Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2006, Blaðsíða 25
Halar í samtölum
23
Hlutverki hala og virkni verða gerð nánari skil í tengslum við nið-
urstöður rannsóknar minnar á einstökum hölum í íslensku (3. kafli) en
nú verður hugað að formlegri stöðu hala í samtalslotunni.
2.2 Staða hala í samtalslotunni
Samtalslotan (e. conversational turrí) er það sem hver þátttakandi í
samtali segir frá því að hann hefur mál sitt þar til hann lýkur því og
annar tekur við (sjá Steensig 2001:39; Sacks, Schegloff og Jefferson
1974).9 Lotur eru ýmist stuttar, jaínvel bara eitt orð, eða langar, settar
saman úr mörgum setningum. Almennt eru lotur lengri í formlegum
samtölum en óformlegu spjalli þar sem hlutimir ganga yfirleitt hratt
fýrir sig og fólk skiptist títt á orðinu. Stuttar þagnir í máli mælanda eða
örstutt innskot hlustanda, sem aðeins gefa til kynna að viðkomandi
fylgist með og að sambandi sé náð, svokallaðar endurgjafir (e.feed-
back; sbr. Þómnni Blöndal 2004), rjúfa ekki lotuna, henni lýkur ekki
fyrr en annar tekur til máls með sjálfstæðu framlagi til samtalsins og
lotuskipti (e. turn taking) verða.
Lotan hefur ákveðna innri formgerð, hún er byggð upp af afmörk-
uðum samskiptalegum einingum, svokölluðum lotueiningum (e. turn
constructional units). Lota getur verið gerð úr aðeins einni einingu
eða samsett úr mörgum einingum. Lotumar em byggðar upp eftir því
sem samtalinu vindur fram og ekki verður séð fyrir fram hvemig lotu-
byggingin (e. turn construction), þ.e. innra skipulag lotunnar, verður
hverju sinni sem nýr þátttakandi tekur til máls.
Sérhver lotueining hefur innbyggt upphaf, miðju og niðurlag. Upp-
hafið gefur til kynna setningagerð lotueiningarinnar sem farið er af
stað með, hún er byggð áfram upp í miðjunni þar til ljóst er hvemig
einingunni muni ljúka og náð er endapunkti. Þar em möguleg lotulok
9 Samtalslotan er grunneining í samtölum og því viðmiðunarhugtak í samtalsfræð-
um. Hvemig fólk skiptist á að hafa orðið, þ.e. hvemig lotuskipti ganga íyrir sig, hef-
ur verið meginviðfangsefni CA sem og samskiptamálfræðinnar. í samskiptamálfræð-
inni er þó lögð meiri áhersla á formlega greiningu á uppbyggingu lotunnar.