Teningur - 01.10.1991, Page 58

Teningur - 01.10.1991, Page 58
VIÐTAL umræðuna en ekki skrifin sjálf. Það eru til margar leiðir. Ég skrifa líka, en þegar ég sýni þá vil ég skrifa eins lítið og hægt er um það sem ég sýni, úr því að það er raunverulega list- rænt. L'Éloge du mauvais esprit. Sp. Bókin þín, L’Éloge du mauvais esprit, (Lof hundingsháttarins, eða Lof illkvittninnar) kom út árið 1986. Getur þú sagt okkur í stuttu máli frá þeirri bók, efnisvali og fyrirætlunum? B.M. Þessi bók er eiginlega um æsku mína og ég er núna að undirbúa aðra bók sem er allt öðruvísi. En hug- mynd bókarinnar var sú að beita ekki sagnfræðilegri lestrartúlkun við skoðun myndverkanna heldur reyna einskonar þverskurðarlestur. Efnis- valið í bókinni er margbreytilegt en ég held að rauði þráðurinn í henni sé sambandið á milli listarinnar og sið- fræðinnar. Ég valdi mauvais esprit vegna þess að þetta orðasamband til- heyrir siðfræði hvunndagsins. Þegar sagt er á frönsku um einhvern að hann hafi mauvaise esprit (það er mjög franskt, ég gæti t.d. ekki þýtt það á ensku með bad spirit) það þýðir það að sá hinn sami vilji ekki taka þátt í leiknum. Þetta er mjög mikið notað í kennslufræðum um þau börn sem haga sér ekki eins og önnur börn þ.e.a.s vilja ekki taka þátt í leiknum. Þetta er ein leið til að vera óþekkur og ég álít að í listinni eigi menn að vera baldnir nemendur. Menn eiga ekki að hlusta of mikið á meistarana og ekki vera of mikið í skólum. Þetta er rós í hnappagat málaliðanna, þeirra sem halda sig utan við aðals- bornar leiðir listanna þ.e.a.s. lista- menn sem leggja áherslu á smáatrið- in, sem eru afsíðis í listinni. Árin upp úr 1970 einkenndust mjög mikið af þess konar list sérstaklega í Evrópu. Sp. Flestir listamennirnir sem þú tekur fyrir í bókinni eru franskir eða búsettir í Frakklandi... B.M. Ekki t.d. Gilbert og Georg- es, Polke og Warhol... Sp. f>ú talar ekki mikið um War- hol? B.H. Það er satt, en ég sýni mikið af verkum eftir hann. Petta er bók sem á bæði að skoða og lcsa. Ég vildi bjóða upp á tvenna lestrarmöguleika sem fléttuðust saman. í fyrsta lagi er hægt að lesa hana á venjulegan hátt, sem myndskreyttan texta, og í öðru lagi vil ég meina að hægt sé að skilja bókina eingöngu með því að fletta henni og skoða tengsl myndanna. Ég sé sjálfur um alla uppsetningu og það er með ráðum gert að myndirnar eru allar svart-hvítar, það er til þess að fá góðan heildarsvip milli textans og myndanna. Ég vildi hafa mikið af myndum vegna þess að myndin er ekki bara myndskreyting heldur líka efniviður til íhugunar. Ég trúi á myndhugsun. Listamennirnir hafa kennt okkur að það er hægt að hugsa í myndum og hví skyldi ég sem skrifa um list þá ekki notfæra mér þessar aðferðir listamannanna? Ekki til þess að vera listamaður sjálfur heldur ein- faldlega vegna þess að þetta er aðferð sem allir eiga. Sumir nota vísindalegar, sagn- fræðilegar, strúktúralískar eða sál- fræðilegar aðferðir við vinnu sína. Ég nota listrænar aðferðir til þess að tala um list, er það ekki Ijóst? Sp. Jú það er ntjög ljóst, reyndar les maður iðulega mikla þvælu í kring- um og um listina bæði í listtímaritum og annars staðar. B.M. Já menn reyna að skella á listina alls konar teóríum sem standa algjörlega fyrir utan hana eins og t.d. sálarfræði, táknfræði, épistémologie (ritskýringu), málvísindum, marx- isma frá Adorno o.s.frv. o.s.frv. Það eru til allar útgáfur. Ég ólst upp við þetta allt saman og ég þoli þetta ekki og það er þess vegna sem ég reyni að nálgast listina sjálfa. Sp. Þú hefur ekki enn þá sagt okkur hvers vegna þú valdir þessa ákveðnu listamenn í bókina? B.M. Auðvitað vegna þess að þetta eru allt saman listamenn sem tengjast siðfræðinni. Sp. En þetta eru líka allt listamenn sem vinna mcð margvíslega miðla. Flestir nota t.d. Ijósmyndina og ýmsa hluti. B.M. Já og þess vegna er ekki hægt að segja að þeir séu málarar, jafnvel Polke, sem er kannski sá sem helst væri hægt að kalla málara, leitar fanga í kvikmyndalistinni og ýmsum hversdagshlutum. Flestir lista- mennirnir sem ég valdi hafa líka ein- hver tengsl við háð. Sp. Aðdáun þín á Nietzche og Wagner kemur augljóslega fram við lestur bókarinnar. B.M. Ég ólst upp við ást á Niebe- lungen, en jafnframt fannst mér svið- setningarnar oft vera afskaplega kitsch. Það er ótrúlega mikið af smekkleysu hjá Wagner og ég horfði í raun og veru alltaf á smáatriðin þegar ég sá stykki eftir Wagner. Sp. Og alltaf á umgjörðina? B.M. Það var mín sérviska, þ.c.a.s. ókostur sem ég hafði, en ókostur getur orðið kostur. Á söfnunum horfði ég til dæmis á rammana og ég hef löngum heillast af fólki sem sér annað en það sem það á að sjá. Ég segi löngum vegna þess að hlutirnir breytast núna í listinni og þess vegna er ég með aðra bók í undirbúningi núna. Konsept-listin og súrrealisminn Sp. Listamcnnirnir sem þú tekur fyrir l'Éloge du mauvais esprit byrj- uðu flestir feril sinn um svipað leyti og konsept-listin fór að koma fram. B.M. Já, en frönsku listamennirnir urðu ekki fyrir miklum áhrifum af konsept-listinni, þ.e.a.s. þeir urðu fyrir áhrifum, en þeir unnu úr þeim á allt annan hátt vegna þess að þeir höfðu aðra hefð að baki eins og t.d. súrrealismann. Súrrealisminn fæddi af sér mjög slæma hluti í listinni. 56

x

Teningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.