Okkar á milli - 01.06.1983, Blaðsíða 5

Okkar á milli - 01.06.1983, Blaðsíða 5
ORINNGÓÐI Gerð hefur verið bók eftir kvik- ^nyndinni, skreytt fjölda litmynda, g býðst hún Veraldarbörnum stum á íslandi. ÍT „Geimfarið sveif mjúklega í loftinu, tengt jörðinni fyrir neðan með dauf-Qólubláum geisla, það var hnöttótt og frá því stafaði hlýrri birtu, svo það minnti mest á risavaxna jólatréskúlu sem fallið hafði af næturhimninum. Farið lenti eins og til var ætlast, því heilinn sem stjórnaði því reiknaði aldrei skakkt. Samt átti eftir að koma skekkja í útreikninginn." AGKATILBOÐ TVÆR GÖÐAR FYRIR 3ÆLKERA með uppskriftum eru rækilegar og skýrar, svo engum á að verða skotaskuld úr því að framreiða glóðað góðgæti þegar fólk vill gera sér dagamun, úti og inni jafnt sumar sem vetur. þegar gesti ber að garði Ef við gerum okkur dagamun í vinahópi eða fögnum góðum gestum er ómetanlegt að hafa uppskriftir að fljótlöguðum Ijúf- fengum réttum við .höndina. Við bjóðum Veraldarfélögum bæk- umar Glóðað góðgæti og Kaldir smáréttir fýrir aðeins 276_krónur en fyrir sömu tvær bækur verða menn að greiða 395 krónur í bókaverslunum. Glóðað góðgæti er hin þarfasta handbók fyrir alla þá sem hafa gaman af að matbúa glóðað góðgæti. Glóðaður matur er gífurlega vinsæll, ekki síst þegar glóðað er utan dyra og ekki þarf garð til því víða í vorsólinni má sjá reyk líða upp af svölum fjölbýlishúsa. I bókinni eru leiðbeiningar um mismunandi aðferðir til glóðunar, áhöld og tæki ásamt uppskriftum að fjölbreytilegustu réttum úr margskonar hráefni. Glóðað góðgæti er fyrir sælkerann og bókin er skreytt fjölda litmynda af girnilegustu réttum. Leiðbeiningar Nr. 1001 Verð samantagt á almennum markaði: '395-krónur Klúbbverð samanlagt: 276 krónur (Seljast einungis saman) Glódgð gódgœti Kjöt - fiskur - grænmeti - sósur Kaldir smáréttir er ekki síður handhæg þegar óvænta gesti ber að garði. Oft langar mann að bjóða gestum meðlæti með drykkjum án þess að þurfa að vera á þönum eða standa frammi í eldhúsi meðan gestirnir staldra við. Gott er að grípa til smárétta og snarls sem hægt er að matbúa fyrirfram og láta standa á bökkum. I Köldum smáréttum eru ótal uppskriftir að réttum í síðdegis- drykkjuna, skreytt brauð, gómsætir kjötréttir, kæfa, bakað ljúfmeti, seðjandi salöt, ostaréttir, miðnæt- urréttir og meira að segja sérstakir réttir sem henta vel gegn timbur- mönnum.

x

Okkar á milli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.