Vera - 01.12.1982, Blaðsíða 11

Vera - 01.12.1982, Blaðsíða 11
Og líður. En auðvitað gat ég ekki sagt þeim frá bekkjarpartíinu hjá Óla. Eða öllu hinu. Svo ég sagði bara: „Allt fínt.“ „Jæja,“ sagði amma, „þaö er gott, Nonni minn.“ En það var eins og hún væri að luigsa um eitthvað annað. „Þú hefur líklega ekki séð Iiana Bröndu mína þegar þú komst?" spurði hún svo. „Nei,“ sagði ég. „Er hún týnd?“ „Týnd og týnd," sagði amma. „Hún hefur að minnsta kosti ekki látið sjá sig á þriðja sólarhring og.. ." „Hvað ætli hún sé týnd, kattarskrattinn," sagði afi. „Hún kemur þegar henni hentar, vertu bara róleg." „Já. Já, það er bara .. .“ Amma þagnaði og sneri sér að útvarp- inu og hækkaði aðeins í því. „Og hvað er að frétta heimanað frá þér?" spurði hún mig svo. „Allt fínt," sagði ég. „Er Beta litla orðin góð af kvefinu?“ hélt hún áfram. „Já, það held ég,“ sagði ég þó ég vissi ekkert um það. Ég vissi ekki einu sinni að Beta væri með kvef. „Slökktu á útvarpinu fyrst drengurinn er kominn," sagði afi og leit upp úr blaðinu. „Ég er að hlusta á þetta," sagði amrna. „Hætt þú heldur að lesa og talaðu við drenginn." Það hummaði eitthvað í afa og hann hélt áfram að lesa. „Er þér ekki sama þótt ég hlusti á þetta, Nonni minn?“ spurði amma. „Jújú." „Þetta er alveg að verða búið,“ sagði amma, „og þá fer ég fram og næ í eitthvað gott handa okkur. Mér hefur alltaf þótt svo gaman að harmóníkumúsík. Hann afi þinn var líka flínkur á nikkuna í eina tíð. Hann spilaði stundum á böllununt í gamla daga.“ „Hann afi?" Mér hafði aldrei dottið í hug að þau hefðu farið á böll. Eða að afi kynni að spila á harmóníku. „Geturðu þá ekki lækkað þetta, manneskja, ég er að reyna að lesa,“ sagði afi hátt. „O, það held ég nú," sagði amma og brosti til mín og lét sem hún hcyrði ekki í afa. Hún lækkaði heldur ekki í útvarpinu. Svo við sátum þarna þangað til harmóníkumúsíkin var búin. Afi las í blaðinu og fletti alltaf öðru hvoru upp í orðabók sem lá á borðinu hjá honum. Amma prjónaði og raulaði lágt með útvarp- inu. Og ég sat bara og horfði á hvernig prjónarnir dönsuðu á rnilli fingranna á henni. „Það var nú það,“ sagði amma um leið og hún slökkti á útvarp- inu. „Hvað ertu annars að gera núna, væni minn, svona fyrir utan skólann?" „Ekkert," sagði ég. „Gott," sagði afi og kinkaði til mín kolli. Ég glápti á hann. „Iðjuleysi er engum hollt," sagði amma og vafði saman prjón- ana. Hún talar alltaf svona. „Ætli skólinn dugi honum ekki, drengnum," sagði afi. „Skólinn er auðvitað góður svo langt sem hann nær,“ sagði amma, „en einhver önnur áhugamál hlýturðu nú að hafa, Nonni minn?“ Ég vissi ekki almennilega hvað ég átti að segja. Áhugamál? „Ja, ég fer í bíó og svoleiðis," sagði ég svo. „Já, en það er nú annað," sagði amma. „Einhvern tíma varstu í fótbolta, var það ekki?" „Juú, en ég er löngu hættur. Það var ekkert varið í það.“ „Antrna þín er eins og Bjartur í Suntarhúsum," sagði afi og glotti. „Hún vill að allir séu alltaf að gera eitthvað." „Bjartur og Bjartur," sagði amma. „Hver er að tala um hann? Ég er að tala um hann Nonna okkar, og þegar maður er fjórtán ára þá þarf maður að hafa nóg að gera. Hitt er bara að skemmta skratt- anurn." Ég fattaði ekkert hvað þau voru að tala um. Þau höfðu aldrei talað um þennan Bjart áður. „Nei, það skaðar engan að vinna," hélt amma áfram. „Það vit- um við bæði, Jón." „Ja, hvað hafði Bjartur upp úr því?“ spurði afi á móti. „Það er nú bara skáldsaga svo það er allt annað mál,“ sagði amma. „Það gildir annað í lífinu." „Það var og,“ sagði afi. „Og hvað höfum við svo haft upp úr öllu stritinu?“ „Fimm börn sem öll hafa komist vel til manns með guðs hjálp og okkar,“ sagði amma byrst. „Og vertu svo ekki að þessu bulli, maöur, frantan í drengnum.“ Hún stóð upp. „Jæja, nú fer ég fram og næ í eitthvað handa okkur, og svo ætla ég að skreppa aðeins út á eftir og gá að henni Bröndu, greyinu." „Þú hefur alltaf dekrað of mikið við þennan kattarskratta," sagði afi. Frcunhald á bls. 15 11 fi

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.