Okkar á milli - 01.06.1983, Blaðsíða 4

Okkar á milli - 01.06.1983, Blaðsíða 4
Seldist gjörsamlega upp fyrir jól - endurút- AOKATILBQÐ gefin sérstaklega fyrir Veraldarfélaga Frásöqn um marqboðað morð er vissulega einstæð glæpasaga. Við erum vön því að í slíkum sögum sé morðgátan leyst í lokin, en hér fáum við að fylgjast nákvæmlega með aðdraganda morðsins - og þó tekst höfundinum að halda spennunni - athygli lesandans frá upphafi til enda. Þetta ræðst ekki síst af sérstæðum ritstílnum, eftirgrennslan söguritara ára- tugum síðar, rannsókn hans á því sem gerðist. Við sjáum að höfundi fatast hvergi tökin. Frásögn um margboðað morð er allt í senn: spennandi saga, skáldleg mann- lífskönnun, bráðfyndin bók — og full af lífi. „Santíago Masar fór snemma á fætur daginn sem þeir hugðust drepa hann ..- Pannig hefst þessi nýja saga sagnameistarans frá Kólumbíu, Gabríel García Marquez, þriðja bók hans sem Guðbergur Bergsson þýðir á íslensku. Sagan greinir frá atburð- um í litlu þorpi á strönd Karibíska hafsins. Allir þorpsbúar vita fýrir- fram að Santíago Nasar á að deyja, - allir nema hann sjálfur. Brúðkaupið var haldið í þorpinu, en brúðkaupsnóttina sjálfa var brúðinni skilað heim í föðurgarð af því að hún reyndist ekki hrein mey. Heiður fjölskyldunnar hafði verið flekkaður og bræður brúðar- innar neyða hana til að skýra frá nafni hins seka. Tveimur tímum síðar er Santíago Masar dauður. Hvers vegna reyndi enginn að hindra þetta morð - því fremur sem morðingjarnir báðu nánast um að einhver stöðvaði þá? Nóbelshöfundurinn Gabriel García Marques Gabríel García Marques fæddist árið 1928 í Kólumbíu en býr nú í útlegð í Mexíkó og París. Hann er einn fremsti höfundur Suður- Ameríku og þessi nýjasta bók hans er í senn magnþrungin, spennandi og full af Ijóðrænni næmni. Aður hafa komið út tvær bækur á íslensku eftir þennan ágæta höfund; Liðsforingjanum berst aldrei bréf og Hundrað ára einsemd. Síðastliðið ár hlaut Gabríel García Marques Nóbels- verðlaun fyrir verk sín. Nr. 1000 Veryulegt verð: 39§:krónur Klúbbverð: 275 krónur ET. G0MDVERG Vissulega var hann jafn gamall stjörnunum og spakari jarðarbú- um, en nú þarfnaðist hann vinar. Viska alheimsins var til lítils því hann var hjálparvana á jörðu niðri, aleinn, fullur heimþrár og dauð- skelfdur. A plánetunni sem hann hefur lent á er allt honum andsnú- ið, lögreglan á hælum hans og enginn til bjargar ... þangað til hann hittir börnin - vini sem hann átti aldrei eftir að gleyma. Otrúlegar vinsældir Kvikmyndin um E. T. Geimdverg- inn góða varð gífurlega vinsæl á íslandi sem annars staðar. Hin hugljúfa lýsing á samskiptum geimbúans E. T. og drengsins Elliot greip svo hugi og hjörtu barna að vart var um annað talað þar sem þau komu saman og fá hafa þau verið börnin sem ekki sáu kvikmyndina. fær að gægjast fram hefur hann náð raunverulegum þroska steven Spielberg, höfundurE.T/82

x

Okkar á milli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.