Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2004, Blaðsíða 13
DV Fréttir MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 13 Gjafasafn Kim IS-Sung Breski blaðamaðurinn Rupert Wingfield-Hayes var nýlega á ferð í Norður- Kóreu á vegum BBC. Hann hefur lýst hörmulegu ástandinu í landinu þar sem Kim Jong-il ræður ríkj- um yfir bláfátækri og kúg- aðri þjóð en yfirstétt Kommúnistaflokksins hef- ur allt til alls. Einna nötur- legast segir Wingfield- Hayes að hafi verið að koma í svokallað „Gjafa- safn“, sem grafið er inn í heilt fjall, en þar eru til sýn- is hvorki meira né minna en hálf milljón gjafa sem erlendir mektarmenn sendu Kim Il-sung, föður núverandi einræðisherra. UpES*WB?n' ur krokodill „Listinn yfir þá sem sent höfðu gjafir var eins og uppsláttarrit yfir illmenni 20. aldar," skrifar Wing- field-Hayes á netsíðu BBC. „Þarna var brynvarin lest ffá Stalín, veiðiriffill frá Nicolai Ceaucescu [ill- ræmdum einræðisherra Rúmeníu] og sverð úr skíra gulli frá Gaddafí ofursta [leiðtoga Líbíu]. En fyrstu verðlaun fyrir smekkleysu hljóta samt að fara til Dani- els Ortega, leiðtoga bylting- armanna [Sandínista] í Nicaragua. Hann sendi uppstoppaðan krókódíl sem heldur á glasabakka - greinilega hlutur sem sér- hver einræðisherra verður að eiga.“ Sjávarútvegur skuldsetur sig Skuldir sjávarútvegsins jukust um átta prósent í janúarmánuði vegna kaupa á fyrirtækjum Brims, Eskju og Hraðfrystihússins- Gunnvarar. Samkvæmt vef- síðunni Interseafood.com nemur skuldaaukningin 15 milljörðum króna. Lands- banki Islands lánaði Granda 5,2 milljarða til að kaupa Harald Böðvarsson og kaupendum Útgerðarfé- lags Akureyringa 5,8 millj- arða. HB og ÚA voru dótt- urfélög Brims fyrir söluna, en sömu eigendur eru að Brimi og Landsbankanum. Heildarskuldir sjávarút- vegsins á Islandi eru um 184 milljarðar króna. Sömu stofnanir létu aö því liggja við forseta Bandaríkjanna að gereyðingarvopn væru í írak og telja Norður-Kóreumenn smíða kjarnavopn Stríð á nöngum fonsendum Fyrst bandarískum stjórnvöldum hefur ekki tekist að færa sönnur á gereyðingavopnaeign íraka með neinum hætti er þá ekki eins líklegt að Norð- ur-Kóreumenn séu alls ekki að reyna að framleiða kjarnavopn eins og'Bandaríkjamenn saka þá um? Þetta er spurning sem sífellt fleiri spyrja þessa dagana enda komið í ljós að engin áreiðanleg gögn réttlættu innrásina í írak. Allar forsendur sem gefn- ar voru fyrir innrásinni hafa brostið og almenning- ur í Bandaríkjunum vill gjarna vita hvar sökin ligg- ur. Nú eru tveir mánuðir síðan Saddam Hussein var handtekinn og tekist hefur að hafa hendur í hári langflestra þeirra 52 stuðningsmanna hans sem sérstaklega var lýst eftir meðan á stríðinu stóð. Meta margir það svo að annaðhvort noti bandarískir leyniþjónustumenn vettlingatök í yfir- heyrslum sínum eða það sem líklegra sé, að enginn hinna handteknu geti gefið nokkrar upplýsingar um falin gereyðingarvopn þar sem ekki sé um nein slík vopn að ræða. Upplýsingar af skornum skammti „Þeim upplýsingum sem berast frá leyniþjón- ustum okkar er yfirleitt tekið með fyrirvara," sagði Dick Chaney, varaforseti Bandaríkjanna, í viðtali við L.A.Times í janúar. Þar var komið annað hljóð í strokkinn heldur en þegar innrásin í írak hófst, en tilefni hennar var einmitt ítarlegar upplýsingar sem Bandaríkjamenn höfðu um gereyðingarvopn Saddams Hussein. Nú þegar stríðinu er lokið hafa bandarísk stjórnvöld snúið sér aftur að öðru öxulveldi hins illa, Norður-Kóreu, og telja sig vita ýmislegt sem þar gerist bak við tjöldin. Sannleikurinn er hins vegar sá að Bandaríkja- menn hafa litlar áreiðanlegar upplýsingar um hvað Norður-Kóreumenn aðhafast varðandi vopna- framleiðslu yfir höfuð. Deilur þjóðanna hófust í október 2002 þegar Bandaríkjastjórn sakaði Norður-Kóreu um að gera tilraunir með að auðga úran, en það er nauðsyn- legt til framleiðslu kjarnorkuvopna. I fyrstu viður- kenndu þeir að svo væri en hafa síðar dregið það til baka og hafa alla tíð síðan harðneitað þeim ásök- unum Bandaríkjamanna að fyrirhugað væri að smíða kjarnavopn í landinu. Landamæri Norður-Kóreu Afar fátt ervitað um Norður- Kóreu og lítið virðist leka út. Leyniþjónustur kalla því landið „Svartholið". Meta margir það svo að annað- hvort noti bandarískir leyniþjón ustumenn vettlingatök íyfir- heyrslum sínum eða það sem líklegra sé, að enginn hinna handtéknu geti gefið nokkrar upplýs- ingar um falin ger- eyðingarvopn þar sem ekki sé um nein slík vopn að ræða. Grunsemdir Bandaríkja- manna virðast nær eingöngu byggjast á skýrslu sem CIA gaf út,- í nóvember 2002. í skýrslunni kemur fram að mögulega séu yf- irvöld í Norður-Kóreu að byggja verksmiðju sem framleitt gæti; nægt úran til framleiðslu þriggja kjarnorkusprengja á ári þegat smíði verksmiðjunnar væri lokið. Þar var þó sá varnagli sleginn að verksmiðjan yrði ekki starfhæf fyrr en um miðjan áratuginn. CLA gat ekki þá og hefur ekki síðan getað grafið upp neinar sannanir fyrir byggingu slíkrar verk- smiðju og ekkert er vitað um hvar hún er stað sett. Fylgismönnum fækkar Fyrir stuttu bættust Kínverjar í þann stækkandi hóp þjóða sem telja ólíklegl að Norður-Kóreu- menn búi yfir kjarnavopnum eða hafi hug á að smíða slík vopn. Hafa þeir lýst yfir efasemdum um að Norður-Kóreumenn búi yfir þeirri tækni sem til ' þarf og segja upplýsingar Bandaríkjamanna ónóg- ar til að sannfæra sig um annað. Þann 25. febrúar fer fram sex þjóða fundur um ástandið á Kóreuskaganum. Norður-Kórea mun taka þátt ásamt Bandaríkjamönnum, Rússum, Suður-Kóreu og Japan. Bandarískir vísindamenn hafa.fengið að skoða eina kjarnorkuver landsins í Yongbyon en vísindamenn frá Alþjóða kjarnorku- málastofnuninni höfðu þegar skoðað það þegar stjórnvöld ráku þá úr landi fyrir tveim árum. Þar hefur farið ífam orkuvinnsla og engum hefur tekist að færa sönnur á annað. En á sarna hátt og George Bush tók Saddam Hussein ekki trúanlegan þegar liann neitaði því að eiga gereyðingarvopn mun hann væntanlega ekki taka yfirvöld í Norður-Kóreu trúanleg. Innan Hvíta hússins eru margir á þeirri skoðun að viðræður gagni ekkert og taki eigi af skarið með hernaðarað- gerðum. Tíminn og vinsældir George Bush munu ráða því hvað verður. albermdv.is Kim Jong II Einn illræmdasti einræðisherra i heiminum. Bandarikjamenn vilja sjá honum steyþt afstóli og gætu notað meinta kjarnorkufram- teiðslu sem afsök- unfyririnnrás. ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★* ÚTSALA allt að 35% afsláttur Gítarinn ehf. Stórhöfða 27, sími 552-2125 og 895 9376 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.ís ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ ++++++++

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.