Teningur - 01.10.1991, Side 46

Teningur - 01.10.1991, Side 46
áhyggjufull... „Hvaö er að?“ „Vertu róleg, Assunta,“ segja hann. „Vertu róleg... Assunta, barniö inni í þér hefur engar hendur og engar fætur. Pú ekki vilja eiga svoleiðis barn...“ Ég byrja öll að titra... Ég reyna anda inn... Ég reyna anda út... Ég get ekki andað... Hjúkrunarkonan, hún vera með sprautu og ég sofa... Svo ég vakna um morguninn og ég vera full... Ég segja við hjúkrunar- konuna, „Hvar er ég?...“ „Assunta, þú ennþá á spítala..." Og hjúkrunar- konan... hún setja blað fyrir framan mig... „Skrifaðu undir,“ biðja hún. Ég vera svo full að ég skrifa undir... Ó guð minn, ég skrifa undir að þeir mega taka barnið... Ó, fyrirgefa mér Guðsmóðir. En nei... Ég vera á spít- alanum þrjá mánuði... Barnið ekki hreyfast... Hverja viku... Myndir... Myndir... Myndir... Bakið... Að framan... Á hlið... Alltaf það sama: „Assunta, barnið þitt, það hefur engar hendur og engar fætur...“ Svo kemur tími að barnið koma í heiminn... Læknarnir segja við mig, „Assunta, viltu fá sprautu?... Þú ekki vilja sjá barnið?...“ „A/£//“ hrópa ég. „Eg vil sjá barnið... barnið MITT\ Ég sjá barnið mitt!... Með augum mín- um!...“ Svo barnið koma... Og ég horfi... Og ég sé litlu höndina... Barnið mitt er heilbrigt! Heilbrigt...“ Ég græt. Mér finnst erfitt að gráta en éj» græt. „Ég horfa á læknir og ég segja: „Þú, þú, þú... Þú... Þú helvítis drullu- sokkur! Þú segja mér að barnið mitt hafa engar hendur og engar fætur...“ Læknirinn... hann fara íburtu... Ég er hamingjusöm... Hamingjusöm, Bruce... Svo hamingjusöm... Ég held á barninu mínu... Ég þakka heil- agri jómfrú... Ég skælandi... Svo kemur næsti morgunn... Hjúkrunar- konurnar allar í kringum mig... Ég enn skælandi... „Viljið, viljið biðja lækni að fyrirgefa það sem ég segja honum..." Hjúkrunarkonurnar segja, „Nei, Assunta. Þetta er rétt hjá þér... Allur spítalinn veit að þetta er rétt hjá þér...“ „En biðja lækni að fyrirgefa mér!“ Ég ennþá skælandi... Svo kemur morgunninn... Læknirinn, hann banka á hurðina mína... Hann færa mér STÓRAN blómavönd... Ég aldrei sjá blóm eins og... STÓRAR, STÓRAR kórónur!... Og stóran kassa konfekt og lítil föt á barnið mitt. Hann taka um hönd mína... Hann brosa... „Assunta, það rétt hjá þér að kalla mig helvítis drullusokk!“ 1988 BRUCE CHATWIN Bruce Chatwin fæddist í Sheffield 1940. Hann stundaði nám við Marl- borougháskólann og gerðist síðan dyravörður hjá Sotheby’s í London. Átta árum síðar, þá orðinn yngsti list- ráðunautur fyrirtækisins, sagði hann starfi sínu lausu og hélt út í heim. Frá 1972 til 1975 vann hann fyrir The Sitnday Times. Þegar hann hætti hjá blaðinu sendi hann þeim skeyti: „Far- inn til Patagóníu og verð þar í sex rnánuði." Árangur þeirrar ferðar var „ferðaskáldsagan" I Patagóníu sem kom út árið 1977. Hún vann til Haw- thornden-verðlaunanna 1978 og E.M. Forster-verðlaunanna 1979. Aðrar bækur hans eru The Viceroy of Ouidah, (Wcrncr Herzog kvikmynd- aði þá sögu og kallaði Cobra Verde), On the Black Hill (sem Bretar gerðu sjónvarpsmynd eftir), The Songlines, (önnur „ferðaskáldsaga“ en í þetta sinn frá Ástralíu) sem kom út árið 1987, var samfellt í níu mánuði í hópi tíu söluhæstu bóka á sölulista The Sunday Times. Síðasta skáldsagan hans, Utz, var tilnefnd til Booker- verðlaunanna 1988. Wltat am I doing here, (þaðan sem sögurnar sem hér birtast eru teknar) er safn frásagna, ritgerða og blaðagreina og kom út árið 1989. Bruce Chatwin lést úr sjaldgæfum kínverskum beinmergssjúkdómi þann 17. janúar 1989, fyrir utan Nice í Frakklandi. 44

x

Teningur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.