Vera - 01.05.1994, Síða 46

Vera - 01.05.1994, Síða 46
'l MÓÐIR KONA MELLA Mannréttindi vændiskvenna Undanfarin 10 -15 ár hafa vændiskonur í Evr- ópu af og til látið í sér heyra. Þær hafa stofn- að samtök sem hafa það að markmiði sínu að vinna að mannréttindum þessa hóps og oft með stuðningi kvenréttindakvenna. Þetta er áhugaverð þróun, sérstaklega þegar haft er í huga að tilvera vændiskvenna hefur oft verið nefnd sem tákn um kúgun kvenna í þjóðfélagi sem lítur á konuna sem söluvöru. Árið 1980 voru fyrstu opinberu samtök vændiskvenna í Þýskalandi stofnuð í Berlín. Þau voru stofnuð af félagsráðgjöfum og kven- réttindakonum. Samtökin fengu nafnið Hydra en það er komið úr grísku goðafræðinni. Hydra var slanga með niu höfuð og í hvert skipti sem eitt þeirra var höggvið af uxu tvö í staðinn. Nýlega héldu kvennasamtök í Austur- Berlín og Hydra kynningarfund fyrir konur. Þar kynntu þrjár vændiskonur starfsemi sína og samtakanna og svöruðu fyrirspurnum. Slangan Hydra Við vorum staddar í litlum sal sem brátt fylltist af ungum konum. Vændiskonurnar þrjár kynntu sig og byrjuðu að segja frá Hydra. Fyrst í stað voru konurnar í salnum óöruggar en fyrr en varði sveif andi systraþels yfir vötn- um. Markmið samtakanna eru mörg. Heil- brigðisfræðsla gegnir mikilvægu hlutverki, t.d. fyrir konur/karla sem eru nýbyrjuð í bransan- um og einnig reyna þau að aðstoða fólk sem vill skipta um starf, t.d. með fjárhagslegum stuðningi og ráðgjöf. Utgáfustarfsemi er tals- verð og á vegum samtakanna er rekið kaffi- hús þar sem vændiskonur geta hist, kynnst og miðlað af reynslu sinni. Mikið er af eiturlyfja- neytendum í stéttinni og einnig eru margar er- lendar konur, t.d. frá Tælandi og Austur-Evr- ópulöndunum. Hydra reynir að nálgast þessa hópa til að fræða þá um réttindi þeirra, heil- brigði og fleira. Fimm konur eru í hlutastarfi á vegum sam-

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.