Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Page 7

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1995, Page 7
— Handritin skulu vélrituð og hafa góða spássíu. — A fyrstu síðu handrits skal koma fram titill, stuttur, gagnorður en þó lýs- andi fyrir innihald greinarinnar. — Nafn höfundar skal fylgja, starfsheiti, og upplýsingar sem segja frá náms- og starfsferli. — Greinar skulu ekki vera lengri en 14 vélritaðar síður og heimildalisti ætti að vera sem stystur (3-20 heimilidir), þó áskilur nefndin sér réttindi til að birta sérstök verkefni í heild sinni eftir mati hverju sinni. — Myndir og teikningar skulu vera það skýrar að það sé hægt að prenta beint eftir þeim. Töflur þurfa að vera skýrt uppsettar og þarf að koma fram í texta hvar höfundur ætlar töflum og myndum pláss. Sé myndefni ekki verk eða eign greinahöfundar sjálfs skal geta uppruna þessa efnis, með til- hlýðanlegum tilvísunum til höfundar þess. — Við ritun greinar og tilvitnana í heimildir skulu staðlar APA hafðar til hlið- sjónar, en nánari upplýsingar um þá er að finna í bókinni American Psychological Association Publication Manual, auk leiðbeininga um uppsetningu. (Einnig kann Gagnfræðakver handa háskólanemum (önnur útgáfa), eftir þá Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson að vera til gagns við uppsetningu (með tilvísun til APA-kerfisins)): — I byrjun greinarinnar skal vera úrdráttur þar sem efni greinarinnar kemur fram í stuttu máli. Skammstafanir skulu skýrðar í fyrsta skipti sem þær koma fyrir. — Höfundar eru ábyrgir fyrir að rétt sé vitnað í heimildir í greinum þeirra. Einnig eru þeir ábyrgir fyrir þeim skoðunum og upplýsingum sem þar koma fram. ~ Ritnefnd Ljósmæðrablaðsins áskilur sér rétt til að setja upp og aðlaga greinar að formi blaðsins. Annaá efni: ~ Oðru efni skal skila vel frágengnu og auðlæsilegu, helst ritunnu og upp- settu eða með leiðbeiningum um uppsetningu. Efnið má vera hand- skrifað en verður þá að vera skýrt, og hlýða sömu reglum og annað efni sem skilað er til birtingar. LJÖSMÆÐRABLAÐIÐ 5

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.