Teningur - 01.10.1991, Qupperneq 42

Teningur - 01.10.1991, Qupperneq 42
MYNDLIST sérvitringur eða finna til minni sam- kenndar við aðra listamenn? - Ja. í upphafi ferilsins þjappa listamenn sér gjarnan í hópa utan um ákveðnar skoðanir eða mynda sýningarhópa. Þeir sækja styrk í hópinn. En svo kemur þörfin fyrir aö þróa sitt og halda dálítið sína leið. Þetta er senni- lega að gerast hjá mér. HÞF: En er það kannski rétt að það séu að verða minni hlaup í hinar og þessar áttir hjá þér, það er orðið meira útlitslegt samband milli hlut- anna? KGH: Ég efast um það hvað hið út- litslega varðar. Á síðustu sýningu minni voru útlitslega mjög ólík verk. Þar voru meðal annars stór raunsæ málverk máluð eftir Ijósmyndum og lítil verk unnin úr límbandi og stimpl- uðum texta. Þannig að útlitslega og formrænt séð hafa verkin aldrei verið ólíkari innbyrðis. HÞF: Pabbi þinn var einhvers konar farandverkstjóri, fjölskylda þín var á ferð út um allar trissur. Er þetta ferðalag þar sem hlutir eru hirtir og galleríið sá staður þar sem þeir eru skildir eftir? Þá á ég við að upplifun ferðalagsins sé einhvers konar tínsla og svo er það sem þú skilur frá þér það sem þú sýnir í galleríinu? KGH: Já það má kannski frekar segja að það hafi vcrið þannig. HÞF: Þegar þú talaðir áðan þá kom upp í huga mér, sem er nú eiginlega það síðasta sem mér hcfði dottið í hug, Sigmar Polke, þú sagðir „raunsæ mynd, og svo Iímdi ég texta og eitt- hvað svona“, er eitthvað til í því? KGH: Hann er kannski sá nýmálari sem ég varð fyrir mestum áhrifum frá. í hans verkum sérðu oft í einu og sama málverkinu nokkrar myndir mál- aðar eftir ljósmyndum, svo er abstrakt mynd í bakgrunninum. Undir kraumar dulinn hugsanagangur í ætt við hugmyndlist, en popplistarandi svífur einhvers staðar yfir. HÞF: Vegna þess að Erró cr íslensk- ur spyr ég hvort það sé einhver sam- leið hjá þér og samklippunt hans, cn kollasar hans eiga einhvað upphaf í flúxus ef ég þekki það rétt og líka súrrealisma og poppi? KGH: Ég verð að viðurkenna það að hann hefur aldrei haft nein áhrif á mig. Ég reyni að skapa Ijóðræn tcngsl sem eru oftast mjög óljós og crfitt að grípa. Hjá Erró er þetta allt miklu augljósara, tengslin stundum dálítið grunn og ekki mjög „andleg“. Mér finnst hann samt ágætur listamaður í hófi. 1988. Viður, gifs, gler, steypa, ryk, olíulitur og útsaumur. 168x120x15 cm. EP: Það eru kannski einhver tengsl f vinnuaðferðinni? KGH: Já, kannski stundum þegar ég nota efni úr fjölmiðlum, texta, blaða- ljósmyndunt og þvíumlíkt. Erró safn- ar myndum, en hann virðist ekki vera í persónulegum tengslum við þær. HÞF: Finnst þér þú vcra kominn á ein- hvern ákveðinn stað þar sem þú getur staldrað við? KGH: Já, það finnst mér. Staðurinn afmarkast ekki síður af því sem ég vil ekki. Ætli ég sé ekki kominn á mína þúfu, eins og Guðbcrgur kallar það. EP: Þér finnst þú samt vera að víkka út um leið? KGH: Já, það er kannski hægt að orða það sem svo að ég sé kominn á þessa tilteknu þúfu en reyni að víkka rammann út frá henni í allar áttir. EP: Er einhver uppáhaldssýning? KGH: Mér dettur sýningin í Ásmund- arsal fyrst í hug, en þó vil ég helst ekki mismuna sýningum og verkum. 40
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Teningur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.