Morgunblaðið - 18.05.2010, Blaðsíða 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2010
Ekkert lát virðist vera á vinsæld-
um hljómsveitarinnar Diktu þessa
dagana og nú hefur platan þeirra
Get it Together náð gullplötusölu.
Til að þakka fyrir sig hefur Dikta
ákveðið að halda tónleika kl. 18 í
dag á Nasa við Austurvöll. Tónleik-
arnir verða opnir öllum aldurs-
hópum og verður ókeypis inn.
Gullplata og ókeypis
tónleikar fyrir alla
Fólk
Þótt kvikmyndahátíðin í Cannes hljóti fyrst og
fremst athygli fjölmiðla út á kvikmyndirnar sem
þar eru frumsýndar og hversu fínar í tauinu
kvikmyndastjörnurnar eru, þá er hún ekki síður
mikilvægur vettvangur upp á sölu og dreifingu á
kvikmyndum og íslenskum þar á meðal.
Félagarnir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson
eru úti í Cannes að selja sýningarréttinn á
Reykjavík Whale Watching Massacre og und-
irrituðu í gær samning við japanska dreifing-
arfyrirtækið UPLINK um sýningar á myndinni í
Japan. Kvikmyndin verður frumsýnd í Tókýó
undir lok árs, að sögn Ingvars. Í myndinni leikur
japönsk leikkona, Nae Yuki, sem Ingvar segir að
sé súperstjarna í heimalandi sínu. Þá komi ekki
að sök að Japanir séu hvalveiðiþjóð og þekki
einnig til Bjarkar og Sjóns, en Sjón skrifaði
handritið að myndinni. Ingvar segir það hafa
verið skemmtilega tilviljun að við undirritun
samningsins í gær hafi skip frá Sea Shepherd
verið í höfninni í Cannes. R.W.W.M. kemur út á
mynddiski hér á landi 20. maí og fer þá á mynd-
bandaleigur og í sölu. Þá verður hún brátt sýnd í
Bretlandi en heitir þar Harpoon.
En það eru fleiri íslenskar myndir til sölu í
Cannes því fyrirtækið Telepol er þar að selja
sýningarréttinn að þrívíddarteiknimyndinni Þór
– í heljargreipum, sem er í framleiðslu hjá fyr-
irtækinu Caoz. Í sölubás Telepol í Cannes er
sýnd „kitla“ úr myndinni (e. teaser) en Hilmar
Sigurðsson, frkv.stj. Caoz, segir myndina þegar
hafa verið selda til 26 landa. helgisnaer@mbl.is
R.W.W.M. seld til dreifingar í Japan
RWWM Hvalaskoðunarfjöldamorð fyrir Japani.
Tölvuleikjafyrirtækið CCP hefur
ákveðið að fresta útgáfu á Tyr-
annis-viðbótinni við tölvuleikinn
vinsæla EVE Online til 26. maí. Þar
að auki hefur fyrirtækið ákveðið að
fresta útgáfu á Planetary Comm-
and Centers til 8. júní. En í þeim
síðarnefnda gefst þeim fjölmörgu
notendum loks færi á að hanna sín-
ar eigin plánetur í leiknum. Í til-
kynningu frá fyrirtækinu segir að
með því að fresta útgáfunni á við-
bótinni fái hönnuðir meiri tíma til
að fínpússa hana og notendur geti
kynnt sér nýjungar í honum áður
en þeir byrja að spila leikinn. Tyr-
annis er 13. viðbótin við leikinn.
CCP frestar viðbótum
við leikinn EVE Online
Ljósmynd eftir Börk Sigþórs-
son verður boðin upp á morgun í
verslun Hermes í Beverly Hills.
Uppboðshúsið Christie’s sér um
uppboðið en það er til styrktar sam-
tökum sem helga sig verndun
strandlengja í heiminum, rekin af
Olaf og Eva Guerrand-Hermes.
Mynd Barkar heitir „The Beach“,
og var tekin á Vestfjörðum 2002.
Börkur leggur verndun
strandlengja lið
„Ég hef lengi verið aðdáandi þess
að leikarar leiti í eitthvað sem er
langt frá okkur. Eins og til dæmis
fötlun eða eitthvað sem við þurfum
ekki að kynnast í daglegu lífi. Kar-
akterinn varð til upp úr þessu,“
segir Óttar Már Parwes Sharifi
Ingólfsson, útskriftarnemi á leik-
listarbraut Kvikmyndaskóla Ís-
lands. Óttar hefur nú lagt lokahönd
á útskriftarverkefni sitt Haltur
leiðir blindan. Kvikmyndin er saga
af tveimur ungum mönnum, annar
þjáist af mikilli þroskahömlun en
hinn er blindur. „Sá blindi sér heim-
inn í gegnum augu þess þroska-
hamlaða. Að sama skapi fær sá
þroskahamlaði dómgreind hins
blinda að láni til að skilja það sem
hann sér. Þessi saga er falleg og
hugljúf skemmtun sem vonandi fær
fólk til þess að brosa og skemmta
sér. Ég lagði mikið upp úr því að
þetta líti ekki út fyrir að vera grín
um fötlun á nokkurn hátt. Heldur
sýna fegurðina í barnslegri ein-
lægni þeirra og leikgleði,“ segir
Óttar.
Útskriftarnemar við Kvikmynda-
skólann útbúa stuttmynd sem út-
skriftarverkefni. Afrakstur þeirra
verður svo sýndur í Regnboganum í
vikunni. „Þetta var ótrúlega gam-
an, en erfið vinna og mikið streð.
Allir nemendur þurfa að útvega sér
leikstjóra og framleiðanda. Við nýt-
um okkur krafta útskriftarnema í
öðrum deildum, en njótum líka ut-
anaðkomandi aðstoðar. Við fáum
ákveðna upphæð til að eyða í verk-
efnið frá skólanum. Síðan er það
okkar að ákveða hvernig við hög-
um framleiðslunni,“ segir Óttar
sem bæði skrifaði handritið og
framleiddi myndina sjálfur.
Haltur leiðir blindan Óttar Már P. S. Ingólfsson og Theódór Sölvi Thom-
asson í hlutverkum sínum sem Raggi og Tolli, í verki Óttars.
Annar blindur, hinn með
alvarlegan framheilaskaða
Útskriftarverkefni við Kvikmyndaskóla Íslands
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Dansverkið KYRRJA, eftir dans-
arann og danshöfundinn Ragnheiði
Bjarnason, verður frumsýnt næst-
komandi fimmtudag á Norðurpóln-
um á Seltjarnarnesi. Ragnheiður var
í fyrsta útskriftarárgangnum sem
útskrifaðist af dansbraut Listahá-
skóla Íslands haustið 2009, en hefur
unnið við dansinn í mörg ár. Sóló-
verkið KYRRJU vann hún í sam-
starfi við Hjördísi Árnadóttur, en
þær leituðu efniviðar í baráttu góðs
og ills.
„Við byrjuðum á því að vinna
með hugtökin gott og illt og þaðan
spannst eiginlega verkið út í engla;
að kanna gott og illt út frá engl-
unum, þeim sem eru fallnir og þeim
sem eru í himnaríki. Og þá kviknaði
sú spurning hvort þetta illa afl væri
jafnvont og við vildum halda. Þannig
að útgangspunkturinn er hvort hið
illa sé í raun ekki bara að sinna sínu
hlutverki, hvort það sé ekki nauð-
synlegt til þess að þessi tvískipti
heimur okkar virki. Og við unnum
það út frá dauðasyndunum og
dyggðunum,“ segir Ragnheiður um
verkið, en auk hennar og Hjördísar,
sem vann með henni hugmyndavinn-
una, koma að sýningunni Jóhann
Friðgeir Jóhannsson, sem samdi
tónlistina og Snæbjörn Brynjarsson
sem samdi textana.
Danssýningar eru upplifun
Oft kviknar sú spurning, þegar
rætt er um dans, hversu aðgengileg-
ur hann sé sem listform. Að sögn
Ragnheiðar finnur hún fyrir vaxandi
áhuga fyrir dansinum sem helgast
m.a. af aukinni umræðu, en hún vill
einnig meina að fólk nálgist hann ef
til vill ekki á réttum forsendum.
„Ég sé danssýningar þannig að
þær eru upplifun. Þannig eru til
dæmis verkin sem ég geri. Ég hef þá
sýn á sviðsetningar yfir höfuð að þú
kemur inn í rýmið og þótt þú vitir
ekki alveg um hvað sýningin er, sér-
staklega í danssýningum til dæmis,
þar sem er ekki endilega söguþráð-
ur, þá upplifirðu einhverjar tilfinn-
ingar. Og það er það sem við erum
meðal annars að gera með þessu
verki, þetta eru sjö kaflar og við
reynum að kalla fram ákveðnar til-
finningar hjá áhorfandanum þannig
að það er engin saga, heldur upp-
lifun. Það eru svo margir sem segja:
ja, ég skildi þetta bara ekki. En
danssýningar snúast ekki um það að
skilja eða skilja ekki. Heldur að
finna bara hjá sjálfum sér hvað
manni finnst.“
Form sem vinna saman
Ragnheiður segir dansinn mjög
fjölbreyttan og það sé sérstaklega
skemmtilegt hvað hann tengist náið
öðrum listformum.
„Við höfum verið að ræða þetta
mikið dansararnir, að það er svo
mikið af formum sem halda dans-
inum uppi og öfugt. Myndlistin
skiptir miklu máli, sviðsmyndin og
rýmið. Ég vinn til dæmis mikið með
þetta sjónræna. Kóreógrafían er
náttúrlega mjög sjónræn og dans-
arar sjá allt mjög sjónrænt í rými.
Svo kemur leiklistin æ meira inn, ég
fór til dæmis í leiklistarskóla í skipt-
inám, fór til Noregs í hálft ár og
lærði að tala á sviði, af því að það
skiptir alltaf meira máli að maður
geti farið með texta. Þannig að þessi
mismunandi form blandast mikið
saman í dansinum. Og svo auðvitað
tónlistin.“
KYRRJA er fyrsta sólóverkefni
Ragnheiðar eftir útskriftina en hún
hefur verið meðlimur í danshópnum
Íslensku hreyfiþróunarsamsteyp-
unni í fimm ár. Það er nóg af verk-
efnum framundan, en hún segir
nauðsynlegt fyrir dansara að vera
duglegur að skapa sér tækifæri.
„Það sem ég er að gera núna er að
semja verk til að taka upp og senda
út á hátíðir. Ég ætla að sýna þetta
verk og eitt annað á Jónsvöku í lok
júní og svo er ég að semja annað sem
verður frumsýnt í lok ágúst,“ segir
hún. Hvað frekara nám varðar er
allt opið, en listaáhuginn liggur víðar
en í dansinum. „Ég var næstum far-
in út í nám síðasta haust, en mig
langaði líka í myndlistarnám sem ég
ætlaði í en var hætt við. Ég vona
bara að það verði kennt á næsta ári,“
segir Ragnheiður að lokum og hlær.
Morgunblaðið/Golli
Ragnheiður Vann út frá hugtökunum um gott og illt í KYRRJU.
Hið illa er líka
mikilvægt
Ragnheiður Bjarnason frumflytur
nýtt dansverk Segir dansinn að-
gengilegri en margur haldi