Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 20

Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 20
9 sem sja enga þörf á því að gera neitt sér- stakt fyrir konur og því miður eru þær konur of margar inni á Alþingi sem sinna ekki baráttumálum kvenna. Og leggja þar með kvenna- baráttunni ekki lið Kvennalistakonur fagna þann 19. júní Katmski finnst þeim þær vera stikkfrí af því að þið eruð þarna og eigið að sinna henni. - Þetta er áhugaleysi. Auðvitað væri miklu eðlilegra að þær reyndu að vera í samkeppni við okkur því konur eru stór hópur kjósenda. djarfar í til- löguflutningi eins og við hefðum viljað vera. I þinglok lögðum við einu sinni enn fram tillögu um lengingu fæðingaror- lofs, ekki síst vegna þess að það kom allt í einu upp í borgarstjómarkosningunum þegar Sjálfstæðisflokkurinn kom með hverja tillöguna á fætur annarri þar sem ávísað var beint á ríkisvaldið. En við höfum veigrað okkur við slíkum tillögum í þessum gríðarlega niður- skurði, þannig að við höfum fyrst og fremst verið í því að verja velferð- arkerfið og sem betur fer hefur það skilað töluverðum árangri. Er Kvennalistinn rödd kvenfrelsis áAlþingi? ,,. - Já. Þrátt fyrir að við tökum iðu- lega þátt í umræðum um mál sem virðast lítið snerta konur þá höld- um við á lofti sjónarmiðum kvenna, enda er það hluti af erindi Kvennalistans að hafa áhrif á það hvernig þjóðfélagið er rekið. Við spyrjum ávallt hvernig einstaka að- gerðir koma við konur. Eg veit ekki hversu oft við höfum vakið athygli á því að atvinnuleysi er meira í röðum kvenna en karla og að það þurfi að grípa til sérstakra aðgerða til að mæta því. Öll mál cru kvennamál og Kvennalistinn á auðvitað að skipta sér af öllu. Harkalegur niðurskurður ríkisstjórnarinnar hefur einkennt þetta kjörtímabil og við í stjórnarand- stöðunni höfum staðið mjög þétt saman gegn honum. Þessi samdráttur og niðurskurður hefur auðvitað þýtt það að við höfum ekki verið eins .. það sem skiptir máli í stjórnmála- starfi er samstaða..." Er Kvennalistinn ekki of mikið í þvi að standa vörð um kerfi sem er alls ekki nógu gott? - Mér hefur fundist frá upphafí að Kvennalistinn væri of rnikið í því að verja kerfið í stað þess að koma að því á meira ögrandi hátt. Við megum aldrei gleyma því að við lifum í karlstýrðu þjóðfélagi sem karlveldishugmyndir hafa mótað, þar með taldar allar stofnanir þess eins og t.d. skóla- og heilbrigðiskerfíð. Ríkisrekstur þarf ekki að vera það besta. Eg vil t.d. hafa rétt til að stofna kvennaskóla ef mér finnst þörf á því og mér finnst að foreldrar eigi fullan rétt á að stofna sín eigin dag- heimili og reka þau félagslega. Kvenfrelsiskonur sem vilja breyta þjóð- félaginu geta ekki tekið stofnanir þess góðar og gildar, við verðum að breyta þeim eða byggja nýjar upp frá grunni.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.