Ný saga - 01.01.2000, Blaðsíða 87

Ný saga - 01.01.2000, Blaðsíða 87
Hús með sál - þjóðarsál augnablikinu og sjónrænu gildi gjörðabókar- innar. Þrátt fyrir ýtarlega fundargerðina, þar sem hvert orð og hvert atvik virðist skráð, virkar uppgjör Þjóðfundarins eins og æft leik- rit, eins og allir (flestir) fundarmenn hafi ákveðið fyrirfram að kalla í kór við útgöngu kongungsfulltrúans: „Vér mótmælum allir“. Þegar augu sýningargestsins hvarfla af orðun- unt helgu sér hann málverk af Þjóðfundar- mönnurn hangandi yfir gættinni: Jón Sigurðs- son hefur staðið upp og þrýstir krepptum hnef- um í borðplötuna og upphefur mótmælin. Nú er gjörðabókin komin á stall sem dýrasta djásn ríkisins; þar sem konungsríkin sýna krýningarkórónuna fangar íslenska ríkið augnarblikið þar sem samstaða íslensku jrjóð- arinnar gegn erlendu kúgunarvaldi nær tákn- rænu hámarki - þetta er ekki bara lykillinn að sjálfstæðisbaráttunni heldur að tilveru þjóð- arinnar. ímyndarhönnun Þjóðmenningarhúss Við opnun Þjóðmcnningarhússins sagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra: Á sínum tíma lagði ég til, að Þjóðmenning-, arhúsið flyttist af forræði menntamála- ráðuneytis til forsætisráðuneytis og gekk það el'tir, góðu heilli. Helslu rökin fyrir Jrví voru að skipa húsinu sess með öðrum þjóð- artáknum okkar. Forsætisráðuneytið fer lil dæmis stjórnarfarslega nteð málefni Þing- valla, þá gætir það virðingar skjaldarmerk- isins, fánans og þjóðsöngsins. Nú er þessari byggingu skipaður sambærilegur virðingar- sess og þar á hún sannarlega heima.3 Við markaðsetningu á hugmyndinni unt Þjóð- menningarhús hafa stjórnvöld farið þá leið að kynna húsið mjög eindregið sem þjóðernis- legt tákn. Eins og ummæli menntamálaráð- herra bera með sér er markmiðið að gera hús- ið eilt af táknum þjóðríkisins. Með samneyli við helg tákn ríkisins mun húsið, að mati ráð- herrans, öðlast samskonar virðingu og verða að samskonar einingarafli og skjaldamerkið, l'áninn og þjóðsöngurinn. Með því að tengja húsið Þingvöllum er gerð meðvituð tilraun til að láta heilagleika helgasta staðar íslendinga sem Jrjóðar ná líka til Þjóðmenningarhússins. Þeim táknum sent ráðherra vill tengja bygginguna var gefið hlutverk sitt á mótunar- skeiði þjóðríkisins. Vissulega var húsið reist á árunum þegar þjóðríkið var í deiglunni og kannski er það þess vegna sem stjórnvöldum datt í hug, nú í lok 20. aldar, að bæta því í hóp þjóðartákna. En það breytir því ekki að Þjóðmenningarhúsið sem opinbert þjóðar- tákn er nýtt sköpunarverk, orðið til í orðræðu þeirra sem nú sitja í Stjórnarráðinu. Það telst varla áhlaupaverk að taka sér l'yrir hendur að skapa nýtt opinbert þjóðar- tákn í lok 20. aldar. Einkanlega á það við urn þetta hús því það er hvorki augljóst né sjáll'- gefið efni í slíkt tákn. I samanburði við Þing- velli, sem Guðmundur Hálfdanarson hefur nýlega lýst sem liinu fullkomna, hlutlausa, þjóðartákni, er Þjóðmenningarhúsið hlaðið merkingu úr sögu sinni sem gerir það að fremur ólíklegu einingartákni. Að áliti Guð- mundar eru Þingvellir sérlega vel heppnað |rjóðartákn, sem „staður minninganna“ eins og hann orðar það, lausir við að tengjast ein- um hópi Islendinga fremur en öðrum.4 En ef litið er til sögu Þjóðmenningarhússins er erl'itt að samþykkja athugasemdalausl þá mynd sem forsætisráðherrann dró upp við opnunarathöfn þess: „í upphafi þessarar aldar varð þelta liús táknmynd þess, hvernig Mynd 8. Án bóka hefðu íslendingar glatað sérstöðu sinni og þjóðerni. Bækur eiga því skilið að vera settar í önd- vegi, bak við gler. Mynd 9. Ufsa-Kristur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.