Svart á hvítu - 01.10.1977, Side 18

Svart á hvítu - 01.10.1977, Side 18
Fyrir þína hönd Steinunn Sigurðardóttir Þaö er allt andstætt andstætt líf. Ég svo ung svo ófríð illa gefin í einu orði: engu lík. Vagg í vinnunni, gæshúö, svuntan dugir ótrúlega skammt og útstæð augun, saga til næsta bæjar eða varirnar þykkar og frussast þegar ég tala. Ó væri ekki annað líf aó loknu þessu labbaði ég í sjóinn strax í dag. (Einkum með hliðsjón af þessu: Svona eru ekki allir Hvers á ég að gjalda? Sumir eiga kærasta og kunna líka dönsku. En ég á ekki neitt og hvaö kann ég?) Heima er mamma heilsulaus og pabbi minn óður. Mér er sagt að þegja. Ég er svo vitlaus að ég get ekki einu sinni skrifað þetta. Það gerir kona útí bæ. En hvað veit hún. Ó væri ekki annaó líf að loknu þessu lúllaði ég í sjónum strax í dag. (Það er annað líf. Það er annað líf. Ó ó það er allt annaó líf) Maja litla rangeygð og barinn eins og fiskur. Ég geri þaó líka og hún grætur oftastnær. Ó væri ekki annaó líf að loknu þessu labbaði ég í sjóinn strax í dag. Svo get ég ekkert ekkert. Varla flakað. Það er verst. Ég bíð bara eftir hinu. Þetta er ekki þess virði. Og mig sem langar að syngja. Það er engu líkt að heyra mig syngja. 16

x

Svart á hvítu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Svart á hvítu
https://timarit.is/publication/821

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.