Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 24

Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 24
LYÐVELDK) FRA SJONARHOLI KVENNA Hafa konur gengib til gó&s götuna fram eftir veg? Er stigurinn farinn aó likjast götu fremur en tro&n- ingi? Kastaóu teningunum og veltu mólinu fyrir þér. Til ham- ingju meó afmæli lýöveldisins og bjarta framtið! 1944 Aðalbjörg Sigurðardóttir hvetur konur á Lands- fundi KRFÍ 19. júní til að lata ekki sitt cftir liggja. Hún scgir að allt sé undir þeim sjálfum komið, þær geti strax við næstu kosningar sest við hlið karla með fullum réttindum og fullri ábyrgð til jafns við þá í öllum málum hins íslenska ríkis. A almennum fundi í Iðnó um stöðu og kjör hinnar vinnandi konu er eftirfandi samþykkt: „Konur hafi sama rétt og karlar til allrar vinnu, sömu laun fyrir sams konar vinnu og sömu hækkunarmöguleika og þeir. Gifting eða bameign sé engin hindmn fyrir atvinnu né ástæða til uppsagnar.“ A landsfundinum koma í fyrsta sinn fram ákveðnar kröfur um fæðingarorlof. Þú verður gagntekin af þessu og ert sannfærð um að nú fari betri tímar í hönd. Ferö fram um 5 reiti. 1946 í Emblu (bókmenntatímariti sem kom út 1945- 1949) skrifar kvcnréttmdakona bréf, þar segir m.a.: „Ég er ekki viss urn, að það sé af eðlismismun, hve fáar konur stunda ritstörf, samanborið við karl- menn. Mér finnst eftirtcktarvert, að margar konur, sem hafa nálgazt það að vera taldar rithöfundar, hafa verió sjúklingar og dvalizt á hælum. Þetta finnst mér benda til þcss, að þaö séu fyrst og fremst heimilisstörfin, sem koma í veg fyrir andlega iðju kvenna. Má vera, aö sumum þyki það meðmæli með heimilisstörfunum.“ Þú fyllist heift og hættir að sinna heimilisstörfum. Sett eru lög um almannatryggingar. Ferö fram um 3 reiti. 1948 Hannibal Valdimarsson kemur þér skemmtilega á óvart með því að Icggja fram frumvarp á Alþingi um réttindi kvenna. KRFI skorar á stjómmálaflokka að samþykkja frumvarpið en svo varð ekki. Þú sendir Hannibal blómvönd. Situr hjá í 2 um- ferðir. WWVWWm 1963 Vinkona þín sem býr í Ameríku sendir þér nýút- komna bók Betty Friedan The Feminine Mystique. Þú lítur ekki upp úr bókinni fyrr en að lestri loknum og finnst hún allan tímann vera að skrifa um þig. Kemur baminu í gæslu og ferð aftur út á vinnu- markaöinn. Stekkur fram um 3 reiti. 1953 Bók Simone de Beauvoir Le Deuxiéme Sexe (Hitt kynið) kcmur út á cnsku. Þú lest hana og sérð Ijósið. Færist fram um 4 reiti. 1962 Hvar em reiðu ungu konumar? spyr Þórunn Elfa í Nýju kvennablaði. Hún undrar sig á að „ekki skuli heyrast rödd reiðrar ungrar konu sem mcð fullri ein- urð ræðir um það fáránlega misræmi, sem á sér stað um uppeldi og menntun kvenna og kröfumar, sem síðar í lífinu em til þeirra gerðar, ræðir yfirleitt um þá klemmu, sem konur em í milli gamalla og nýrra þjóðfélagshátta“. Hún hvetur konur til að viður- kenna að þær vilji vinna utan heimilis en hætta að afsaka sig með því aö þörf sé á tekjum þeirra, ann- ars væri lítil von um breytingu á ljölskyldu- og heimilisháttum, sem gengju þeim í vil. Þú horfir í eigin barm og viðurkennir með sjálfri þér að þig langi út að vinna, færð enga pössun fyrir bamið og neyðist til að ýta Iönguninni til hliðar. Færist aft- ur um 5 reiti. 1961 Fæðingarheimilið í Rcykjavík stofnað af íslenskum konum og þú velur að cignast fyrsta barn þitt þar. Þú fagnar því að samþykkt em lög um launajöfnuð karla og kvenna og ert sannfærð um að líf nýfæddr- ar dóttur þinnar vcrði mun auðvcldara cn þitt og móður þinnar. Færist fram um 2 reiti. 1958 Aðalbjörg Sigurðardóttir formaður KRFI sendir áskomn til forráðamanna fegurðarsamkeppninnar: „Fegurðarsamkeppnir em leifar frá þcim tíma, er ambáttir vom settar á sýningarpall til þcss að verða metnar til verðs og seldar hæstbjóðanda. Slíkt brýt- ur í bága við mannréttindatilfinningu hvcrrar hugs- andi konu nútímans.“ Áskomnin hefur lítil áhrif og fcgurðarsamkeppni verður fastur liður í sam- kvæmislífi landans. Þú situr hjá meban þú hugsar máliö. 1957 6. bindi af merkum Islendingum kemur út án nokk- urrar greinar um konu. Bækumar ná yfir 400 ára tímabil í íslandssögunni. Vinkonum þínum finnst þetta ekkert tiltökumál því konur hafi aldrei gert ncitt merkilegt. Þú færð áfall og hættir í sauma- klúbbnum. Mátt gera aftur. 1967 Smásaga Svövu Jakbobsdóttur, Saga handa börnum kemur út í smásagnasafninu Veizla Ímdir grjótvegg. Það veröur mikið fjaðrafok í bænum og vinnufélag- ar þínir segja þig geðbilaða þcgar þú lýsir því yfir að þér þyki sagan fjandi góð og lýsa vel raunvcm- lcikanum. Færist fram um 2 reiti. 1968 Úumar, hópur ungra kvenna, taka til starfa innan KRFI. Þú fylgist með störfum þeirra en crt ósam- mála þeim í kvennaskólamálinu. Þá var rætt um að gera Kvennaskólann í Reykjavík að menntaskóla fyrir stúlkur og leggja áherslu á námsgreinar sem „hentuðu konum sérstaklcga“. Úumar ásamt mörg- um öðmm börðust hatrammlcga gegn frumvarpinu cn þú ert sannfærö um nauðsyn þess að hafa sterkan kvcnnaskóla. Finnst þú ein á báti og ferö fram um 2 reiti. 1969 Fyrsta konan, Margrét Guðnadóttir, sett prófessor við Háskóla íslands. Ferö fram um 2 reiti. 1970 Fagnar því að loksins vcrður kona ráðhcrra cn það er Auður Auðuns, sem var dóms- og kirkjumálaráð- herra 1970-1971. Þér finnst samt ekki nóg að gert og starfar að fullu með nýstofnaðri hreyfingu Rauð- sokka eftir að hafa skcllt þér í kröíugöngu með þeim 1. maí undir kjörorðinu Manneskja en ekki markaðsvara. Ferö fram um 3 reiti. 1974 Haldið upp á 1100 ára afmæli íslandsbyggðar, þú færð frændgarðinn úr Vesturheimi í heimsókn og kcmst því ekki á ráðstefnu Rauðsokka í Skógum. Niðurstaða þeirra er sú að kvennabarátta sé stétta- barátta og vcrði ekki slitin úr tengslum við aðra undirokaða hópa í baráttunni fyrir þjóðfélagslegum jöfnuði, né heldur að sigur verði unninn í verka- lýðsbaráttunni án virkrar þátttöku kvenna. Þú hættir í hreyllngunni og ert hálf inunaðarlaus í kvcnnabar- áttunni. Fagnar því að Auöur Eir Vilhjálmsdóttir cr vígð sóknarprestur fyrst íslenskra kvenna. Situr hjá 1 umferá.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.