Ný saga - 01.01.1991, Síða 70

Ný saga - 01.01.1991, Síða 70
Krístín Ástgeirsdóttir stæðisbaráttunni. Ég hélt að ég myndi lítið finna, en annað kom í ljós. Ég hafði ekki lengi leitað þegar ég áttaði mig á því að framlags var ekki að vænta í blaðaskrifum eða funda- höldum, þótt hvort tveggja ætti sér stað, heldur beittu konur sér á öðrum sviðum. Sjálf- stæðisbaráttan fólst nefnilega ekki eingöngu í því að gera kröfur á hendur Dönum, með því að samþykkja tillögur á Alþingi eða á Þingvallafundum, heldur varð baklandið að vera til í sterkri þjóðarvitund og stuðningi við baráttuna. Hér er ekki rúm til að rekja sjálfstæðisbaráttuna en þó skal þess getið að smátt og smátt byggðist upp sjálfstæðishreyfing sem náði ekki síður til bókmennta, varðveislu tungu- málsins, stofnunar íslenskra skóla og endurbóta á þjóðbúningi íslenskra kvenna, en til hinna hörðu stjórnmála. Mér sýnist að það sé einkum í skólamálum og í tilurð skautbúningsins nýja sem framlag kvenna er að finna að því ógleymdu að konur saumuðu bæði fálkafána Sigurðar Guðmundssonar og bláhvíta fánann í tugatali en hann má telja þelsta tákn sjálfstæðisbaráttunnar um og eftir síðustu aldamót. Meðan deilt var á Alþingi um Stöðulög, landstjóra, jarl og annað sem snerti stjórn- skipanina, stóðu hópar kvenna í Reykjavík og norður í landi fyrir stofnun kvennaskóla. íslenskur háskóli var eitt af helstu baráttumálum Hins íslenska kvenfélags sem stofnað var 1894. Þarna fléttuðust kvenréttindabaráttan og sjálf- stæðisbaráttan saman, allt var þetta hluti af þjóðlegri endurreisn. Mér sýnist augljóst að konur létu sjálfstæðisbaráttuna æ meira til sína taka eftir því sem leið á öldina 19. Undir lok aldarinnar fara að birtast greinar eftir konur í blöðum og tímaritum um sjálfstæðis- baráttuna, en þess ber að geta að heimildir um konur á fyrri hluta 19. aldar eru af skornum skammti og enn að mestu ókannaðar. Það verður að bíða betri tíma að draga upp heildarmynd af hlut kvenna í sjálfstæðis- baráttunni. Eftir þennan inngang ætla ég að þrengja sjónarhornið taka stefnuna yfir Skerjafjörð og leita í smiðju til konu þeirrar sem um áratugaskeið var húsfreyja á höfuðbólinu Bessastöðum. Konan heitir Ingibjörg Jónsdóttir, lifði fram yfir miðja 19. öld og var í nánd við kviku jDjóðlífsins. Valið ræðst af |wí að miklar heimildir eru til um Ingibjörgu. Hún var iðinn bréfritari enda hafði hún ástæðu til. Einkabróðir hennar bjó löngum erlendis og síðar hennar elskaði en brokkgengi sonur, en dæturnar tvær úti í sveit. Úr bréfum hennar má lesa örlög langrar ævi sem stundum voru grimm, stundum blíð. Ingibjörg var áhorfandi sem fylgdist vel með frá heimili sínu á Bessastöðum, en hún var ekki gerandi í stjórnmálum fremur en konur almennt á hennar tíð. VINNUKONA í VIÐEY Ingibjörg Jónsdóttir fæddist í Görðum á Akranesi 26. júlí 1784.' Hún var aðeins nokkurra vikna gömul er gríðarlegur landskjálfti gekk yfir Suðurland og jók enn á hörmungar landsmanna sem þá glímdu við afleiðingar Skaftáreldanna. Faðir Ingibjargar var séra Jón Grímsson, en móðir hennar hét Kristín Eiríksdóttir og var alin upp hjá Ólafi Stephensen stiftamtmanni í Viðey. Árið 1785 eignaðist Ingibjörg bróður sem skírður var Grímur og átti síðar eftir að þjóna sem embættis- maður Danakonungs bæði í Danmörku og hér á landi. Ekki urðu þau systkini fleiri. Er Ingibjörg var 13 ára gömul dó faðir hennar og þá var ekki um annað að ræða en að yfirgefa prestssetrið. Kristín fór með börnin til síns gamla húsbónda í Viðey og vann þar sem vinnukona þar til hún varð ráðskona eftir dauða frú Sigríðar Magnúsdóttur.z Ingibjörg varð einnig vinnu- kona á stórbýlinu hjá Ólafi stiftamtmanni sem gerðist býsna gamall og stirður í lund. „í sannleika sagt eru það dauðleg leiðindi að stríða við hann“ skrifar Ingibjörg í bréfi til Gríms bróður síns 1812.3 Ingibjörg óttaðist framtíð þeirra mæðgnanna að Ólafi látnum, en þurfti engu að kvíða því Magnús konferensráð Step- hensen bauð þeim vist er hann tók við búi í Viðey. Það er merkilegt að Ólafur stift- amtmaður hafði um árabil í sinni umsjá þrjár gamlar konur, maddömurnar og ekkjufrúrnar Guðrúnu Skúladóttur (dóttur Skúla fógeta), Ragnheiði Þórarinsdóttur (ekkju Jóns Skúlasonar) og Kristínu móður Ingibjargar. Þegar Magnús Stephensen tók við búi í Viðey fékk hann gömlu konurnar í arf.3 Grímur bróðir Ingibjargar naut góðs af dvölinni í Viðey og Úr bréfum hennar má lesa örlög langrar ævi sem stundum voru grimm, stundum blíð. Ingibjörg var áhorfandi sem fylgdist vel með frá heimili sínu á Bessastöðum, en hún var ekki gerandi í stjórnmálum fremur en konur almennt á hennar tíð. I fá/ur, 'PreruJ-^dty Jd (3 Q? ýn/fáe/ rr'(J~7 Rithönd Ingibjargar Jónsdóttur. 68
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.