Teningur - 01.10.1991, Page 31

Teningur - 01.10.1991, Page 31
STOPP Þ R J U L J O Ð MORGUNSTUND Græn vorsól yfir nýuppvaskaðri borginni Morgunkaffið runnið niður með litlausum fréttum Rautt hár þitt sofandi á koddanum Eg gangandi út úr húsinu okkar í gulum jakka inní tandurhreinan hvítan dag við hliðið stoppa ég heyri greinilega í mjög háværri vckjaraklukkunni og finnst ailt í einu að ég sé ekki vaknaður hrekk þá við án þess að vakna og tek um leið eftir að nýuppvöskuð vorsólin er sofnuð yfir borginni þú ert vöknuð og útí glugga klædd hvítu morgunkaffi heldur á gulum fréttum í hendinni og horfir alvarlega yfir garðinn einsog þú sjáir mig ekki og niður tandurhreint hár þitt rennur rauður dagur þá hrekk ég aftur við . . . Hann lítur á klukkuna og sér hann er að verða þrítugur fólk og bílar þjóta hjá á tvöföldum hraða þyngslalega og undurhægt snýr hann sér við lítur upp æpir með brostinni röddu sem berst um síðir gegnum svarthvíta þvögu hraða og tíma þyngslahægt gegnum tvöfalt fólk rödd sem lítur upp þrítug brostin klukka snýr hraðgengum vísi gegnum fólk og bíla 29

x

Teningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.