Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1987, Síða 61
Um hendingar í dróttkvœðum hœtti
59
hún er endurgerð og skrifuð í samræmdum útgáfum. Það er með öðrum
orðum ekki út í hött að gera ráð fyrir að t.a.m. Bragi hinn gamli hafi
haft annars konar reglur um M-hljóðvarp en giltu í 12. og 13. aldar ís-
lensku. Það er alkunna, að w-hljóðvarp var mjög mis-reglulegt á hinu
norræna málsvæði.
En hver svo sem skýringin á þessu er nákvæmlega, þá sýnir a - q
rímið að ekki var nauðsynlegt að bein samsvörun væri milli málkerfis
og bragkerfis í aðalhendingum, þannig að sérhljóð rímuðu saman ef
og aðeins ef þau tilheyrðu sama fónemi. Gera verður ráð fyrir því, að
rétt eins og í stuðlasetningu hafi verið jafngildisflokkar, sem bragkerfið
skilgreindi fyrir sig.
3.3.2 Samhljóð
Hin almenna regla um skilgreiningu á jafngildisflokkum samhljóða
í hendingum virðist hafa verið að hvert fónem væri einn jafngildis-
flokkur, þ.e. saman rímuðu samhljóð sem tilheyrðu sama fónemi, og
ekki rímuðu saman samhljóð sem tilheyrðu ólíkum fónemum.
Við höfum þegar séð, að það virðist hafa getað nægt í hendingunum,
framan af a.m.k., að einungis samhljóðið sem kom næst á eftir sérhljóð-
inu væri hið sama í báðum rímatkvæðum — það var býsna algengt að
síðari samhljóðar væru ólíkir. Áður er minnst á hugsanlegt sé að um-
mæli Snorra um það að öll samhljóð eftir sérhljóð séu eins megi e.t.v.
rekja til þess að það hafi síðar meir orðið fastari regla að láta allan sam-
hljóðaklasann á eftir sérhljóðinu taka þátt í ríminu. Hvað sem því líður,
þá er það athyglisvert, að hið sama gildir í stuðlasetningunni; þar var
almenna reglan sú að einungis fremsta samhljóðið tæki þátt í stuðlun-
inni: kr stuðlaði við kl o.s.frv. Það er enn eitt umhugsunaratriði, hvort
þessi líkindi sem upphaflega voru með stuðlasetningu og hendingum
bendi til einhvers sögulegs skyldleika.
Á það hefur þegar verið minnst, að klasar sem hafa að geyma s +
lokhljóð stuðla ekki saman. st, sk, sp mynduðu sér jafngildisflokka í
stuðlasetningarreglum. Spyrja má hvort eitthvað svipað sé uppi á ten-
ingnum í hendingum.