Fréttablaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 22
2. nóvember 2011 MIÐVIKUDAGUR
Okkar innilegustu þakkir til allra
þeirra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Hauks Svavars
Ástvaldssonar
Skeiðarvogi 20, Reykjavík, síðast til
heimilis á Hjúkrunarheimilinu Mörk.
Sérstakar þakkir til allra á Hjúkrunarheimilinu Mörk,
3. hæð norður, fyrir ómetanlegan stuðning og vinarhug
og einstaklega góða umönnun.
Hulda Guðmundsdóttir
Kristbjörg Sóley Hauksdóttir
Guðrún G. Hauksdóttir
Albert Svanur Heimisson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Kristín Steinþórsdóttir
Austurbrún 6, Reykjavík,
lést þann 20. október. Útför hennar fer fram frá
Áskirkju miðvikudaginn 2. nóvember kl. 13.00.
Laugheiður Bjarnadóttir Ketill R. Tryggvason
Steinþór Nicolai
Sigurður Nicolai
Kristinn Nicolai
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengda-
faðir, afi og bróðir,
Karl Sigurður Njálsson
Melbraut 5, Garði,
lést á líknardeild Landakots 20. október. Útför hans
var gerð frá Útskálakirkju 28. október. Innilegar þakk-
ir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 11 C og 11 B
Landspítala við Hringbraut og á líknardeild Landakots.
Guðrún Ágústa Sigurðardóttir
Anna Sigrún Karlsdóttir
Njáll Karlsson Lilja Víglundsdóttir
Arnar Karlsson Bergþóra Ólafsdóttir
Þóra Bryndís Karlsdóttir Hlöðver Sigurðsson
Sigrún Karlsdóttir Jón Ingi Bjarnfinnsson
Þóra Sigríður Njálsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elsku móðir okkar, eiginkona
og amma,
Vanda Lunkevic
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
28. október. Útför hennar fer fram frá Landakotskirkju
fimmtudaginn 4. nóvember kl. 14.30. Erfisdrykkja fer
fram á Hótel Borg eftir messu.
Innilegar þakkir sendum við starfsfólki á deild 11E.
Irena Lunkevic
Angelika Lunkevic
Stanislav Lunkevic
Ivan Lunkevic
Daniel Lunkevic
Любимая мама, жена и бабушка
Ванда Лункевич Скончалась в больнице,в пятницу 28-го
октября. Похоронная церемония пройдёт в католиче-
ском костёле Ландакот в четверг 4-го ноября,в 14:30.
Поминки состоятся после службы в ресторане Hotel Borg.
Выражаем искреннюю благодарность работникам
отделения 11Е
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
María Guðbjörg
Snorradóttir
Fjallalind 18, Kópavogi,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi sunnudaginn 30. október síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn
7. nóvember kl. 13.00.
Þorsteinn Theodórsson
Kristín Hlín Þorsteinsdóttir Morten Praem
Sigurður Þorsteinsson Guðrún Guðbjörnsdóttir
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir Sigurður Andrésson
Theodóra S. Þorsteinsdóttir Ólafur Viggósson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur stuðning, samhug og hlýju
við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar Rebekku
Kristinsdóttur
Rekagranda 8, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameins-
deildar 11 E LSH, starfsfólki líknardeildar LSH í
Kópavogi og Heimahjúkrun Karitas.
Brimrún Höskuldsdóttir Ragnar Arnarson
Heiðrún Höskuldsdóttir Guðjón P. Hjaltalín
Kristín Höskuldsdóttir Sverrir Örn Björnsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hallgrímur Vilhjálmsson
áður til heimilis að Víðimýri 9,
Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Kjarnalundi laugardaginn
29. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 4. nóvember klukkan 13.30.
Herdís Jónasdóttir
Jónas Hallgrímsson Anna Ólafía Þorgilsdóttir
Vilhjálmur Hallgrímsson Arnfríður Jónasdóttir
Elinór Hallgrímsson
Katrín Hallgrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartkær eiginmaður minn, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi, bróðir og mágur,
Ólafur H. Óskarsson
landfræðingur og fv. skólastjóri,
Logalandi 16, Reykjavík,
lést í Gautaborg mánudaginn 24. október. Jarðsungið
verður frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. nóvember
kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeir sem vilja minnast hans láti Rauða kross Íslands
njóta þess.
Ingibjörg Björnsdóttir
Vilhjálmur Þorsteinsson Anna Ragna Magnúsardóttir
Þorsteinn og Hlín
Björn Þorsteinsson Sigrún Sigurðardóttir
Snædís, Matthildur og Lena Charlotta
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir Ásgeir Thoroddsen
Tómas Jökull, Ingibjörg og Svanbjörn Orri
Signý Þ. Óskarsdóttir
Anna H. Óskarsdóttir Þorgrímur Ólafsson
Þráinn Sigurbjörnsson
Skarphéðinn P. Óskarsson Valgerður G. Björnsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
Kristín Guðbjörg
Magnúsdóttir
áður til heimilis að Kambsvegi 22,
lést 21. október sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 4. nóvember kl. 13.00.
Magni Guðmundsson Halldóra Þorvaldsdóttir
Halla Soffía Guðmundsdóttir Halldór K. Karlsson
Viðar Guðmundsson Stella Berglind
Hálfdánardóttir
Margrét Heiðdís Guðmundsdóttir Jóhann G. Guðbjartsson
Oddný Guðfinna Guðmundsdóttir Hörður Hallgrímsson
Sigurgeir Guðmundsson Svava Þorsteinsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
timamot@frettabladid.is
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir, atvinnu- og hlunninda-
ráðgjafi Bændasamtakanna, ræðir um íslenskan æðar-
dún á fræðslukvöldi í fyrirlestraröðinni Spegill fortíðar í
Sjóminjasafninu Víkinni klukkan átta í kvöld. Þar bendir
hún á mikilvægi íslensks æðardúns en markaðshlutdeild
hans er um 80-90 prósent á heimsmarkaði og því ljóst að
um mjög sjaldgæfa og verðmæta afurð er að ræða.
Guðbjörg Helga mun fara yfir sögu æðarræktar á Íslandi
og segja frá einstöku vinasambandi sem hefur þróast milli
æðarbænda og æðarfuglsins. Hún fjallar um eiginleika
æðardúns, verkun hans og framreiðsluferli og mikilvægi
þess að efla innlendan markað. „Hlutverk mitt hjá Bænda-
samtökunum er meðal annars að byggja upp heimamarkað-
inn sem hefur að mestu horfið. Áður fyrr áttu flestir Íslend-
ingar æðardúnsængur en síðustu ár og áratugi hefur nær
allur íslenskur æðardúnn farið í útflutning enda eftirspurn-
in mikil og útflutningsverðið gott. Við ættum hins vegar að
vera leiðandi og stolt af þessari vöru en æðardúnsængurnar
eru vel metnar erlendis og seljast sumar á yfir tvær millj-
ónir stykkið svo dæmi séu nefnd,“ segir Guðbjörg Helga.
Ýmis jákvæð teikn eru þó á lofti og er til að mynda búið
að endurgera Hlunnindasýninguna á Reykhólum auk þess
sem búið er að opna Æðarsetur Íslands á Stykkishólmi. „Þá
er unnið að ýmiskonar markaðstengdu efni. Í því felast ekki
eingöngu tækifæri fyrir æðardúnbændur heldur einnig
aðrar atvinnugreinar. Það mætti til dæmis hefja æðarfugl-
inn sjálfan til vegs og virðingar og framleiða minjagripi og
annað í þeim dúr. Eins væri hægt að efla ferðaþjónustuna
með því að bjóða ferðamönnum og fuglaáhugafólki í auknum
mæli að skoða íslensk æðarvörp sem eru einstök.“
Á Íslandi eru 400 æðardúnbændur og eru um það bil
þrjú tonn af æðardúni flutt út á ári hverju. Mest er flutt til
Þýskalands, Austurríkis og Japans en þar er eftirspurnin
jafnframt mest. Æðardúnninn er alloft fluttur til Evrópu
og settur í sængur þó sífellt fleiri íslenskir bændur full-
vinni afurðina heima. „Stefnan er að fullvinnslan verði með
tímanum alfarið innlend,” segir Guðbjörg Helga.
Hún segir samband æðardúnbænda og fuglsins einstakt.
„Dæmi eru um að bændur girði varpið af til að verja það
fyrir rándýrum og beiti aðferðum eins og að láta útvarp
ganga á varpsvæðinu á viðkvæmum tímum, en það fælir
einnig frá. Aðferðir við dúntekju eru misjafnar en oft er
dúnninn ekki tekinn fyrr en fuglinn er farinn úr hreiðr-
inu. Fyrirkomulagið verður til þess að ungarnir koma síðar
og verpa á heimaslóðum sem er auðvitað hagur bóndans. Á
Grænlandi og víðar eru fuglarnir drepnir og læra af reynsl-
unni að verpa langt frá mannabyggðum. Hér vilja þeir jafn-
vel vera inni í hlöðu,“ lýsir Guðbjörg Helga. vera@frettabladid.is
GUÐBJÖRG HELGA JÓHANNESDÓTTIR:
FJALLAR UM ÆÐARDÚN Í VÍKINNI
Þarf að efla
heimamarkað
EFTIRSÓTT VARA Guðbjörg ásamt Friðriki Jónssyni, æðarbónda á
Æðarsetri Íslands sem var opnað í Stykkishólmi í sumar.
Mynd/Tjörvi Bjarnason
HRAFN JÖKULSSON rithöfundur er 46 ára í dag
„Veraldir þeysa hjá og þú hlustar eftir
haldbærustu þögninni.“
46