Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 24

Birtingur - 01.07.1955, Blaðsíða 24
Minning / Magnúsar Asgeirssonar Við erum allir fátækari í dag en við vorum fyrir nokkru. Það þýðir ekki að ganga við í litlu kaffi- húsi í þeirri von að hitta Magnús, — hann er farinn. Aldrei eigum við að lifa þann dag aftur sem var fyrst grár er við gengum um miðbæinn og fannst svo tómlegt og sviplaust og allt undir járnhæl hversdagslegra viðhorfa. En sáum svo þennan mann koma eins og út úr þrumuskýi með þann svip sem gáfurnar hrópuðu úr eins og leiftur þótt varimar væru þvingaðar saman og tungan þegði. Sjáum ekki aftur þessi augu sem komu eins og tveir eldstólpar út úr myrkri þess eðlis sem neitar raflýsingu falsbirtunnar. Og slöngvaði lífi í hinn sofna heim. Þessi maður, var það í gær sem við heyrðum hann tala, var það í gær sem hann var hér, — í dag hugsuðum við: nú væri gaman að hitta Magnús, — en hann er farinn. Við söknum hans í dag og munum sakna hans á morgun ef við lifum þann dag og oft munum við hugsa og ásaka okkur sjálf: hví færðum við okk- ur ekki betur í nyt að þekkja slíkan mann. En svipur hans vakir svo sterkt í vitund okkar: þetta óyggjandi andlit snilli, — að þegar við lítum upp frá þessu blaði þá munum við sjá hann. Hver okkar hefði ekki viljað þakka fyrir sig áður en hann tók hatt sinn og fór? Thor Vilhjálmsson. JÓN ÓSKAR: Laufin, trén oq vindarnir I allan dag hefur haustvindurinn þotið um greinar trjánna. Ég hef setið undir trjánum og hugsað um lauf sumarsins og undarlegt líf þeirra. Þau héldu á regndropunum eins og gimsteinum þangað til þyrstur sumarvindurinn kom að fá sér að drekka. Þau héldu ánægð á fiðrildunum sem voru komin til að elskast. Og á kvöldin kom mann- kynið til að elskast undir laufunum. Ó, hversu margt var líf trjánna. Og nú falla laufin í vind- inum. En rætur trjánna eru sterkar og trén eru sterk og greinarnar svigna en brotna ekki. Og fyrr en varir eru laufin aftur á greinum trjánna og mannkynið situr undir laufunum og laufin halda ánægð á fiðrildunum og það er mikið líf í trjánum. 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.