Teningur - 01.10.1991, Síða 44

Teningur - 01.10.1991, Síða 44
BRUCE CHATWIN TVÆR SÖGUR Kristján Kristjánsson íslenskaði ASSUNTA Saga Hvað er ég að gera hérna? Ég kúldr- ast á sjúkrabeði á ríkisspítala og bíð og vona að kölduflogin og hitasóttin sem hafa heltekið mig í þrjá mánuði reynist vera malaría - þó að þeir hafi ekki fundið eina einustu bakteríu eftir ítrekaðar blóðprufur. Ég er búinn að vera á kínínkúr í þrettán stundir - og hitinn virðist fara lækk- andi. Ég þukla eyrun. Pau eru köld. Ég strýk nefbroddinn. Hann er kald- ur. Ég legg lófann á ennið. Það er kalt. Ég þukla við nárann. Ekki svo slæmt. Hitinn rýkur upp af eftirvænt- ingunni einni saman. Inn á stofuna gengur sú manneskja sem ég dáist mest að á þessari deild. Það er Assunta, konan sem skúrar og lagar teið. Hún er frá Palermó og giftist Eng- lendingi. Það er frekar af manngæsku en launanna vegna sem hún vinnur hérna. Það kætir mig óumræðilega að sjá Assuntu því nærvera hennar fyllir stofuna suðrænum yl. Hún er komin til að skúra gólfið. „Drottinn minn dýri!“ scgir hún. „Snákurinn!... Dóttir mín, hún fara til lögreglunnar útaf snákinum.“ „Hvaða snák?“ „Puppet.“ „Puppet?“ „Nei. Nei. Poppet." „Assunta mín, um hvað ertu að tala?“ Hún dregur djúpt andann og held- ur áfram, talar í stuttum hikandi setn- ingum: „Herra Bruce... Það er þessi ná- granni minn... Hún er vond kona... Börnin mín leika sér í garðinum hennar og hún æpir, „Börnin þín hafa alltof hátt. Hafðu þau inni“... Hún trúa ekki á Guð eða neitt... Hún fara í tvær fóstureyðingar... Hún elskar bara dýr... Hún eiga hund... Hún eiga kött... Hún eiga kanínur... og hún eiga Poppet...“ „Snákinn?“ „Svo hún banka hjá mér og hún segir: „Hefur þú séð Poppet? Hún slapp úr búrinu sínu...“ „Nei, égekki sjá... Þú leita sjálf að Poppet...“ Ég loka gluggum... Ég loka dyrum... Ég segi við börnin, þið ekki leika í garð- inum fyrr en hún finna Poppet... Hún ekki finna Poppet... Hvergi! Síðan ég þurfa fara út í garðskúr að sækja eitthvað... Heyrist þetta voða- lega hljóð, „55555!... Ghrr\ 55555!..“ Ég skelli hurðinni... Ég kalla, „Hún Poppet þín er í skúrnum mínum!“ Hún koma yfir... Hún opna dyrnar... Og þessi snákur stökkva út... Og vefur sig utan um hana, fimm sinnum, sex sinnum... Og sleikja hana alla í framan... „Hvað er hann stór þessi snákur?“ „STÓR!“ segir Assunta. „Eins stór og þessi stofa...“ Hún sveiflar skrúbbinum í kringum sig, bendir horn í horn. Snákurinn sem hér um ræðir hlýtur að vera sjö metra löng pýtonslanga eða risakyrki- slanga. „Og hausinn!" segir hún. Hún gef- ur til kynna með höndunum eitthvað sem er álíka stórt og melóna. „Og hræðileg rauð augu! Svo hún spyrja, „Má ég fara með Poppet í gegnum húsið?...“ „Nei,“ sagði ég. „Þú fara yfir girðinguna.““ „Þú hefðir átt að fara til lögregl- unnar fyrir löngu.“ „Og litlu börnin sem leika sér út á götu!... Englendingar eru brjálað- ir... Núna banka hún á dyrnar hjá mér. Hún segir, „Hún Poppet mín bráðum eiga barn“... Hún borga sautján pund fyrir sæðingu... And- styggilegt... Dóttir mín, hún fara til lögreglunnar. 1988 42

x

Teningur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.