Morgunblaðið - 31.10.2011, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2011
Sudoku
Frumstig
7
3 9
2 8 9
9 5
6 8
2 1 3 6
2 5 3
3 1 8 2 6
6 9 1 5
3 4
2 9
1 5 8 7
4 9
8 7 3 9 2
5
8 2 1
1 7
2 4
8
3 1
7 4 9
2 8 3 5 9
5 8
2
9 4 7 8 3
6 5
7 3 9 1
9 2 3 5 8 6 7 1 4
8 1 5 7 9 4 6 3 2
7 6 4 1 2 3 5 9 8
4 8 2 9 6 1 3 7 5
6 3 7 4 5 2 9 8 1
5 9 1 3 7 8 2 4 6
3 7 6 8 4 5 1 2 9
2 4 9 6 1 7 8 5 3
1 5 8 2 3 9 4 6 7
5 6 7 1 2 8 4 9 3
2 9 3 7 6 4 1 8 5
8 1 4 3 5 9 6 7 2
1 2 8 6 4 3 9 5 7
7 3 6 9 8 5 2 4 1
4 5 9 2 1 7 8 3 6
6 8 5 4 7 2 3 1 9
3 7 2 8 9 1 5 6 4
9 4 1 5 3 6 7 2 8
2 1 5 3 6 7 8 4 9
3 8 7 1 9 4 5 2 6
9 4 6 5 2 8 3 1 7
7 5 8 4 1 2 6 9 3
4 6 9 7 3 5 2 8 1
1 3 2 9 8 6 4 7 5
6 7 4 2 5 9 1 3 8
5 9 3 8 4 1 7 6 2
8 2 1 6 7 3 9 5 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 31. október,
304. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.)
Víkverji dagsins hefur ákaflegagaman af vinsælum flökkusög-
um og goðsögnum sem stundum eiga
sér einhverjar rætur í veruleikanum.
En nýlega sá hann að frásögn sem
hann hafði alltaf talið að væri sönn er
vægast sagt hæpin.
x x x
Margir kannast við söguna af þvíþegar skelfing greip um sig í
Bandaríkjunum vegna útvarpsþáttar
árið 1939 um lendingu herskárra
Marsbúa á jörðinni. Orson Welles,
sem þá var aðeins 23 ára, stjórnaði
þættinum sem var byggður á frægri
sögu eftir H.G. Wells frá 1898.
x x x
En nú hefur sálfræðiprófessorinnHadley Cantril við Princeton-
háskóla farið í saumana á málinu,
kannað blaðafrásagnir og hvort mýt-
an hafi við rök að styðjast. Nið-
urstaðan er að líklega hafi sex millj-
ónir manna hlustað á leikritið. Þar af
hafi varla meira en 1,2 milljónir orðið
óttaslegnar sem er auk þess ekki
sama og að segja að fólkið hafi verið
skelfingu lostið.
Langflestir áttuðu sig á að þátt-
urinn var ekki raunveruleg frétta-
umfjöllun þótt hann væri settur
þannig fram. Og enginn framdi
sjálfsvíg af hræðslu eins og oft hefur
verið fullyrt. Sem sagt, tómar ýkjur –
en Welles varð heimsfrægur!
x x x
Málið sannfærir Víkverja um aðhann á aldrei að trúa öllu sem
stendur í blöðunum og enn síður því
sem hann heyrir í útvarpi. Og það er
líka ýkt og logið í sjónvarpi, myndin
segir ekki alltaf allan sannleikann.
x x x
En að alvarlegra máli. Heilbrigð-isútgjöld eru ekki heilög frekar
en aðrir liðir á fjárlögum og vafalaust
hafa þar verið dæmi um sóun. Vík-
verji veltir fyrir sér hvort ekki þurfi
að gera meira af því að reyna að
mæla „arðinn“ af ýmsu sem gert er á
heilbrigðisstofnunum. Víkverji hefur
sjálfur rekist á dæmi um augljósar
oflækningar.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 duglaus maður, 8
fugl, 9 óframfærnir menn,
10 raklendi, 11 kremja, 13
fífl, 15 lífs, 18 lúin, 21 ætt, 22
bál, 23 fiskar, 24 hryssings-
legt.
Lóðrétt | 2 gangfletir, 3
garma, 4 haf, 5 land, 6 hæð-
um, 7 vex, 12 hestur, 14
andi, 15 ágeng, 16 bárur, 17
rusl, 18 matarsamtíningur,
19 heiðarleg, 20 dauft ljós.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kólga, 4 flæsa, 7 impra, 8 úðinn, 9 lýk, 11 aðan, 13 stór,
14 áliti, 15 gnoð, 17 flas, 20 ógn, 22 Regin, 23 orkan, 24 aurar,
25 paufa.
Lóðrétt: 1 keipa, 2 loppa, 3 aðal, 4 fjúk, 5 æsist, 6 agnar, 10 ýf-
ing, 12 náð, 13 Sif, 15 gúrka, 16 orgar, 18 lukku, 19 senda, 20
ónar, 21 norp.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ólík nálgun. S-Allir.
Norður
♠DG943
♥K742
♦93
♣D9
Vestur Austur
♠65 ♠Á10
♥DG1053 ♥86
♦DG6 ♦10542
♣G84 ♣107653
Suður
♠K872
♥Á9
♦ÁK87
♣ÁK2
Suður spilar 6♠.
Undanúrslitaleikur Hollendinga og
Ítala var í jafnvægi fram í miðja sjöttu
og síðustu lotu. Þá tóku Hollendingar
forystuna með því segja tvær gull-
fallegar slemmur, sem Ítalir misstu.
Önnur kom upp úr sterkri opnun á 2G í
suður.
Sjoert Brink í norður yfirfærði í spað-
ann með 3♥ og Bas Drijver tók sterkt
undir með fyrirstöðusögn á 4♣. Þar með
var málið svo gott sem afgreitt.
Á hinu borðinu fór Ítalinn Alfredo
Versace aðra leið – spurði um háliti með
3♣. Lorenzo Lauria neitaði hjartalit
með 3♦ og Versace sýndi þá skipt-
inguna í hálitunum með gervisögninni
4♦. Sú aðferðafræði lítur vel út á blaði,
en er í reynd meingölluð, því opnari get-
ur ekki stungið upp á slemmu með góðu
móti. Lauria sagði einfaldlega 4♠ og þar
dóu sagnir.
31. október 1931
Strætisvagnar Reykjavíkur
hófu akstur. Fyrsta leiðin var
Lækjartorg-Kleppur og far-
kosturinn Studebaker.
31. október 1932
Ford-vörubíll kom til Reykja-
víkur frá Höfn í Hornafirði
eftir þriggja daga ökuferð, þá
fyrstu sunnan jökla. Auk bíl-
stjórans, sem var 24 ára, voru
tíu farþegar. „Bíll hefur aldrei
komið í Öræfin fyrr, enda stóð
fólk í hópum úti við bæina
þegar bíllinn fór framhjá,“ að
sögn Morgunblaðsins.
31. október 1952
Íslenskir tónar gáfu út „fyrstu
íslensku dansplöturnar,“ eins
og það var orðað í Þjóðvilj-
anum. Þetta voru þrjár
tveggja laga plötur með söng
Svavars Lárussonar. Meðal
laganna voru Hreðavatnsvals-
inn, Ég vildi ég væri og Fiski-
mannaljóð frá Kaprí.
31. október 1964
Aldarafmælis Einars Bene-
diktssonar var minnst með
ýmsum hætti. Meðal annars
var afhjúpuð stytta af skáld-
inu á Miklatúni í Reykjavík,
við hátíðlega athöfn. Frum-
mynd styttunnar gerði Ás-
mundur Sveinsson þrjátíu ár-
um áður.
31. október 2007
Ítalski tenórinn Andrea Bo-
celli söng flest sín frægustu
lög fyrir sex þúsund manns í
Egilshöll. Með í för var 78
manna tékknesk sinfóníu-
hljómsveit. „Bocelli fór á kost-
um,“ sagði í Fréttablaðinu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég er alltaf að læra,“ segir Stefanía Gunnarsdóttir,
bókasafns- og upplýsingafræðingur, sem leggur nú
stund á meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Há-
skóla Íslands. Stefanía starfar á bókasafni Reykja-
nesbæjar auk þess sem hún er verkefnisstjóri bóka-
safnsins á Keili en í tilefni fertugsafmælisins í dag
hyggst hún taka sér frí frá bæði vinnu og náms-
bókum.
Hún segir afmælisveislunum hafa fækkað með ár-
unum en hún hélt flott stelpupartí þegar hún varð þrítug og hyggst einn-
ig halda upp á stórafmælið í ár. „Við ætlum að fara í eitthvert dekur, ég
og maðurinn minn. Í spa og út að borða í hádeginu,“ segir Stefanía, sem
er raunar nýkomin úr utanlandsferð með fjölskyldunni. „Við eigum tvö
börn og við erum nýkomin frá Spáni, fórum saman fjögur til Benidorm í
viku, í svona afmælisferð,“ segir hún og bætir því við að ef einhverjum
dytti nú í hug að kíkja í heimsókn í kvöld þá sé ekki loku fyrir það skotið
að það verði eitthvert gotterí á boðstólum.
Þegar hún er ekki í vinnunni eða á kafi í námsbókunum reynir Stefanía
að finna tíma fyrir ræktina. Bækurnar hafi þó oftast vinninginn og hún sé
ekki ein þeirra sem séu farnir að hugsa til jóla. „Nei, ekki þegar maður á
prófin eftir,“ segir hún. „Það kemur bara í desember.“ holmfridur@mbl.is
Stefanía Gunnarsdóttir er fertug í dag
Fyrst koma próf, svo jól
Söfnun
Melkorka Rut Sig-
urðardóttir og Re-
bekka Rán Krist-
jánsdóttir klipptu
út pappadúkur og
seldu og gáfu
Rauða krossi Ís-
lands ágóðann,
1.350 kr.
Flóðogfjara
31. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.56 0,6 9.20 4,0 15.40 0,7 21.48 3,5 9.08 17.16
Ísafjörður 4.59 0,3 11.14 2,2 17.50 0,4 23.42 1,8 9.25 17.09
Siglufjörður 1.27 1,2 7.13 0,3 13.34 1,4 19.52 0,1 9.08 16.52
Djúpivogur 6.20 2,2 12.45 0,5 18.32 1,9 8.40 16.43
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Frelsinu fylgir mikil ábyrgð, sem þú
axlar um leið og þér er veitt frelsi og sjálf-
stæði í starfi. Fjármálin eru í blóma.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Að taka ábyrgð er nauðsynlegur þáttur
í því að sleppa hendinni af neikvæðni úr for-
tíðinni. Peningar valda oft árekstrum milli
manna.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú vilt helst ekki eyða fé í dag ef þú
kemst hjá því. Vertu jákvæð/ur gagnvart hóp-
starfi því þar nýtast hæfileikar allra og verkið
fær meiri gagnrýni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú nýtur góðs af ríkidæmi annarra í
dag. Sökum þess að þú kýst að skipuleggja
hlutina vel væri ráð að byrja á því núna.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ef þú eyðir peningum, muntu að lík-
indum eyða þeim í eitthvað hagnýtt sem end-
ist þér um langan aldur. Þú verður að fresta
einhverjum af þeim mörgu hlutum sem eru á
dagskrá þinni.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ættir að semja við lánardrottna
fyrr en seinna. Þú þarft að setja hlutina í for-
gangsröð og fylgja þeim fast eftir.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Deilur milli elskenda gætu blossað upp í
dag. Vertu óhrædd/ur við að segja þeim sem
þú hittir daglega að þeir skipti þig máli.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Sumum kann að finnast þú full-
fyrirferðarmikil/l. Gerðu allt til að tryggja
samheldni þinna nánustu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ekki hika við að breyta ímynd
þinni eða útliti í dag. Vinátta sem rænir þig
krafti og ástarsambönd sem ýta undir allt
annað en ástríki verða að heyra sögunni til.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Misnotaðu ekki traust þeirra sem
leita til þín með vandamál sín. Mundu að ekki
er allt sem sýnist í fljótu bragði. Hver er sinn-
ar gæfu smiður.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Með réttum félaga getur þú
myndað sterkt bandalag til að hrinda áhuga-
málum þínum í framkvæmd. Öllum orðum
fylgir ábyrgð.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ákvarðanir eru lagðar til hliðar í bili.
Reyndu að finna jafnvægi því aðeins þá get-
urðu heyrt svar hjarta þíns.
Stjörnuspá
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5.
Rf3 O-O 6. Be2 Ra6 7. O-O e5 8. Be3
Rg4 9. Bg5 De8 10. He1 exd4 11. Rd5
f6 12. Bf4 d3 13. Dxd3 Re5 14. Dc2 f5
15. c5 c6 16. Bxe5 dxe5 17. Re3 Rc7 18.
Rc4 fxe4 19. Rg5 De7 20. Rxe4 Re6 21.
Rcd6 Rd4 22. Bc4+ Be6 23. Dd3 b5 24.
Bxe6+ Dxe6 25. a4 a6 26. Rc3 Rb3 27.
Had1 Rxc5 28. De3 Rxa4 29. Rxa4
bxa4 30. Re4 Hab8 31. Da7 Hxb2 32.
Hd7 Hf7 33. Hd8+ Hf8 34. Hd7 Hf7
35. Hd8+ Bf8 36. Dxa6 De7 37. Hd6
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Ósló í Noregi.
Sigurvegari mótsins, enski stórmeist-
arinn Matthew Sadler (2625), hafði
svart gegn norska alþjóðlega meist-
aranum Frode Elsness (2491).
37… Hfxf2! 38. Rxf2 Dxd6 39. Dxa4
Dc5 40. Hf1 Hxf2! og hvítur gafst upp
enda óverjandi mát eftir 41. Hxf2
Dc1+ 42. Hf1 Bc5+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.