framagosar Sam-
takanna hafa að undan-
förnu sótt það all fast að fá
lendingarleyfi hjá öðrum
stjórnmálaflokkum. En
reynslan hefur þegar sýnt,
að þeim hefur ekki verið
tekið neitt fagnandi eða
með lúðrablæstri. Benda því
ýmsar líkur til þess að
framagosarnir hafni að lok-
um sem pólitískir útigangs-
menn
„Opið hús" Flateyri
Framsóknarfélag önundarfjaröar veröur meö opiö hiís i sam-
komuhúsinu Flateyri á þriöjudagskvöldum kl. 20.30-23.30. Leikiö
veröur af plötum, spilaö, teflt, myndasýningar.
Allir velkomnir.
Byggingaframkvæmdir
í Árneshreppi
Það var sumarið 1975 að
hafist var handa með upp-
byggingu fjárhúsa í Árnes-
hreppi á félagslegum grund-
velli. Yfirsmiður var ráðinn
Jón Guðmundsson, ættaður
frá Bæ í Árneshreppi. Hon-
um til aðstoðar voru tveir
smiðir og fjórir til sex verka-
menn. Þá daga sem steypt
er koma bændur sjálfir til
hjálpar og leggja þar fram
mörg dagsverk í félags-
vinnu. Notuð hafa verið
svonefnd flekamót. Á þeirri
reynslu, sem fékkst sumarið
1975 var samin vinnuáætl-
un fyrir framhald verksins
og hefur hún staðist full-
komlega. Er mikil hagræð-
ing að slíkri áætlun fyrir
alla aðila. Unnið var skipu-
lega að byggingunum þann-
ig, að fyrst voru hlöður reist-
ar, en á þessu sumri hafa
flest fjárhúsin verið í smíð-
um. Nær þessi fram-
kvæmdaáætlun til 14 bæja,
og mun byggingum lokið á
12 þeirra í ár. Nú hafa kom-
ið fram óskir um uppbygg-
ingu frá þrem bæjum til við
bótar og er því sýnt. að brýn
þörf er á að halda þessari
áætlun í gangi næsta sumar.
Jón Guðmundsson hætti
verkstjórn haustið 1976 og
var Gísli Albertsson þá ráð-
inn yfirsmiður í hans stað.
Gísli er einnig ættaður héð-
an úr Árneshreppi. Fyrstu
fjárhúsbyggingarnar komust
í gagnið í fyrra og hefur
vinnan við sauðfjárhirðing-
una orðið þar mun auðveld-
ari og fljótlegri en i gömlu
húsunum. Þá er og ekki síð-
ur mikill munur á heyhirð-
ingu og áburðarmokstri, þar
sem véltækni verður nú bet-
ur komið við en áður.
Ágætt grasár hefur verið í
sumar og er heyfengur
bænda meiri en nokkru
sinni áður hér um slóðir.
Hefur það og stutt trú
þeirra á framtíð og vaxandi
gengi þessar afskekktu en
fögru sveitar.
Og ekki dregur það úr
bjartsýni okkar, að unnið
hefur verið að rafvæðingu
byggðarlagsins af fullum
krafti í sumar. Fara miklar
sögur af afköstum hins
harðsnúna vinnuflokks
Gunnars Helgasonar við
staurareisingu á Trékyllis-
heiði. En þrátt fyrir það er
óvíst um, hvort rafmagn
kemst til okkar á þessu ári
frá landsveitu, þvi að nokkr-
ar tafir hafa orðið á efnisút-
vegun. Rafmagnsvinnan
mun þó sótt áfram af kappi
meðan veður leyfir.
Finnbogastöðum
12. sept. 1977
Torfi Guðbrandsson
Fyrstu flatgryljur að rísa í Árneshreppi siðsumars 1975.