Morgunblaðið - 13.09.2010, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.09.2010, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2010 FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Svo virðist sem ábyrgð og virðing fyr- ir reglum hafi verið ábótavant bæði á íslenskum fjármálamarkaði og stjórn- sýslu ef marka má niðurstöður skýrslu þingmannanefndar sem fjallað hefur um rannsóknarskýrslu Alþingis. Nefndin leggur til að reglur um fjármálafyrirtæki á Íslandi verði hertar og lög um valdsvið og ábyrgð ráðherra og sjálfstæðra stofnana verði skerpt. Það er dómur nefndarinnar að stjórnendur og aðaleigendur íslensku fjármálafyrirtækjanna beri mesta ábyrgð á fjármálahruninu og að fjár- málastarfsemi hérlendis hafi að miklu leyti einkennst af slæmum viðskipta- háttum og vanvirðingu fyrir lögum og reglum. Þá hafi skort siðferðislega og samfélagslega ábyrgð og nefnir nefndin stofnun Icesave-reikning- anna, víðtæk krosseignatengsl og verðbréfaviðskipti við stærstu eig- endur og lánveitingar til þeirra sem dæmi um það. Leggur nefndin til að mörkuð verði skýr opinber stefna um hvers kyns fjármálakerfi samræmist stærð og þörfum þjóðarbúsins og hvert hlut- verki ríkisins í rekstri fjármálafyrir- tækja verði í framtíðinni. Því sé nauð- synlegt að endurskoða löggjöf um fjármálafyrirtæki og kauphallir. Sér- staklega mikilvægt telur nefndin að taka afstöðu til þess hvort aðskilja eigi innlánsstofnanir og fjárfestingar- banka og innlenda og erlenda starf- semi sem samstæðu félaga. Þá leggur nefndin til að óheimilt verði að lána starfsmönnum fjármála- fyrirtækja fé til kaupa á hlutabréfum með veði í bréfunum. Telur þing- mannanefndin að lögbinda eigi ákvæði sem setja strangari skorður við því að fyrirkomulag launa- og líf- eyrisgreiðslna til starfsmanna fjár- málafyrirtækja leiði til aukinnar áhættusækni í rekstri þeirra. Áfellisdómur yfir stjórnsýslu Íslensk stjórnsýsla fær harða út- reið hjá þingmannanefndinni sem segir rannsóknarskýrsluna vera áfell- isdóm yfir verklagi hennar og skorti á formfestu í ráðuneytum og sjálfstæð- um stofnunum sem undir þau heyra. Það oddvitaræði sem tíðkast hafi í ís- lenskum stjórnmálum hafi veikt fag- ráðherra þannig að ábyrgð og eftirliti þeirra með sjálfstæðum stofnunum hafi virst verulega ábótavant. Leggur nefndin til endurskoðun á stjórnsýslulögum, upplýsingalögum og lögum um Stjórnarráðið. Telur hún að gera verði breytingar á lögum og reglum þannig að komið verði í veg fyrir að einstakir ráðherrar gangi inn á vald- og ábyrgðarsvið annarra ráð- herra. Skarist valdsvið tveggja eða fleiri ráðherra ber þeim með formleg- um hætti að hafa samvinnu um þau vinnubrögð sem viðhöfð skuli hverju sinni þannig að ávallt sé ljóst á ábyrgðarsviði hvers þeirra er starfað. Sameining Seðlabanka og FME Nefndin segir að verk- og ábyrgð- arsvið samráðshóps um fjármálastöð- ugleika hafi verið óljóst, heildaryfir- sýn hafi verið engin og mat og greining á aðstæðum hafi ekki legið fyrir. Meðal annars vegna þessa hafi íslensk stjórnvöld verið vanbúin til að mæta þeirri yfirvofandi hættu sem bankakerfið stóð frammi fyrir. Þá segir hún nauðsynlegt að skýrt verði hvaða stofnun sé ætlað að hafa heild- aryfirsýn yfir kerfisáhættu, fjármála- legan stöðugleika og bera ábyrgð á að samræma viðbrögð. Skerpa þurfi á verkaskiptingu stofnana ríkisins og afmarka betur skyldur stofnana og embættismanna. Í því sambandi leggur nefnd- in til að gerð verði stjórn- sýsluúttekt á vegum Al- þingis á Fjármálaeftirlitinu og Seðlabanka Íslands. Þá leggur hún til að í kjölfarið verði metnir kostir og gallar sameiningar Seðla- bankans og Fjármálaeft- irlitsins. Telur nefndin mikilvægt að við slíkt mat verði höfð hliðsjón af þeirri reynslu er til varð við bankahrunið fyrir tveimur árum. Vanvirðing fyrir reglum  Stjórnendur og aðaleigendur fjármálafyrirtækjanna bera mesta ábyrgð á fjármálahruninu  Þingmannanefnd leggur til endurskoðun löggjafar um fjármálafyrirtæki og stjórnsýslu Morgunblaðið/Ernir Fundir Þingmannanefndin fundaði alls 54 sinnum frá því í janúar. Þingmannanefndin leggur einn- ig til að gerð verði sjálfstæð og óháð rannsókn á vegum Alþing- is á starfsemi lífeyrissjóða á Ís- landi. Að sögn nefndarinnar kalla málefni lífeyrissjóðanna á sér- staka rannsókn og greiningu sem rannsóknarnefnd Alþingis hafi ekki verið unnt að gera. Þegar niðurstöður slíkrar rann- sóknar liggi fyrir sé mikilvægt að vönduð umræða fari fram um hlutverk lífeyrissjóða í framtíð- inni, starfshætti þeirra og fjár- festingarstefnu. Í kjölfar þess fari fram heildarendurskoðun á stefnu og starfsemi lífeyr- issjóðanna. Þá leggur þingmanna- nefndin til að gerð verði sjálf- stæð og óháð rannsókn á vegum Alþingis á aðdraganda og orsökum falls sparisjóða á Íslandi. Þingmannanefndin telur að rannsaka þurfi fjöl- margt í starfsemi sparisjóð- anna, að minnsta kosti frá því að viðskipti með stofnfé voru leyfð. Lífeyrissjóðir rannsakaðir TILLAGA NEFNDARINNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.