Birtingur - 01.01.1961, Page 46

Birtingur - 01.01.1961, Page 46
i'.inn, gæti skilið allar tungur; þar með er ekki sagt að ógerlegt sé að afhjúpa leyndarmál án lykils, til dæmis komast að raun um rétt faðerni, þótt það hafi reynzt ókleift fyrir rétti; tvö ljúgvitni eru nefnilega fullgild sönnun, ef þeim ber saman, en í könnunarferð eins og þá, sem ég er að tala um, tekur maður engin vitni með sér: manninum er meðfædd blygðunarkennd, þess vegna leitast hann við að leyna þvi sem þarf að dylja; þó renna upp stundir án þess við viljum, þegar ströngustu leyndarmál eru dregin fram í dagsljósið, gvímunni svipt af svikaranum, óþokkinn afhjúp- aður ... Málhvíld; allir horfa þegjandi hverjir á aðra. En hvað það varð allt í einu hljótt! L ö n g þ ö g n . Tökum sem dæmi þetta virðulega hús, þetta fallega heimili þar sem allt fer saman: fegurð, menntun og velmegun . . . I. öngþögn. Við sem hérna sitjum vitum hver við c r u m ... ekki rétt? . . . ég þarf ekki að kynna ykkur . . . og þið þekkið mig, þó að þið látizt ekkert vita .. . I>arna inni situr dóttir mín, m í n — þið vitið það einnig . . . Hún var búin að glata lífsþránni, án þess hún vissi hvers vegna ... lífsfjörið fjaraði út í þessu andrúmslofti sem er þrungið glæfrum, svikum og svívirðu .. . þess vegna útvegaði ég henni vin, svo að hún gæti fundið í návist hans ljós og yl dáðar og göfgi .. . Löng þögn. Til þess kom ég í þetta hús: að rífa upp illgresi, ljóstra upp glæpum, gera upp reikninga, svo að hin ungu geti hafið nýtt líf á þessu heimili, sem cg hef gefið þeim. Löng þögn. Nú gef ég ykkur kost á að fara héðan í friði; sá sem þráast við verður tekinn fastur! I. öng þögn. Heyrið hvernig klukkan tifar — eins og stundaglas dauðans! Heyrið þið hvað hún segir? — „Tím-inn! Tím-inn! — — —“ Þegar hún slær eftir stutta stund, er ykkar tími liðinn; þá megið þið fara, fyrr ekki. En hún varar ykkur við, áður en hún slær! — Hlustið: „Klukkan getur slegið".--------Ég get einnig slegið . . . Hann slær með hækjunni í borðið. Heyrið þið? I' ö g n . M ú m í a n gengur að klukkunni og stöðvar hana, segir síðan skýrt og alvarlega: En ég get látið tímann nema staðar — ég get látið gengið vera gleymt, misgerðir ógerðar; ekki með mútum eða hótunum — heldur þjáningu og iðrun-------------, Gengur til Karlsins. Við erum vesælar mannkindur, það vitum við; við höfum brotið af okkur, við höfum breytt ranglega — eins og allir aðrir; við erum ekki öll þar sem við erum séð, því innst inni erum við betri en ætla mætti af gerðum okkar, fyrst við iðrumst rnisgerðanna; en að þú Jakob Hummel skulir setj- ast undir fölsku nafni í dómarasæti sýnir, að þú ert verri en við! Þú ert ekki heldur sá sem þú þykist vera! — Þú ert mannaþjófur; þú stalst mér einu sinni með fölskum fyrirheitum; þú myrtir konsúlinn sem var borinn til grafar í dag, hengdir hann í skuldasnöru; þú hefur stolið stúdentinum með því að ljúga að honum að þú hafir hjálpað íöður hans, sem skuldaði þér aldrei eyrisvirði . . . K a r 1 i n n hefur reynt að rísa á fætur og taka til orða, en fallið gneypur niður í stólinn og verður æ rislægri. M ú m í a n : Svartasta blettinn á samvizku þinni 44 Birtingur J

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.