Morgunblaðið - 08.07.2011, Blaðsíða 3
nu. Gunnar Þór Gunnarsson fékk að
ika sinn fyrsta leik í byrjunarliði síð-
n hann sleit krossband í ágúst í fyrra,
g stóð sig vel í stöðu miðvarðar. Björn
ónsson var svo fremstur á miðjunni
g lék sinn fyrsta meistaraflokksleik
á upphafi en hann fór til Heerenveen
Hollandi aðeins 15 ára gamall árið
005. Hann sneri svo til Íslands í jan-
ar og valdi að leika með KR en hann
r uppalinn Skagamaður. Björn sýndi
ábæra takta inn á milli og ég er viss
m að í góðu leikformi eru þeir Björn
g Gunnar í fremstu röð í íslensku
eildinni.
„Ég hef mikið þurft að glíma við
eiðsli og leikurinn í dag var minn
yrsti í 10 mánuði. Það er gaman að
oma aftur á völlinn og þetta var góð
yrjun,“ sagði Björn hógvær en hann
koraði í leiknum og hefði hæglega
etað bætt við fleiri mörkum. Sú stað-
reynd að þessir sterku leikmenn eru að
koma nýir inn hjá KR á þessum tíma
sýnir hvílík gæði eru í leikmannahópi
liðsins. Ekki veitir af á næstunni.
KR hefur nú unnið átta leiki í röð í
öllum keppnum og ekki tapað leik í allt
sumar. Næsti andstæðingur liðsins í
Evrópudeildinni er hins vegar Zilina
frá Slóvakíu. Zilina komst í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð,
eftir að hafa slegið út Spörtu Prag, og
ljóst er að þar er margfalt sterkara lið
á ferðinni en ÍF. Það má því segja að
KR þurfi nú að klífa fjall á borð við Ki-
limanjaro eftir að hafa lagt Esjuna að
fótum sér, með fyrirvara um að það sé
hrikalega erfitt að klífa þetta stærsta
fjall Afríku. Sigurinn í gær virkaði þó
kannski svona auðveldur einfaldlega
vegna þess að KR-ingar leystu verk-
efnið af þeirri miklu fagmennsku sem
þeir hafa sýnt í sumar.
Morgunblaðið/Ernir
msta miðjumanns á KR-vellinum í gær og leysti hlutverk sitt feykivel í fyrsta meistaraflokksleik sínum en hann hefur verið sex síðustu ár í Hollandi.
junni upp á Kilimanjaro
ga frá upphafi í Evrópukeppni Slógu færeyska liðið ÍF út með sex marka mun
r spilaði í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vetur Draumabyrjun Björns
Morgunblaðið/hag
Erlendis Ragnheiður Ragnarsdóttir ætlar sér að æfa og keppa á erlendri grundu í vetur með lágmörkin fyrir Ólympíuleikana í sigtinu.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2011
Hörður AxelVilhjálms-
son, landsliðs-
maður í körfu-
knattleik sem
hefur spilað með
Keflavík síðustu
ár, hefur skrifað
undir þriggja ára
samning við
þýska félagið Mitteldeutscher BC.
Frá þessu er sagt á vef þýska félags-
ins sem leikur í 2. deildinni á komandi
tímabili eftir að hafa verið í efstu
deild undanfarin ár. Hörður Axel er
22 ára gamall bakvörður og lék áður
með Fjölni en hann skoraði 16,5 stig í
leik fyrir Keflvíkinga síðasta vetur.
Stúlknalandslið Íslands í knatt-spyrnu gerði jafntefli, 1:1, við
Noreg í lokaleik sínum í riðlakeppni
Norðurlandamótsins í Finnlandi í
gær. Hildur Antonsdóttir jafnaði fyr-
ir Ísland á 35. mínútu. Ísland fékk 2
stig, gerði einnig jafntefli við Þýska-
land en tapaði 2:3 fyrir Frakklandi í
geysisterkum riðli. Liðið varð í þriðja
sæti hans og spilar því um 5. sætið á
mótinu.
Piltalandsliðið í handknattleik,U19 ára, vann Austurríki, 27:23,
og Eistland, 24:20, í keppninni um 9.-
15. sæti á Opna Evrópumótinu í
Gautaborg í gær. Sveinn Aron
Sveinsson var markahæstur gegn
Austurríki með 10 mörk en Magnús
Óli Magnússon skoraði mest gegn
Eistlandi, 4 mörk. Ísland leikur í dag
við Hvíta-Rússland um 9. sætið á
mótinu.
Anton Sveinn McKee úr Ægihafnaði í fimmta sæti í 1.500
metra skriðsundi á Evrópumeist-
aramóti unglinga í Belgrad, höf-
uðborg Serbíu, í gær. Anton synti á
15:49,10 mínútum og var fjórum sek-
úndum frá Íslandsmeti sínu í grein-
inni.
Frakkinn Zi-nedine Zid-
ane var í gær ráð-
inn yfirmaður
knattspyrnumála
hjá spænska stór-
liðinu Real Ma-
drid en Zidane lék
með Madridarlið-
inu á árum áður.
Zidane segist
munu starfa náið með þjálfaranum
José Mourinho. „Ég verð yfirmaður
knattspyrnumála í fyrsta sinn og
þetta verður bara mjög spennandi og
ánægjulegt að fá að vinna með þessu
frábæra félagi,“ sagði Zidane á
fréttamannafundi í gær þegar til-
kynnt var um ráðningu hans.
Ragna Ingólfsdóttirkomst í gær í 2. umferð á al-
þjóðlegu badmintonmóti í Rússlandi.
Hún vann Lauru Vana frá Eistlandi í
gær, 21:19 og 21:13, og í dag mætir
hún Mariu Ulitina frá Úkraína. Sú er
í 88. sæti heimslistans en Ragna er í
73. sætinu. Ragna er metin áttundi
sterkasti keppandinn á mótinu.
Halldór Eyþórsson úr Breiðablikivann til tvennra brons-
verðlauna í 83 kg flokki á Evr-
ópumeistaramóti öðlinga, 50-59 ára, í
Tékklandi. Halldór lyfti 250 kg í hné-
beygju og 252,5 kg í réttstöðulyftu.
Hann féll hinsvegar úr leik í heild-
arkeppninni þar sem réttstöðulyfta
hans þar var ekki lögleg.
Enska knattspyrnufélagið Sun-derland keypti í gær varn-
armennina reyndu Wes Brown og
John O’Shea af Manchester United
og samdi við þá báða til fjögurra ára.
Kaupverð var ekki gefið upp. Fé-
lagarnir tveir eru 31 og 30 ára gamlir
en hafa báðir spilað allan sinn feril
með United.
Fólk sport@mbl.is
KR-völlur, Evrópudeild UEFA, 1. umferð í
forkeppni, seinni leikur, fimmtudag 7.
júlí 2011.
Skilyrði: Rjómablíða, logn og sól.
Mörk KR: Guðjón Baldvinsson 19., 56.,
Björn Jónsson 23., Kjartan Henry Finn-
bogason 47., Óskar Örn Hauksson 90.
Mörk ÍF: Nenad Saric 88.
Skot: KR 18 (11) – ÍF 9 (2).
Horn: KR 5 – ÍF 8.
Lið KR: (4-3-3) Mark: Hannes Hall-
dórsson. Vörn: Magnús Már Lúðvíksson
(Aron Bjarki Jósepsson 56.), Skúli Jón
Friðgeirsson, Gunnar Þór Gunnarsson,
Jordao Diogo. Miðja: Bjarni Guð-
jónsson (Ásgeir Örn Ólafsson 38.),
Baldur Sigurðsson, Björn Jónsson
(Guðmundur Gunnarsson 68.). Sókn:
Óskar Örn Hauksson, Guðjón Baldvins-
son, Kjartan Henry Finnbogason.
Lið ÍF: (4-3-3) Mark: Jákup Mikkelsen.
Vörn: Áki Petersen, Bartal Eliassen, Uni
Petersen (Karl Lökin 59.), Jan Ell-
ingsgaard. Miðja: Aleksandar Jovevic
(Fritleif í Lambanum 59.), Bogi Lökin,
Högni Zachariassen. Sókn: Danjál á
Lakjuni, Christian Muomaife (Franck
Poulsen 71.), Nenad Saric.
Dómari: Dag Vidar Hafsås, Noregi.
Áhorfendur: 877.
KR áfram, 8:2 samanlagt, og mætir
Zilina frá Slóvakíu.
KR – ÍF 5:1